... æðislegt hvað það er lítið um snjó hérna úti núna... besta mál og lyftir virkilega upp geðinu ! Að vísu er mitt geð nú yfirleitt á jafnri siglingu svona út í gegn... ég leyfi mér aldrei að vera í fýlu, það skilar engu nema minni eigin vanlíðan... og síst af öllu vil ég að mér líði illaOg það móðgar mig líka enginn nema með mínu leyfi... mér finnst það svo flott setning en því miður var það ekki ég sem kom upp með hana... það var fyrrverandi forsetafrú í Bandaríkjunum og segiði svo að það komi ekki eitthvað gott þaðanÉg sagði alltaf þegar ég var spurð hvort ég móðgaðist aldrei að ég nennti því ekki... en hitt er flottara... og alveg satt, það móðgar mig að sjálfsögðu enginn nema ég leyfi það. Ég stjórna því alfarið og algerlega sjálf hvort ég móðgast við einhvern út af einhverju... auðvitað ræð ég því... ef ég hefði enga stjórn á því þá væri ég ekki með sjálfa mig og mín eigin viðhorf og mínar tilfinningar innan seilingar og það er svo sannarlega ekki eftirsóknarvert og þá þyrfti ég mjög líklega hjálp frá fagaðilumOg þegar ég segi ég, þá meina ég bara ég, ekki hann eða hún, bara ég um mig frá mér til mín ! Ok ? En svo er annað, ég get reiðst... alveg rosalega... en það þarf þá eitthvað mikið til, mannvonsku, ógeðslega ósanngirni eða eitthvað í þá veruna, eitthvað sem virkilega telurOg þegar ég reiðist... ja þá reiðist ég nefnilega...og við viljum það ekki...Þess vegna rífst ég líka aldrei og það hefur verið talið til ókosta minna en mér er alveg sama... ef ég reiðist þá segi ég eitthvað sem særir og töluð orð verða sko ekkert aftur tekin... og til að koma í veg fyrir það þá geng ég í burtu frekar en að láta reiðina bitna á öðrum.. og til að róa mig niður...Svo skal ég alveg tala um hlutina þegar sprengihættan er liðin hjáÞoli heldur ekki fólk sem er alltaf uppi á háa C-inu, argandi og gargandi allan liðlangan daginn... skilar engu en verður að ömurlegum leiðinda óvana sem verður til þess að allavega ég hef engan áhuga á að umgangast þaðAlveg ferlega góð inn í daginn með nýja klippingu sem ég er sérlega á ánægð með... klippikonan sem ég fór til framkvæmdi nákvæmlega það sem ég hugsaði og fyrst ég er ennþá ánægð morguninn eftir þá er verkið greinilega vel heppnaðSvo er ég að fara á uppáhaldssnyrtistofuna mína á eftir... þetta er svo greinilega ég um mig frá mér til mín... sem er frábært, svona í sæmilega skynsamlegum skömmtum
Eigið góðan dag elskurnar mínar allar sem nenntu að lesa alveg hingað niður... og eins og Birna systir segir: Eitt glas skaðar engan.... eða var það eitt bros ? Jú líklega
Flokkur: Bloggar | 16.3.2010 | 08:15 (breytt kl. 08:22) | Facebook
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ja sko afþví að ég þekki soldið þessa Birnu þá held ég hún hljóti að hafa sagt eitt glas eða tvö skaða engan
Erna Evudóttir, 16.3.2010 kl. 08:30
Góðan daginn gleðigjafi:)
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 16.3.2010 kl. 08:37
Erna mín: Ha... nú ég hef eitthvað misskilið þetta... ?Sorry... þú veist hverni ég er... að fara að rugla einhverjum brosum inn í´etta addna
Jónína Dúadóttir, 16.3.2010 kl. 08:57
Ragna mín: Knús og kram elskulega Eyjapæjan mín
Jónína Dúadóttir, 16.3.2010 kl. 08:58
Sgo steeelppur mínar, eitt glös skaðar engan
Birna Dúadóttir, 16.3.2010 kl. 09:02
Birna mín: Ég er með hiksta af hlátri............... takk
Jónína Dúadóttir, 16.3.2010 kl. 09:07
Góð að vanda En ertu ekki bara sönn Vog? Það held ég
Aðalheiður Magnúsdóttir, 16.3.2010 kl. 09:17
Aðalheiður mín: Þakka þér fyrirJú ég hef heyrt því fleygt áður
Jónína Dúadóttir, 16.3.2010 kl. 11:21
Sannarlega flott færsla og satt sem þú segir, auðvitað verðum við sjálf fyrst og fremst að stjórna því hvernig við bregðumst við áreiti. Það er okkar val. Knús og takk.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2010 kl. 11:32
Ásthildur mín: Þakka þér mín kæra og knús til baka
Jónína Dúadóttir, 17.3.2010 kl. 07:15
Það er alveg satt - auðitað á maður ekki að leyfa neinum að móðga sig og halda bara sínu brosi á andlitinu Takk fyrir gleðivakninguna þennan daginn
, 17.3.2010 kl. 11:03
Dagný mín: Mín er ánægjan og þakka þér
Jónína Dúadóttir, 17.3.2010 kl. 12:34
þú ert yndi.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.3.2010 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.