Yngsta barnabarnið okkar, hún Linda Björg Keel Kristjánsdóttir, er tveggja ára í dag Til hamingju elsku dúllan
Amma hennar og afi frá Sviss, oma og opa, eru í heimsókn þessa viku. Þau komu á síðasta föstudag og á laugardeginum fóru sonur minn og tengdadóttir með þau heiðurshjónin á Gljúfurárrétt hérna úti í Höfðahverfinu, eins og lög gera ráð fyrir á réttardaginn. Þá vildi nú ekki betur til en svo, að mamma tengdadóttur minnar fótbrotnaði á réttunum og er í gifsi, með fjölskylduhækjurnar sem fasta förunauta. Þá sannaðist hið fornkveðna, nei nei það passar ekkert mér finnst þetta bara svo flott, sannaðist það sem maðurinn á Bjargi sagði mér í vetur, þegar hann ráðlagði mér að kaupa hækjurnar í staðinn fyrir að leigja þær : "Það er alveg bráðnauðsynlegt fyrir hverja fjölskyldu að eiga minnst eitt par af hækjum"! Ég gerði óspart grín að þessari yfirlýsingu hans í pistli hér á blogginu, en ég biðst afsökunar á því og eyði líklega bara þeim pistli
Annars er ekki mikið annað að frétta héðan, nema að það snjóaði í fjöll hér í gær..... brrrr.... En það var nú bara uppi í fjöllunum, rigndi sleitulaust hérna niðurfrá. Mér finnst rigningin góð og líður vel á meðan það snjóar ekki á mig. Lítið að gera í kvöldvinnunni, rétt aðeins skrepp í 1 1/2 - 2 tíma á kvöldi, en ég hef hlerað að það eigi nú eftir að lagast bráðlega. Eigið góðan dag í allan dag
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.10.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með skvísuna.
En hvað gerði konan til að fótbrotna,mig minnti að þetta væri ekki svo hættulegur staður
Birna Dúadóttir, 13.9.2007 kl. 07:46
Takk
Ég hef ekki spurt, en kannski gerðist þetta bara vegna þess að blessunin var algerlega ódrukkin. Hefði kannski betur sturtað í sig góðum slurk úr landapela í lopasokk, argað nokkra góða slagara með bændunum og verið svo skutlað heim á heyvagni með hnakkinn fyrir kodda.......
Jónína Dúadóttir, 13.9.2007 kl. 08:12
til hamingju með litlu dömuna
Ég vissi ekki að það væri svona hættulegt að fara í réttir þarna í Höfðahverfinu
Eins gott að muna það HAHAHA
Unnur R. H., 13.9.2007 kl. 08:16
Rosalega hefur maður verið heppinn að sleppa óbrotinn þaðan
Erna Evudóttir, 13.9.2007 kl. 09:26
Örugglega bara heppni og ekkert annað
Jónína Dúadóttir, 13.9.2007 kl. 12:12
Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.9.2007 kl. 17:23
Ég gleymdi náttúrulega að segja til hamingju med Lindu, sjokkið yfir að hafa næstum því fótbrotnað fyrir mörgum árum síðan, jú skil
Erna Evudóttir, 13.9.2007 kl. 17:26
Svona þegar ég rifja það upp.Þetta var lífshættulega gaman.Mar er vel sloppinn
Birna Dúadóttir, 13.9.2007 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.