Fundir allskonar hafa fyrir mér langoftast verið meira svona gæsahúðar- og geispaframleiðandi en eftirsóknarverðir...En það er að breytast... starfsmannafundirnir sem ég er farin að sitja núna eru bara skemmtilegir, enda stórskemmtilegt og með eindæmum jákvætt og velviljað fólk sem situr þá með mér ! Mér finnst svo gott að vera þar sem er hugsað í lausnum, en ekki í vandamálum ! Ég mundi jafnvel mæta á þessa fundi þó ég fengi ekki borgað fyrir það, en ekki segja yfirdúllunni minni það samt
Ferlega góð inn í fínt vor... það er alveg að koma vor er það ekki... og inn í nýja vinnutilhögun, nýju skjólstæðingarnir mínir eru yndislegt fólk... þau eru greindarskert en hafa á móti svo miklu meira af mannlegri hlýju, skilningi og yndislegheitum sem við hin sem talin erum með nokkurnveginn óskerta greind skortir oft tilfinnanlega... en það er nú líka til svo margskonar greind ! Mér finnst ég græða stórlega á að fá að kynnast þeim
Ekki það að mér finnist ég nokkurtímann beinlínis tapa á að kynnast einhverju fólki... held ég komi alltaf út í gróða vegna þess að reynsla og þekking eru alltaf gróði
Langflest fólk er þannig að mér líður vel sem manneskju við að umgangast það...
En sumt fólk er aftur á móti þannig að mér líður miklu betur sem manneskju við að umgangast það bara alls ekki neitt
Vilji er allt sem þarf og ef ég vil láta mér líða vel og það vil ég, þá umgengst ég fólk sem hefur jákvæðni, velvilja og almenna gleði sem áhugamál en ekki neikvæðni, fordóma, þras og þrætur... að ævistarfi liggur við
Lífið er ljúft, bara lifa því lifandi og með þeim orðum kveð ég... í bili og óska ykkur öllum alls góðs inn í daginn
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert engill.Knús í daginn
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 18.3.2010 kl. 07:43
Ragna mín: Sömuleiðis dúllan mín

Jónína Dúadóttir, 18.3.2010 kl. 08:28
Já þetta er gaman að heyra. Það er sem sagt heilmikið að grassera í grasrótinni, þar sem fólk er farið að hugsa öðru vísi og leggja upp með aðra hluti, þetta hlýtur að lokum að skila sér alla leið upp í stjórnarráðið. Til lukku með allt þetta Jónína mín, og knús á þig inn í daginn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2010 kl. 09:21
Birna Dúadóttir, 18.3.2010 kl. 09:28
Ásthildur mín: Svona hef ég alltaf verið og hugsað, það hefur bara hingað til ekki þótt flott... en er sem betur fer mikið að breytast
Takk mín kæra og knús til baka
Jónína Dúadóttir, 18.3.2010 kl. 09:38
Birna mín: Já það finnst mér líka
Jónína Dúadóttir, 18.3.2010 kl. 09:38
Ég er farin að leyfa mér það að umgangast einungis það fólk sem mér líður vel með, hinir mega eiga sig, vonda fólkið getur bara verið annarsstaðar. Þú ert yndi.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.3.2010 kl. 11:29
Svo satt svo satt
Gleðilegt vor 
, 18.3.2010 kl. 19:28
Ásdís mín: Ég held það sé hið eina rétta og ef fólk vill umgangast okkur þá verður það bara að reyna að "betra" sig
Þú ert miklu meira yndi mín kæra

Jónína Dúadóttir, 19.3.2010 kl. 06:48
Dagný mín: Held það nebblilega
Gleðilegt vor til þín líka

Jónína Dúadóttir, 19.3.2010 kl. 06:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.