... í neinu ofvæni, en hann kom nú samt En ég var að bíða eftir nóvembermánuði og stundum fæ ég bara mun meira en ég bið um og langar í... oftast fínt bara
Í nóvember eiga tvö eldri börnin mín afmæli... og auðvitað fleira flott fólk, pabbi þeirra líka Og annað sem er svo gott við nóvember... á eftir honum kemur desember... uppáhaldsmánuðurinn minn, fyrir utan alla hina mánuði ársins... Hlakka alltaf svo til nóvember og desembermánaða... enda er það eiginlega aðal tilfinningin og meiningin með þessu finnst mér... tilhlökkunin... tónlistin... undirbúningurinn... samveran... fallegu ljósin og skrautið... Ætla ekkert að nefna bakstur eða neitt svoleiðis... finnst það ekki skipta öllu... og ekki ætla ég að mála... ekki að skipta neinu út, hvorki húsgögnum né gólfefnum... en ég væri vís með að skipta út gamla skítnum fyrir nýjan samt... Það eina sem ég ætla að eyða peningum í eru jólagjafir handa mínum nánustu... og sjálfri mér líka... auðvitað...
Það var ennþá október þegar ég tók yndislega jólahúsið mitt úr kassanum og kveikti á því... það er svo fallegt... skiptir litum svo rólyndislega... Þegar ég er búin að kveikja á einhverju svona jólajóla þá slekk ég ekki á því fyrr en ég tek það niður, einhvertímann í janúar og mér er alveg sama hvað hver segir...
Nenni ekki að skrifa mikið um heilsuna mína... á ekkert bágt... nema með fj... jafnvægið og smá hausverk af og til... verra gæti það nú verið... finnst samt verst að vera ekki farin að vinna ennþá... Kann ekki að vera bara heima og hugsa alfarið um bara mig og ekkert annað... það eru nú takmörk fyrir öllu...
Eigum góðan dag öll sem eitt... já... þú líka...
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 173098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðan dag Jónína mín, já nóvember er fallegur í dag með allan sinn snjó. Og bráðum kvikna jólaljósin. Annars er gott að ræða um það sem hrjáir mann, þá er ekki verið að loka neitt inni sem er betur farið að sendast út og dreyfast á vini og vandamenn til að fá hlý orð og huggun. Það er nákvæmlega ekkert að því ljúfust mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2011 kl. 11:44
Ásthildur mín: Þakka þér fyrir mín elskulega vinkona... það er svo dásamlegt að eiga þig að, þú bætir allt sem þú kemur nálægt...
Eigðu líka góðan og fallegan dag
Jónína Dúadóttir, 2.11.2011 kl. 12:10
Elsku ljúfan. Jóladagar kærleiks og gjafmildi framundan og það er gott að hlakka til jólanna því það bendir til þess að eitthvað heitt streymi um hjartahólfin
Ragna Birgisdóttir, 2.11.2011 kl. 12:16
Ragna mín: Elsku ljósið mitt, þú kannt að koma orðunum að því... akkúrat eins ég vildi hafa sagt....
Já, yndislegur tími framundan....
Jónína Dúadóttir, 2.11.2011 kl. 12:26
Takk fyrir þessi orð Jónína mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2011 kl. 13:42
Ásthildur mín: Ég veit að ég er ekkert ein um þessa skoðun...
Jónína Dúadóttir, 2.11.2011 kl. 14:20
þú ert yndæl elsku Jónína mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2011 kl. 14:29
Nei Jónína mín við skulum ekkert vera að baka smákökur. Nema bara kannski eina sort til að fá kökulykt í húsið :o) En það er sko í góðu lagi að taka fram jólahús og annað jólaljósmeti - það er nefnilega það skemmtilegasta við jólin - undirbúningurinn fyrir þau og tilhlökkunin. Hafðu það sem allra best mín kæra ♥
Dagný, 2.11.2011 kl. 16:25
Dagný mín: Kaupi líklega bara deig frá Jóa Fel til að fá smákökulyktina, svo sá ég að einhver góð kona er að selja Sörur, versla af henni bara... þær eru óumdeilanlega mín langveikasta hlið...
Ójá, þetta er svo gaman... og gott... og algerlega nauðsynlegt...
Hafðu það líka gott ljúfust
Jónína Dúadóttir, 2.11.2011 kl. 16:48
Ninna, þú ert svo mikill jólasveinn Maðurinn minn á líka afmæli í nóvember, og Lára litla líka, fullt af flottu fólki
Jóhanna Pálmadóttir, 2.11.2011 kl. 23:53
Jóka mín: Já einmitt, fullt af flottu fólki Og Addi og Helena og Svana og fleiri og fleiri
Já ég er algjör jólasveinn... ég veit það.....
Jónína Dúadóttir, 3.11.2011 kl. 00:19
Þú ert frábær þu færð mig alltaf til að brosa þegar ég kíki við.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2011 kl. 11:42
Ásdís mín: Æts... þakka þér fyrir mín kæra... gaman að vita það
Þú ert líka frábær
Jónína Dúadóttir, 3.11.2011 kl. 14:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.