Það er meira vor þessa dagana í sáðbökkunum í eldhúsinu hjá mér en úti í náttúrunniEn það lagast, ekki spurning hvort... heldur bara hvenær...
Æddi í svakalegum vorfíling í blómabúð um daginn og fór í loftköstum í frædeildinni... fékk mér tvær tegundir af sumarblómafræjum og þrjár tegundir af kryddjurtafræjum...Legg ekki meira á ykkur og þá ekki á sjálfa mig heldur... hef nefnilega ekki hingað til verið þekkt fyrir græna fingurEr að fylgjast með þessu nýja lífi kvikna þarna í bökkunum á eldhúsbekknum mínum og virkilega að velta því fyrir mér, hvort það hefði nú ekki mátt sleppa einhverju af þessu og hvar í ósköpunum sjálfum ég hafði eiginlega hugsað mér að hafa pláss fyrir þetta alltSpyr sá sem ekki veit sko....
Það er töluvert af svona "ekkispurninghvortheldurhvenær"viðburðum í lífi mínu þessa dagana... vorið, Svíþjóðarlæknisferðin og sumarfríið mitt, svo eitthvað sé nefnt. Og svo eitthvað meira sem er ekki alveg eins ánægjulegt og þetta sem var talið fram þarna... en meira svona óhjákvæmilegt... En það getur auðvitað ekkert alltaf verið gaman...
Sigli núna inn í vikuvinnutörn og svo lengsta páskafrí þessarar konu í mörg ár... alveg 5, segi og skrifa fimm dagar... í röðBúið að plana eitthvað af þessu fríi... verð alls ekkert bara heima allan tímann...Ætlaði nú að leika mér eitthvað með ömmudúllurnar mínar, en mamma þeirra fer með þær til Sviss í 10 daga páskafríinu sínu frá skólanumÞað verður yndislegt fyrir oma og opa í Sviss að fá þær í heimsókn, ég get alltaf náð þeim seinna
Eigið góða daga... þangað til ég kem hérna inn næst
Flokkur: Bloggar | 13.4.2011 | 12:50 (breytt kl. 12:51) | Facebook
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 173098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 12:59
Sömuleiðis dúllan mín.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2011 kl. 14:02
Ragna mín:
Jónína Dúadóttir, 13.4.2011 kl. 17:50
Ásdís mín:
Jónína Dúadóttir, 13.4.2011 kl. 17:51
Kannski grænka fingurnir með aldrinum Það er a.m.k. gaman að taka smá forskot á vorið með því að sá í bakka Hafðu það sem best, ljúfust mín
Dagný, 14.4.2011 kl. 09:33
Þú getur sett nokkrar plöntur saman í potta og svo gefurðu bara blómakonunum í kring um þig nokkrar plöntur. Það er gaman að sjá gróðurinn spretta. Vonandi gengur allt vel hjá þér elskuleg mín. Vorið er reyndar komið hér, ég skal lána þér smá
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2011 kl. 10:53
Dagný mín: Jamm... kannski farin að mygla...Mér finnst þetta gaman, hef bara aldrei gefið mér tíma... en nú er komið að því
Hjartans þakkir mín kæra og sömuleiðis
Jónína Dúadóttir, 14.4.2011 kl. 17:25
Ásthildur mín: Frábær hugmynd, geri þaðÞakka þér fyrir mín kæraOg líka takk fyrir vorið, það kom áðan
Jónína Dúadóttir, 14.4.2011 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.