Experíment í... hverju... hvað.... :))

Las frétt í morgun um mann á Lauga(r)nesinu sem er búinn að standa alls konar þrasi við byggingafulltrúa þar út af allra handanna hraukum og byggingum, sem hann hrúgar upp í kringum sig í óleyfi. Hann segist vera að fegra umhverfið fyrir almenning og svo framvegis og ekki ætla ég að leggja neinn dóm á það, aldrei komið þarnaWinkEn það sem ég tók eftir var að að var haft orðrétt eftir honum í fréttinni að þetta væri "experíment í environalisma" ! Ég þykist alveg skilja þetta en þessi maður er íslenskur, titlar sig að vísu listamann en samt...GetLostKannski er það bara ég en mér finnst alveg óendanlega hallærislegt þegar verið er að sletta svona... þetta er ekkert fínt, það þótti það kannski í gamla daga en ekki lengurToungeTilraunir í umhverfislist eða eitthvað álíka hefði alveg komist til skila sko ! Endilega þýðið þetta fyrir mig samt...

Ferlega fín inn í frábæran dag, sólin skín, ég er hress og fín og í fríi í dag... það er sem sagt NEI dagur hjá mér í dag... vaktaforritið segir þaðLoLAlls ekki neikvæð samt, einmitt afskaplega jákvæð inn í daginn af um það bil milljón ástæðum eða svoJoyfulAð vísu tvennt neikvætt sem ég veit að gerist í dag, en en allt þetta jákvæða yfirgnæfir það algerlega þannig að það kemur bara út sem minniháttar tímabundin óþægindi, sem ganga fljótt yfirGrinÞegar sólin skín svona dag eftir dag þá fer ég að sjá sumarfríið mitt í hillingum... en það er sko ekki fyrr en í júlí ef ég fæ að ráðaTounge

Óska ykkur öllum góðs dags og ennþá betri vikuSmileHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Sæl Ninna mín! Maður burrar stundum fram hjá þessu, sem í reynd er hól að kalla "umhverfishryðjuverk" og þú ert að vísa til. Ef einhver tilraun er í gangi þarna... þá myndi ég veðja á að hrafninn væri helst að athuga hversu langt hann getur komist gagnvart kerfinu, nágrönnum og almennt íslendingum öllum:-)

Kveðja í hrafnlausan Heiðardalinn!

Þorsteinn Gunnarsson, 12.4.2010 kl. 10:25

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Steini minn: Aha ég skil... ruslahaugar... það er alveg nóg af þeim þó einhver rugludallur sé ekki að leika sér að því að búa þá tilEkki nóg að sletta og slá um sig á úttlenskunni

Kveðja úr næstum því alveg snjólausum og algerlega hrafnlausum Heiðardalnum

Jónína Dúadóttir, 12.4.2010 kl. 11:20

3 Smámynd: Birna Dúadóttir

Haha Hrafninn er svo klikk á því og kemst upp með það

Birna Dúadóttir, 12.4.2010 kl. 16:31

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Já ég held hann sé alger klikkhaus

Jónína Dúadóttir, 12.4.2010 kl. 19:05

5 identicon

óska þér góðs dags líka Jónína mín.

Christine Einarsson (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 12:11

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Christine mín: Þakka þér fyrir

Jónína Dúadóttir, 13.4.2010 kl. 14:19

7 identicon

Kærleikskveðjur til þín ljúfan

Ragna Birgis (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 14:29

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín: Sömuleiðis mín kæra

Jónína Dúadóttir, 13.4.2010 kl. 14:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband