Iss...

... þetta er nú meiri leiðindatilveran... er hérna í fjandans stofufangelsi í félagi með sjálfri mér... sem er jú að vísu alltaf voða gaman... kettinum og többluspjöldunum sem læknirinn gammér... við kvefi og kverkaskít... jú og kannski einhverju fleiru líkaWink Komið vel á aðra viku af aumingjalegu hangsi og ég vanda mig eins og ég get, gjörsamlega rembist við að slappa af, fara vel með mig, vera róleg, fara vel með mig, hvílast, fara vel með mig, slaka á og fara vel með mig ! Eins og þið hljótið að sjá þá er brjálað að gera hjá mér og ekkert skrítið þó mér batni ekkiW00t Stalst nú samt aðeins út í gær... ef út skyldi kalla... út í hlýjan bílinn og fékk mér að borða í skemmtilegum félagsskap í hádeginu og fór svo á snyrtistofu og lét dúlla aðeins við migJoyful Held í alvöru að þetta hafi bjargað geðheilsu minni sem hékk ekki bara á bláþræði... hún hékk þarna meira svona bara af gömlum vana... ég er að segja ykkur það krakkar mínir að þetta stóð verulega tæptShocking Enda líka ekkert normal andsk... að vera svo aum að hanga við bælið í hálfan mánuð út af kvefi... hita, hálsbógu, hausverk, svima, ógleði og ógeðslegum hósta að vísu líka... en mér er sama, óttalegur kveifarskapur samt og verður ekki endurtekiðTounge Fer galvösk í vinnuna á mánudaginn og ekki orð um það meirGrin Annað hefur verið að hrjá mig líka og það er hversu ég er vel upp alin... já ég veit þetta hljómar asnalega en þetta er alveg satt. Uppeldi mitt miðaðist alfarið út frá mannasiðum, kurteisi og tillitssemi, gá að sér í viðurvist fólks, særa engan, tala ekki ljótt, vera ekki með nefið niðri í því sem manni kom ekki við og sýna fólki, heimilum þess og eignum virðinguHappy Ok þetta er allt gott og blessað og það lætur mér líða vel að koma svona fram, ekkert að því... En, það eru bara alls ekkert allir aldir upp í mannasiðum því miður og í anda míns vandaða uppeldis set ég ekki ofan í við fullorðið fólk, þó það sé yngra en ég og alls ekki í annarra viðurvistAngry Ég skipti mér ekki af því hvernig annað fólk hefur það inni á sínum heimilum, hvað þá að ég setji út á hvernig eða um hvað það talar...GetLost En það eru bara ekkert allir vel upp aldir þó þeir komi svo sem ekkert frá vondum heimilum og fólk á það til að halda að ég sé einhver vesalingur sem þori ekki að segja neitt bara vegna þess að ég er kurteis og tillitssöm ! Ég er seinþreytt til vandræða en það endar alltaf með því að ég fæ nóg... ef það er vaðið of langt upp á mig á drullugum fjósabússunumDevil Fékk alveg frábært ráð hjá Ernu systir í gærkvöldi : Segja helv... fíbblunum að grjóthalda helv... kjafti, á InnbæískuLoL Mér líst alveg svakalega vel á það og ætla sannarlega að nota það ef ég þarf á að halda, það er nefnilega alls ekki nóg að bara ÉG sé kurteis og komi vel framCool  Að því sögðu óska ég ykkur alls góðs inn í daginn elskurnar mínar og við skjáumst... ef ekki fyrr þá bara síðar... Smile Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ætli við séum skildar?  mér finnst þetta gott blogg, en það er leiðinlegt hvað þú ert veik, en ég veit af reynslunni að þetta batnar  og ég veit líka að þú veist það en maður verður stundum að rölla

