... allavega á sálinni í mérSnjórinn er að fara og það eru pollar úti.... þetta er æðislegt
Get varla beðið eftir sumrinu... er samt með smá valkvíða gagnvart sumarfríinu mínu... en ég held ég geri bara allt sem mig langar til að gera og þá hverfur hann sjálfkrafa
Enda verð ég að hafa eitthvað við að vera í 6 vikna sumarfríi á kaupi... en mér kemur ekki til með að leiðast, það er á hreinu
Svo er ég að fara að breyta vinnunni minni, byrjar í næstu viku... þá vinn ég færri daga og hef miklu meira frí, en sama kaup samt. Annars ætti ég núna að vera að setja inn vaktirnar mínar í þetta fína forrit sem við vinnum með, en ég er svooooo að svíkjast um af því að mér finnst það svo afspyrnu leiðinlegt, en ég segi ekki nokkrum manni frá því
Og það líka virkar ekkert almennilega fyrir vaktatilhögun mína... verð hvort sem er alltaf að hringja í kerfisstjórann og biðja hann að setja þetta og hitt inn fyrir mig, af því að forritið ullar bara á mig og segir mér að ég fái ekki nægan hvíldartíma
Setti inn nýlegar myndir af uppáhaldssonardætrum mínum... á bara tvær að vísu... en þær eru líka lang yndislegastar
Ég er í átaki um þessar mundir, andlega og líkamlega... búin að missa nokkur kíló og sakna þeirra ekki baun...Át þau einfaldlega á mig út úr leiðindum og vanlíðan en núna líður mér vel og næstum því betur en það og þarf ekkert lengur að sækja mér einhverja gerfihuggun í mat og sælgæti
Fer að vísu ekki í ræktina eins og Erna systir er svo dugleg að gera, en það gæti alveg átt eftir að breytast... maður veit aldrei...
Vona að þið eigið öll góðan dag og munið að vera góð við þá sem eiga það skilið... og þá sérstaklega ykkur sjálf
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Go Ninna, í ræktina eða ekki
Allt spurning um hvað maður vill sjálfur (uu hver er þessi maður)
Það er alltaf yndislegt að vera í launuðu sumarfríi, ég hef lengi haft það þannig,held ég kynni ekki hitt 
Birna Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 09:07
Flott hjá þér
svo skuluð þið systurnar taka mig ykkur til fyrirmyndar, hehehehehe þetta er fyndin málsgrein 
hlæ að þessu alla leið í ræktina
Erna Evudóttir, 10.3.2010 kl. 09:08
Flissaðu bara og ýldu og gólaðu alla leiðina
Maður gæti haldið að væri verið að .... þig 
Birna Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 09:27
Jebb mar gæti sko haldið það
Erna Evudóttir, 10.3.2010 kl. 09:33
Birna mín: Akkurat hvað maður vill sjálfur... í þessu tilviki er maðurinn kvenmaður sem er svo ég
Jónína Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 11:00
Erna mín: Já við ættum að taka þig til fyrirmyndar....
Enda ég miklu yngri svo mig vantar góða fyrirmynd
Er langt í ræktina ?
Jónína Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 11:01
Sko mína! :D ég veit alveg hvað þú getur gert í sumarfríinu þínu....tekið mótorhjólaprófið og farið að bæka með okkur!! :D
Jokka (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 11:08
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 11:48
Ferlega flott hugmynd með að Ninna taki mótorhjólaprófið, go Ninna
Birna Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 11:51
Jokka mín: Þarna komstu með það... í alvöru ! Mig er lengi búið að dreyma um að taka mótorhjólaprófið en lét "eitthvað" stoppa mig
En það eitthvað er barasta ekkert til staðar lengur
Kíki á þig sem fyrst ljúfan mín
Jónína Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 13:15
Ragna mín:



Jónína Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 13:16
Birna mín: Já nú get ég það og nú geri ég það
Jónína Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 13:17
Yes Ninna, mótorhjólatöffari
Erna Evudóttir, 10.3.2010 kl. 16:10
Erna mín: Yessssssssss og það held ég nú barasta
Jónína Dúadóttir, 10.3.2010 kl. 16:30
You go girl

, 10.3.2010 kl. 21:08
Dagný mín:

Jónína Dúadóttir, 11.3.2010 kl. 07:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.