Ef það væri mars núna...

... þá væri svo sem ekkert athugavert við þetta veður... en það er 9. júní... W00tÞessi duglega kona hérna... sem er auðvitað ég... sáði sumarblómum og þau bíða eftir því að komast út... í sumarið sko...CoolAnnars er ég í seinni vikunni af tveggja vikna sumarfríi og nýt þess algerlega milljón prósent... hæfir minni eðlislægu leti að gera ekkert þegar mig langar tilGrinMundi hvort sem er ekkert liggja í sólbaði en vildi nú samt alveg hafa sólina og geta verið úti án vetrarklæðnaðarShockingÁtti inni vikufrí seinnipartinn í maí í fyrra og þá snjóaði... UndecidedÞað skyldi þó ekki vera eitthvað samhengi þarna... sumarfríin mín= kalt og vont veður... ? Svo fer ég sko næst í frí í byrjun júlí... í fjórar vikur... ekki pakka úlpunum ykkar strax...LoL

Annars allt gott að frétta bara... er á góðri leið í lífinu, leiðinni sem ég valdi mér sjálf, af því að mig langaði að fara akkúrat þá leið og líður dásamlega með þvíWinkFer ekkert út í smáatriðin strax... framhald í þarþarþarþarþarnæsta bloggiWhistling

Hef eiginlega svolitlar áhyggjur af áhyggjuleysinu mínu... eina sem ég hef "áhyggjur" af er hvar munstrið á teppinu... sem ég er að prjóna... endar, þegar garnið er búið...Halo Asni... ég ? Já, ég veit þaðTounge

Hafið það gott elskurnar mínar allar og munum: við eigum bara þetta eina líf til að leika okkur með og það borgar sig alls ekki að eyða því í fúllyndi, svartsýni og neikvæðni... allavega tími ég því sko alls ekkiSmileHeartSmile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábært að heyra að þú hefur það eins og blóm í eggi Jónína mín,hlakka til að heyra meira um framtíðina þína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2011 kl. 12:00

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásthildur mín: Þakka þér fyrir mín kæra

Jónína Dúadóttir, 9.6.2011 kl. 13:06

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2011 kl. 15:56

4 Smámynd: Dagný

Maður ætti kannski að biðja þig að taka sumarfríið þitt um jólaleitið  Gott annars að lífið leikur við þig ljúfust mín. Býð spennt eftir þarþarþarþarþarnæsta bloggi

Dagný, 10.6.2011 kl. 19:07

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Dagný mín: Já kannski það væri bara ráð

Þakka þér fyrir mín kæra, já lífið leikur við mig

Jónína Dúadóttir, 11.6.2011 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband