... var að vafra á mbl.is og rakst á blogg sem var tengt við frétt um að það væri búið að gefa út held ég 1700 veiðileyfi á hreindýr hér á landi á þessu ári. Konan sem bloggar er örg yfir villimennskunni að vera að drepa þessi fallegu dýr og sagði að ef fólk vildi endilega borða þetta kjöt gæti það bara farið út í búð og keypt það !!! Mér datt í hug hvort hún héldi virkilega að hreindýrin lölluðu sjálf inn í búðina og leggðu sig bara rétt si sonna í kjötborðið þar ! Sumt fólk...
Já jæja ég er orðin frísk... svaf rúma 4 tíma um hábjartan dag í gær, næstum því heil nótt hjá mér og var ekki alveg viss um hvort ég væri feig eða þá bara frísk.... ég valdi auðvitað að vera frísk, það er miklu skemmtilegra ! Enda hundleiðinlegt að vera lasin... alls ekki nógu fersk til að fara í vinnuna en samt einhvernvegin ekki nógu veik til að hanga heima... ekki lengur allavega ! Enda er ég að fara að vafra um á Glerártorgi í vinnunni þennan daginn og þetta eru líka bara 4 tímar á dag þessa vikuna... verð auðvitað ekkert lasin í kvöldvinnuvikunni minni... skyldi það vera einhverskonar húsbóndahollusta...
Ferlega góð inn í fínan dag og hlakka til helgarinnar... brjóta og bramla frammi í þvottahúsi... það er skemmtanalíf okkar sambýlinganna í hnotskurn
Eigið góðan dag elskurnar mínar allar
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er með hreindýrin eins og kartöbbbblurnar, þetta lallar sér bara inn og leggur sig til sölu Svona þegar það er búið að þrasa um verðið
Birna Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 08:53
Mér finnst nú bara að fólk geti éti ehv annað, ja kartöflur td haldiði svo bara áfram að skemmta ykkur, verður nokkuð fært inní eldhús hjá ykkur í kringum mán mótin ? Hringi bara í Vegagerðina þegar ég verð á ferðinni
Erna Evudóttir, 21.1.2010 kl. 08:58
Einu sinni þegar ég var á ferðalagi tókum við stúlkukind upp við Sævang á ströndum vorum á ferð yfir Tröllatunguheiði. Við stoppuðum á leiðinni og fengum okkur nesti, stúlkan ræddi mikið og þegar við tókum upp mjólkurfernu spurði hún; vitið hvaðan mjólkin kemur? Hún kemur úr Kúm... fyrst héldum við að hún væri að grínast. En hún var afar ánægð með að vita þetta og vildi deila því með okkur. Við hjónin höfum oft hlegið að þessu síðan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.1.2010 kl. 09:22
Fjölhæfa kona .Alltaf mikid ad gera og minna um hvíld.Kíktu tá á bloggid mitt gæti verid gód lausn svona fyrir dugnadarforka eins og tig sem komast kannski ekki nógu oft í líkamsrækt.
Eigdu ljúfann dag.
Gudrún Hauksdótttir, 21.1.2010 kl. 11:05
Gott að þér batnaði ófrískan Já sumir fatta ekki alveg hvaðan maturinn kemur en besti matur sem ég hef fengið var hreindýrasteik sem mér var óvart boðið í þegar ég var unglingur. Man ennþá hvað mér þótti þetta kjöt gott.
, 21.1.2010 kl. 14:22
Frekar skrítið. Knús til þín
Ásdís Sigurðardóttir, 21.1.2010 kl. 14:44
Birna mín: Já ég sko fattaði þetta með kartöbblurnar þegar við áttum 3 viknavélavinnukartöbblugarðinn þarna í sveitinni....
Jónína Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 17:52
Erna mín: Alltaf fært inn í eldhús hjá okkur, sérstaklega um mánaðarmótin
Jónína Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 17:53
Ásthildur mín: Æi... en dásamlegt að hún skyldi vita það
Jónína Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 17:54
Gurra mín: Takk fyrir þetta
Jónína Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 17:56
Dagný mín: Já sumir eru tómari en aðrirMér finnst hreindýrakjöt einfaldlega vont, en það má alveg veiða þau mín vegna
Jónína Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 17:58
Ásdís mín: Já frekar...Knús til baka
Jónína Dúadóttir, 21.1.2010 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.