... þessa dagana er........ hérna... skal ég segja ykkur.... jæja, kem að því seinna þegar ég man hvað það er... Held ég sé komin með einhvern minnisleysissjúkdóm... sem ég man alls ekkert hvað heitir... Annars ferlega góð inn í dagana sko ! En uss, það er búið að rigna hérna í viku og þessi þó litla sólbrúnka sem ég var komin með í andlitið og á handleggina er að skolast í burtu í öllu þessu endalausa vatni... ég ætla bara ekki að leggja meira á ykkur... Blómin á pallinum hjá mér eru að breytast í vatnaliljur... voru nú samt bara venjulegar stjúpur og eitthvað svoleiðis þegar ég plantaði þeim... Endar með að það má fara að setja bara gullfiska í tjarnir þarna... Hengdi m.a. upp 3 tágakörfur með blómum í og ein þeirra var orðin svo rennandi blaut að haldið á henni morknaði sundur og fína fína blómið lá bara á pallgólfinu í morgun... Þetta er að verða alveg nóg af vatni takk fyrir pent
Allt gott að frétta héðan svo sem... allir eins frískir og hægt er að vonast tilHafði mig loksins til háls, nef og eyrnalæknis um daginn út af suðinu sem ég er alltaf með fyrir eyrunum. Hann var ósköp indæll... var örugglega ekkert að reyna að vera leiðinlegur, þegar ég var búin að segja honum skýrt og skilmerkilega af hverju ég væri nú komin þarna, þegar hann spurði mig hvort ég heyrði þetta með eyrunum eða hvort þetta væri bara í höfðinu á mér... Hm... já, kannski lít ég út fyrir að vera svolítið klikkuð...Svo mældi hann heyrnina hjá mér... lokaði mig inni í búri með glugga á og sagði mér að ýta á takka þegar ég heyrði sérstakt hljóð og líka þegar ég héldi að ég heyrði það... Ok, lít ég út fyrir að vera ímyndunarveik kannski líka...?Hann komst að því að ég er með skerta heyrn á báðum eyrum og gáði að kennitölunni minni áður en hann sagði að ég væri nú ekkert orðin nógu gömul til að það væri eðlilegtHalló, halló ég skal alveg kannast við klikkaða ímyndunarveikisútlitið en ég lít ekki út fyrir að vera svo gömul að það afsaki þessa hegðun hjá manninum...
Einkadóttir mín hringdi um daginn frá Gautaborg og bað mig að koma ekki í nóvember þegar hún verður þrítug... Hljómar ekkert sérstaklega yndislega... en hún spurði hvort ég gæti ekki komið bara fyrr af því að hún, elsku litla stelpan mín ætlar að fara að giftast elskunni sinniAð sjálfsögðu kem ég þá fyrr...
Hætt þessu núna... ætla að fara og hitta afkomendur mína á gistiheimili hérna út með sjónum... alltaf mannbætandi að hitta það yndislega fólk
Hafið það gott öll sem eitt og Birna mín, mér finnst hárið á þér megaflott... og ég er sko ekki að ljúga því
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 173098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það hlaut að vera heyrnarleysi Ég hélt alltaf að þú nenntir ekki að hlusta á okkur systurnar Snilli hún Kata
Birna Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 12:30
Það er aldrei hávaðinn í kringum þig ljúfan
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 13:05
Birna mín: Ja sko................Já Kata er snilli
Jónína Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 14:52
Ragna mín: Nei eiginlega ekki... hann spurði mikið út í það... hvort ég hlustaði mikið á háværa tónlist, ynni í miklum hávaða eða hefði gert... Alltaf varð ég að segja nei
Knús mín kæra eyjapæja
Jónína Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 14:53
Bjarni er alltaf með suð líka og ég hef ekki fundið býflugu í eyrunum á honum, verður sjálfsagt að láta svona HNE snilling kíkja á sig. Knús á þig
Ásdís Sigurðardóttir, 6.7.2010 kl. 16:47
Já sko en þú ert mikið yngri en ég samkvæmt HjólaManga svo það er bara eðlilegt að ég heyri illa hah þetta fann ég út án þess að borga krónu fyrir það Er ekki Kata litla bara að verða tvítug
Erna Evudóttir, 6.7.2010 kl. 21:09
Ásdís mín: Já allavega svo hægt sé að segja einhverja brandara frá heimsókninni til HNE læknisins... þessi var sko ekkert að reyna að vera fyndinn... en hann var það samt
Knús til baka elskuleg
Jónína Dúadóttir, 7.7.2010 kl. 00:24
Erna mín: Auðvita veit hann Snæbjörn á hjólinu hvað hann er að segja, hélt við værum búnar að ræða það Þú bara í sjálfboðavinnu við að sjúkdómsgreina sjálfa þig... góð
Jú veistu... hún Kata mín er bara rétt að verða tvítug....
Jónína Dúadóttir, 7.7.2010 kl. 00:28
Þú verður bara að fara að rækta hrísgrjón ef þessi rigning fer ekki að hætta En varla er suðið af því þú ert með skerta heyrn.. Hefði verið "næs" að finna út úr því líka..
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 7.7.2010 kl. 23:35
Sigrún mín: Já líklega verður hrísgrjónarækt bara næsta skrefÞetta með heyrnina... ég á að fara í segulóm... eitthvað rör til að gá af hverju ég heyri ekki nógu vel, en það er bara lokað í sumar í það dæmi hérna á FSA... svo það verður einhvertímann með haustinu... vonandi... sem ég fæ kannski eitthvað út úr því Knús
Jónína Dúadóttir, 8.7.2010 kl. 07:07
Nú fer þetta suð að hætta ég er búin að era með svona einkenni í mánuð eða allan tíman meðan helvítis HM var í gangi. Núna er þetta suð horfið svo vittu til J'onína mín þetta hættir smátt og smátt. Kv. norður ef þú hittir krakkana mína sem búa núna tímabundið á Grenivík þá seni ég kveðju. Annars held ég að þau fari nú að komasér heim til Prag fljótlega.
Ía Jóhannsdóttir, 12.7.2010 kl. 16:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.