 
 Guðmundur Pálsson    Anna Árnadóttir  
   1736 - 28. maí 1785   1740 - 20. október 1794  
Björn Guðmundsson 1774 - 1838
Jón Björnsson 1810 - 1860
Sigríður Jónsdóttir 1833 - 1871
Jón Jóhannesson 1858 - 1901
Jónas Jónsson Hagan 1900 - 1989
Sólveig Jónasdóttir 1925 - 2007
Ásdís Sigurðardóttir1956
Þorgerður Guðmundsdóttir 1765 - 1832
Þorlákur Halldórsson 1798 - 1864
Halldór Þorláksson 1820 - 1858
Benónýa Kristjana Halldórsdóttir 1858 - 1918
Björn Ásgeirsson1888 - 1967
Jóhann Dúi Axel Björnsson 1923 - 2000
Jónína Dúadóttir1957

svona erum við í Íslendingabók knus 

Ásdís Sigurðardóttir, 25.2.2010 kl. 14:35

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásdís mín: Hæ elsku frænkubeibíið mitt

Jónína Dúadóttir, 25.2.2010 kl. 15:24

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Gvöð það hef ég aldrei sagt jú jú og segi það bara aftur

Erna Evudóttir, 25.2.2010 kl. 16:23

4 identicon

Og hananú.Kveðja norður

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 16:29

5 Smámynd: Birna Dúadóttir

Argaðu bara á norðlensku á þetta pakk og notaðu svo það sem Erna sagði og sagði ekki

Birna Dúadóttir, 25.2.2010 kl. 17:13

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín: Og ég þakka aftur fyrir góðar ráðleggingar

Jónína Dúadóttir, 25.2.2010 kl. 17:48

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín: Jamm og jæjaKveðja til þín í snjóskabblana á suðurhafseyjunni

Jónína Dúadóttir, 25.2.2010 kl. 17:49

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Jahá... bæði það sem hún sagði og sagði ekki og ætlaði að segja en hugsaði bara.....

Jónína Dúadóttir, 25.2.2010 kl. 17:50

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe ég hef verið að dunda mér við að vera með svona líka bara ekki nógu veik til að vera heima fyrr en í dag.  Hvað er innbæiska?  Er það svona superkalifratislitikerpialidosius?  Batni þér sem fyrst mín kæra og þetta var bara fjandi góður pistill.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2010 kl. 19:59

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásthildur mín: Fáðu strax eitthvað við þessu, ekki rembast við að vera nagli eins og ég, það er bara vitlaust að gera þaðInnbæíska er eiginlega bara öll ljótu orðin og blótsyrðin sem við lærðum þegar við áttum heima inni í Innbæ á Akureyri, sem litlir krakkarSvo segjum við líka "Hafliði" í staðinn fyrir einhvert blótsyrðið, Hafliði var eldri maður sem vann í kirkjugarðinum hjá pabba og bjó í næsta húsi við okkur, hann var gull af manni en hafði þann ósið að tvinna blótsyrði inn í allar setningar sem hann sagði. Við krakkarnir drukkum það allt saman í okkur með ánægju, mamma og pabbi voru ekki alveg eins hrifin Dásamlegt orð sem þú skrifaðir þarna, hvað þýðir það ?Takk mín kæra ég næ mér og mér fannst líka fjandi gaman að skrifa þetta

Jónína Dúadóttir, 25.2.2010 kl. 23:53

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessar útskýringar, ég þarf held ég eitthvað svona í framtíðinni, þegar litla skottið mitt hún nafna mín var farin að segja; Andskotin amma.  Og sú eldri horfði á mig vandlætingaraugum og sagði; sjáðu hvað þú ert búin að kenna barninu.  Superkalifratilistikespialidosious um þetta þarft að spyrja Mary Poppins  Það þýðir eitthvað sem gerir mann léttan í lund og ásáttan við lífið, samanber myndina um Mary.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2010 kl. 13:04

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásthildur mín: Já og passaðu þig á því hvað þú ert að hafa fyrir börnunum kona Mary Poppins var flott

Jónína Dúadóttir, 28.2.2010 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband