Var á minni allra fyrstu skólaskemmtun/árshátíð barnabarns í gærköldi... það var gaman og þau stóðu sig stórkostlega, öll sem eitt Ömmudúllan mín hún Linda Björg er í fyrsta bekk svo þetta var líka hennar fyrsta skólaskemmtun... þau léku leikrit um Strumpana sem þau sömdu sjálf... með aðstoð kennara... Litlu systkinunum hennar fannst þetta bara alls ekkert gaman... Lára Rún sem er alveg að verða þriggja ára, sofnaði í fanginu á pabba sínum fyrir hlé og Rafael Hrafn 8 mánaða vildi bara vera einhversstaðar allsstaðar annarsstaðar, svo mamma hans fór með hann fram... en hún náði samt að sjá eldri dóttur sína leika öðruvísi Strump
Alveg að koma páskar og ég verð að fara að setja upp páskagluggatjöldin og allt páskaskrautið... nei, bíðum nú aðeins við... á ekkert svoleiðis og hef aldrei átt... Eina páskaskrautið sem ég hef samt alltaf er páskaeggið mitt... og já, að sjálfsögðu fæ ég páskaegg... Verð alveg í þriggja daga páskafríi þetta árið... ef ég tek ekki aukavaktir það er að segja... væri nú alveg vís til þess samt... en ætla nú að byrja bara á því að vinna þessa helgi... frá 9-22 báða dagana... það er fínt, ég verð á rólegu deildinni...
Núna er ég búin að vinna í 6 vikur eftir að ég kom úr 6 mánaða veikindafríi og á núna að fara að setja inn 6 vikna sumarfríið mitt í vaktaskýrsluna... mér er enn sem komið er alveg sama hvenær ég fer í sumarfrí... bara ekki líkt því strax... En til að sýna nú lit og gá hvort ég kynni á MTL sem er vaktaskýrslukerfið okkar... þá setti ég allan ágúst í sumarfrí... svo sé ég bara til með afganginn
Dásamlegt vorveður þessa dagana... helst kannski ekki alveg fram á haustið, en samt nóg til þess að létta manni lundina... er það ekki ?
Ég veð ekkert úr einu í annað... er það nokkuð ?
Góða helgi yndin mín öll... nær og fjær...
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 173098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndislegt að fylgjast með þessum elskum á skólaskemmtunum. Svo er bara allt í lagi að vaða úr einu í annað, þegar skemmtilegur penni á í hlut
Heilsan er það besta sem við eigum, þegar allt kemur til alls. Allt hitt er bara góð ábót.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2012 kl. 11:20
Ásthildur mín: Já þetta er svo flott og þau eru svo dugleg og samviskusöm
Takk mín elskuleg fyrir að kalla mig skemmtilegan penna...
Já... allt hitt er bara bónus...
Jónína Dúadóttir, 30.3.2012 kl. 12:43
Jónína mín.... þú ert skemmtilegur penni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2012 kl. 16:26
Oh my God.....
Það sker mig í hjartað að þú skulir uppnefna hið yndislega vaktaskýrslukerfi okkar og kalla það MTL..... þessi dásemd heitir MTP
Þú verð vel með þig meðan ég skrepp af landi brott og manst eftir "NEI" orðinu þegar verður hringt til að reyna að véla þig til að vinna aukavaktir
Unnur (IP-tala skráð) 30.3.2012 kl. 22:58
Ásthildur mín:
Jónína Dúadóttir, 31.3.2012 kl. 00:02
Unnur mín: Okkar heittelskaða vaktaskýrslukerfi versnaði ekkert þó ég uppnefndi það... og varð ekkert skemmtilegra við það heldur...
Góða ferð yndið mitt, góða skemmtun og knúsaðu Svíþjóð frá mér... þú verður ekki í vandræðum með það... Og ég skal reyna að nota þarna orðið sem ég er ekki alveg með á hreinu ef einhver reynir að véla mig til að vinna... er það ekki JÁ annars... ?
Jónína Dúadóttir, 31.3.2012 kl. 00:07
Yndislegt .Börnin eru best
Ragna Birgisdóttir, 31.3.2012 kl. 01:17
Ragna mín: Já það er alveg satt...
Jónína Dúadóttir, 31.3.2012 kl. 08:31
...það er ekkert ættgengt að vaða úr einu í annað heldur...
Jóhanna Pálmadóttir, 5.4.2012 kl. 14:41
Jóka mín: Nei er það nokkuð...
Jónína Dúadóttir, 6.4.2012 kl. 09:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.