... já og þú líka :))

Það er þetta með blessaðan hrokann... hann er leiðindafyrirbæri...GetLostBlindar fólk gjörsamlega á eigin galla... en margfaldar ímyndaða eigin kosti... og kemur að sjálfsögðu þá líka algerlega í veg fyrir að fólk sjái eitthvað gott í öðrum... en magnar upp getuna til að margfalda alla gallana í fari annarra ! Ég dett svo oft í að pæla eitthvað svona... er nú líka með nokkur  "félagsfræði og mannfræði verkefni" í seilingarfjarlægð...SmileÞað er hroki og svo er stolt... en það er alls ekki það sama, engan veginn... ef ég er stolt af einhverju sem ég geri þá er ég ekki að hreykja mér yfir aðra... nei, ég er bara stolt af mínum eigin árangri... og þó ég sé stolt af mínum eigin árangri þá er ég alls ekki að  lýsa því yfir í leiðinni að allir aðrir séu aumingjar að geta ekki það sama og ég... nei, ég er bara stolt yfir mínum eigin árangri, ekkert flóknara en þaðWinkAf því að öllum er eitthvað gott gefið, auðvitað misjafnt hvernig og hvort fólk notar það svo... ég get ýmislegt betur en aðrir, aðrir geta ýmislegt betur en ég... algjörlega hið besta mál og kemur sér líka oft svo skemmtilega velGrinÉg hef tekið eftir því að fólk sem hefur velvilja, manngæsku og heilbrigð viðhorf að leiðarljósi í lífinu... í núinu... og vill og reynir að horfa á hlutina á jákvæðan hátt... er laust við hrokaJoyfulÞannig að niðurstaðan af mínum hávísindalegu mannfræði og félagsfræðirannsóknum er sú, að meðal annars af neikvæðninni fæðist hrokinn...CoolEndilega leiðréttið mig ef ég er að bulla tómt malbik, en ég held samt... í hroka mínum... að ég sé alls ekki að þvíTounge   

Eigið dásamlegan dag elskurnar mínar allar... já og þú líkaGrinHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Evudóttir

Og þá hefst lesturinn : Alveg rétt hjá þér ég hef sko rétt fyrir mér

Erna Evudóttir, 20.4.2010 kl. 09:33

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Uuu nei, það er ég sem hef rétt fyrir mér  Ok þið líka, af því að það er ekki sunnudagur

Birna Dúadóttir, 20.4.2010 kl. 09:46

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín: Já, ég held þú hafir sko alveg rétt fyrir þér

Jónína Dúadóttir, 20.4.2010 kl. 10:09

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Já þú hefur líka alveg rétt fyrir þér... uss maður, eins gott það er þriðjudagur

Jónína Dúadóttir, 20.4.2010 kl. 10:10

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert frábær og enginn hroki, sammála þér með þetta knús

Ásdís Sigurðardóttir, 20.4.2010 kl. 12:01

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásdís mín: Það ert þú líka, knús til baka

Jónína Dúadóttir, 20.4.2010 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband