... skrifa ekki "skín á mig" af því að ég er ekkert búin að fara út í morgun... en það er glampandi sól úti og snjóar ekki og það eru sko fréttir
Hér er allt yndislega ljúft og rólegt og lífið gengur sinn vanagang... sem er gott... get svo sem ekki sagt frá því öllu, sumt er ekki til opinberrar birtingar og svo man ég varla á milli herbergja, svo ef ég ætlaði að segja frá öllu yrði ég að skrifa það niður jafnóðum, en ég má bara ekki vera að því
Er að berja saman eldhúsgardínur fyrir einn glugga, ekki mikið sem þarf að sauma en ég er bara alltaf að gera eitthvað allt annað... alveg eins og þegar ég þyrfti eiginlega að fara að skúra hérna...
Það er vinnan og það eru vinkonurnar og það er útiveran og það eru barnabörnin, veit ekki hvað er eiginlega langt síðan ég hef kveikt á sjónvarpinu hérna og svo er... eitthvað sem er ekki til opinberra birtingar...
Ferlega góð inn í hvern daginn á fætur öðrum... bein í baki og brosandi
Er að plana smá ferðalag suður á flatlendið einhverja fríhelgina mína... ekki alveg ákveðið ennþá, en fer að smella saman... gistingin er klár samt
Það eiginlega kemst ekki svo margt annað á blað núna nema blessuð sólin... alveg kominn tími til að hún fari að setjast að hérna uppi
Eigið góðan dag elskurnar mína, það kem ég til með að gera líka
Flokkur: Bloggar | 8.4.2010 | 08:13 (breytt kl. 08:22) | Facebook
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðan daginn elskulegust.Það er alltaf hjartastyrkjandi ð lesa bloggið þitt.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 08:17
Ragna mín: Takk elskan mín, það þykir mér virkilega vænt um
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 08:37
Góðan og blessaðan vina mín.
Sólin baðaði mig geislum sínum í morgun þegar ég fór í vinnuna, en það var samt heldur kalt fyrir mig. Sólin er auðvitað bara dásamleg en eitt er það sem hún sýnir mér heldur harkalega..... RYKIÐ..... upp um allt og út um allt, inni....svo nú stendur til að drífa fram réttu verkfærin og þurrka af......einhverntímann ;)
Kveðja af Sólvíkinni
Hóffa (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 09:15
Bara flott veður hér Verst að vera innandyra nema rétt í hádeginu
Aðalheiður Magnúsdóttir, 8.4.2010 kl. 10:57
Mér finnst að þú eigir að senda mér þetta "ekki birtingarhæfa" í pósti Ekki fallegt að gera minns forvitinn
Birna Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 11:25
Ég held að Ninna sé farin að tefla eða nei annars er sjálfsagt farin að spila bridge, gruna hana um það sko
Erna Evudóttir, 8.4.2010 kl. 11:43
Annað hvort það eða eitthvað allt annað Úllalla
Birna Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 11:50
Hóffa mín: Góðan daginn mín kæraHitti 3 yndislega Sólvíkinga á Glerártorgi í morgun... Nönnu, Dísu og TommaJá sko þetta með rykið... þar er ég í afneitun, líklega þangað til ég fæ asma eða eitthvað
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 13:30
Aðalheiður mín: Æi já það er nú betra að geta verið úti, en það á að vera ennþá betra um helgina ef spáin gengur eftir
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 13:32
Birna mín: Þú færð póst
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 13:33
Erna mín: Þú hefur sko alveg rétt fyrir þér.............. eða bara alls ekki
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 13:34
hahahaha nú segi ég eins og þú sagðir hjá mér
"Mætti halda að þetta sé skrifað um mig." Skemmtilega skrifað
Christine Einarsson (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 13:43
Svakalega varstu snemm í því í morgun :) hér er rosa flatt, gætir kíkt hingað austur. Vertu í bandi ef þú ferð yfir heiðu. vona að þú sért búin að njóta blíðunnar í allan dag.
Ásdís Sigurðardóttir, 8.4.2010 kl. 17:11
Christine: Gaman bara og takk
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 19:17
Ásdís mín: Ég get alveg lofað því að ég kem og heimsæki þig, ef ekki þessa helgi mína þá allavega í sumar... og þegar ég lofa einhverju þá stend ég við það... nema ég detti niður dauð eða eitthvaðOg já ljúfan mín, ég er búin að njóta góða veðursins og margs góðs í dag
Jónína Dúadóttir, 8.4.2010 kl. 19:20
Ásdís Sigurðardóttir, 9.4.2010 kl. 11:35
Gott að blessuð sólin skín hjá þér líka Jónína mín. Hún lífgar, hýrgar bætir og kætir og gefur okkur nauðsynleg vítamín. Knús á þig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.4.2010 kl. 11:51
Ásthildur mín: Knús til baka mín kæra
Jónína Dúadóttir, 9.4.2010 kl. 13:46
Alltaf jafn hress og jákvæð, svona á það að vera Jónína mín.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 9.4.2010 kl. 14:13
Ólöf mín: Þakka þér fyrir og bara sömuleiðis mín kæra
Jónína Dúadóttir, 9.4.2010 kl. 17:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.