... sérstaklega þegar það er ég sem er í sumarfríi ! Núna er ég á fimmta degi í sex vikna sumarfríinu mínu og nýt þess gjörsamlega í botn... !
Alveg önnum kafin við að gera lítið sem ekkert... og eingöngu það sem mig sjálfa langar prívat og persónulega að gera... Er til dæmis að prjóna gervi-lopapeysu* á Rafael Hrafn, yngsta barnabarnið mitt... Hann er eins árs síðan í júlí og er núna með Andreu mömmu sinni og stóru systrunum Lindu Björgu og Láru Rún í Sviss, að heimsækja móðurættina sína... og verður örugglega búinn að læra á labba... á svissnesku... þegar hann kemur heim
Er ekki búin að afreka neitt á þessum 5 dögum... enda ekki meiningin, frí eru til að hvílast og ég tek þessa hvíld mjög alvarlega... gekk nefnilega mestmegnis á þrjóskunni síðustu vikurnar í vinnunni fyrir frí... en segi auðvitað engum frá því...
Það hefur vandræðalega oft fylgt sumarfríunum mínum að akkúrat þá fara sólin og góða veðrið í frí líka... stundum verið rætt um að ég taki bara sumarfrí í nóvember-desember... enginn að búast við góðu veðri þá hvort sem er... En nú er öðru nær... eiginlega of gott veður... sem sagt þá verð ég að vökva lóðina sem tekur í allt um það bil 15 mínútur á dag... en það er nú bara frekar hæpið að ég komi því inn í mína þéttu dagskrá... af hvíldum, leti-legum*, rólegum labbitúrum og öðrum álíka stressvaldandi athöfnum sem ég stunda af miklum krafti...
Verslunarmannahelgin fer afskaplega rólega fram hjá mér eins og venjulega... jújú, það er margt fólk í bænum... það fer auðvitað ekkert fram hjá mér og ef allt fer vel og friðsamlega fram þá er það bara hið besta mál...
Það er samt ekkert meiningin að sitja og/eða liggja allt fríið... það er bara svona rétt fyrst á meðan ég er að ná mér upp aftur... Og þó ég sé ekki með neinar stórar áætlanir þá ætla ég samt að flækjast aðeins... fer að hreyfa mig svona rétt passlega áður en setu- og legusárin fara að gera vart við sig... ég hef nógan tíma...
Hafið það gott yndin mín öll... hvað svo sem þið eruð að gera og hvar sem þið eruð...
Kannski skrifa ég hérna aftur fljótlega... ef ég má þá vera að því....
*gervi-lopapeysa= peysa prjónuð alveg eftir fullorðins lopapeysuuppskrift... mínus sentimetramálin... úr einhverju mjúku beibígarni....
*leti-lega= þegar ég ligg í leti og nenni hvorki að hafa augun opin eða lokuð og nenni varla að anda heldur...
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 173098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svo gott að vera latur þegar maður þarf. Það er nú ekki langur göngutúr til mín, ef það er laus stund hjá þér. Er að byrja að prjóna smá aftur en vantar uppskrift af peysu sem er ekki lopi eða ullarband, ef ég færi í ull kæmi meidýraeyðirinn og aflúsaði gripinn sem mundi klóra sér og iðan út í eitt. Njóttu lífsins og sólarinnar Ninna mín.
Ásrún (IP-tala skráð) 5.8.2012 kl. 10:59
Ásrún mín: Ég er alltaf á leiðinni til þín... viðurkenni að ég er búin að vera lengi á leiðinni en á endanum hefst þetta Það er nú minnsta málið að reyna að aðstoða þig til þess að meindýraeyðirinn þurfi ekki að koma til þín... það er ekkert skemmtileg heimsókn
Við sjáumst fljótlega
Jónína Dúadóttir, 5.8.2012 kl. 11:14
Þú ert alltaf jafn yndisleg Ninna mín, verst að fá ekki að knúsa þig fyrir norðan um daginn, en koma tímar koma ráð. við hittums. Hafðu það gott í fríinu yndið mitt og gerðu bara það sem þig langar til að gera.
Ásdís Sigurðardóttir, 7.8.2012 kl. 17:36
Ásdís mín: Þakka þér elsku vinkona og sömuleiðis Já mér fannst líka fúlt að ná ekki á ykkur en eins og þú segir, það gerist
Takk yndið mitt, ég hef það allt of gott eiginlega... en ég á það skilið
Jónína Dúadóttir, 7.8.2012 kl. 21:42
satt segir þú, þú átt skilið að hafa það gott risaknús
Ásdís Sigurðardóttir, 8.8.2012 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.