Palli var einn í heiminum, en þá var allt í einu bankað.....
Færslan mín frá því í gær, um að kunna að þegja yfir leyndarmálum, virðist hafa komið illa við kaunin á ótrúlega mörgum, en enginn af þeim tjáir sig neitt um það hér, ég fæ bara spörk í kjötheimum
Fleiri en einn og fleiri en tveir, hafa skammað mig eins og hund fyrir að vera með prívat og persónulegar árásir og svívirðingar á sig. Það er auðvitað alls ekki rétt, en það má svo túlka eða jafnvel þýða pistilinn minn frá í gær, á alla vegu og heimfæra hann upp á sjálfan sig. Ég til dæmis heimfæri hann algerlega upp á mig og er líka alveg ferlega sár og móðguð
Ég skrifa það sem mér sýnist hverju sinni og stend við það og þeir sem vilja taka það til sín prívat og persónulega, er alveg innilega velkomið að gera það og þá auðvitað algerlega á minn kostnað
Framundan er fríhelgi hjá mér, ég er bara í fríi aðra hvora helgi og tek það sérstaklega fram svo það fari nú alls ekki fram hjá neinum, hvaða ofboðslega duglega kona er að skrifa hérna
Spúsi býður mér í leikhús á laugardagskvöldið, að sjá Fló á skinni og ég er þá að hugsa um að bjóða honum út að borða, annað hvort fyrir eða eftir sýningu, hvort heldur sem hann kýs, kemur í ljós... Ég var að passa Lindu litlu í gærkvöldi á meðan pabbi hennar og mamma fóru á þetta leikrit og þau voru himinsæl þegar þau komu heim, fannst sýningin æðisleg og leikararnir hreint frábærir og fóru allir algerlega á kostum. Þau, tengdadóttir mín samt aðallega, eru með gistiheimili og fá helling af gestum utan af landi, sem eru að koma til að fara einmitt á þessa sýningu, gaman að því. Njótið dagsins og verið góð við hvort annað og mig líka






Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skondið með þessa Palla
Skemmtu þér á Flónni,hrikalega skemmtilegt verk
Birna Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 08:36
Takk, geri það alveg örugglega
Jónína Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 08:43
Góða skemmtun í kvöld
Heiður Helgadóttir, 22.2.2008 kl. 15:55
Ég er ekki Palli...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.2.2008 kl. 16:14
Takk Heidi og Gunnar ég er nokkuð viss um að þú ert að segja satt
Jónína Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 16:45
Ohh.. fríhelgar eru bara úber súper. Vonandi áttu eftir að eiga góða helgi. Er viss um að þið eigið eftir að skemmta ykkur brilljant vel á Flónni og muna bara að stíga á hana áður en þið farið út þaðan - svona til að þið dragið ekki fló í bú eftirá. *klórklór*...
Tiger, 22.2.2008 kl. 18:11
HE HE SNILLDAR FÆRSLA
GÓÐA SKEMMTUNN Á FLÓNNI
Sigurður Hólmar Karlsson, 22.2.2008 kl. 18:44
Takk krúttin mín
Jónína Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.