Má ekki vera að neinu í dag, en þarf samt að gera helst allt... Það lítur alveg út fyrir að mjög svo önnum kafin manneskja sé að skrifa hérna, en það er nú ekki alveg rétt. Að vísu er ég búin að skrifa eina auglýsingu fyrir árshátíð og virkilega reyna að opna póst, sem ég þarf að fara yfir, en finn ekki í hvaða forriti hann var saminn, svo ég kemst ekki inn til að prófarkalesa ! Það er margt sem ég ætti svo sem að gera, ýmislegt sem ég þarf að gera og sumt sem mig langar til að gera og eitthvað af öllu þessu verður örugglega að veruleika áður en deginum líkur
Ég er nefnilega alltaf svo varkár í öllum yfirlýsingum til þess að vera ekki að segja eitthvað, sem ég svo get ekki eða vil ekki eða nenni ekki að standa við....
Ég held það geti alveg kallast heigulsháttur eða eitthvað annað svona miður fallegt.... Allt þetta bull er nú eiginlega bara til að breiða yfir þá staðreynd að mig langar svo svakalega til að segja frá því sem nú er um það bil að gerast hjá okkur, en það er ekki alveg búið að gerast þannig að mér finnst ég ekki geta sagt frá því strax... Seinna í dag samt...
Núna ætla ég að fara í það illyfirstíganlega verkefni að reyna að telja sjálfri mér trú um að ég kunni eitthvað að vinna í tölvu og fara í alvöru að finna út úr þessu með póstinn ! Svolítið kannski stórkellingaleg yfirlýsing þegar tekið er tillit til þess, að ég hringi auðvitað bara í mág minn og spyr hann hvernig ég eigi að opna þetta !
Njótið dagsins elskurnar og þá sérstaklega afmælisbarnið hún Birna systir mín !
Flokkur: Bloggar | 27.2.2008 | 07:55 (breytt kl. 08:21) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir það.Flottur dagur,ég sit hérna á skrifstofunni minni,skítkalt(inni)píparinn nennir ekki lengur að svara mér,allir ofnar kaldir
En flottur dagur samt.
Birna Dúadóttir, 27.2.2008 kl. 08:31
Til hamingju með Birnu... er einn svona afmælisdagur að bresta á hjá mér og er mér ekkert sértakt tilhlökkunarefni "to say the least"
Mundu það svo bara að letin er stórlega vanmetinn kostur. Flestar ef ekki allar nytsamar tækninýjungar eru tilkomnar fyrir tilstilli hennar... einfaldlega vegna þess að menn nenntu ekki að gera hlutina uppá gamla mátann svo....
Nú ef þú nærð síðan að rífa þig upp á rassgatinu þá mundu bara að "Vinnan göfðar manninn" sem annars er tóm tjara en það er allt annar málsháttur...
Kveðja í Heiðardalinn
Þorsteinn Gunnarsson, 27.2.2008 kl. 10:40
Þú er nú bara alltaf hrein snilld
.
Unnur R. H., 27.2.2008 kl. 11:31
Hva.... ertu að verða fertugur Steini minn ? Til hamingju !!
Takk Unnur mín, sömuleiðis
Birna


Jónína Dúadóttir, 27.2.2008 kl. 12:42
Tiger, 27.2.2008 kl. 13:12
Flott færsla eins og venjulega...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.2.2008 kl. 16:05
Til hamingju með systurina.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.2.2008 kl. 16:22
Tigercopper, það var alla vega einhver skrítinn fugl
Þakka þér fyrir Gunnar minn
Takk líka Ólöf
Jónína Dúadóttir, 27.2.2008 kl. 19:45
Já það fer að styttast í því að maður sér ekki rúmlega þrítugur lengur...
Þorsteinn Gunnarsson, 27.2.2008 kl. 22:44
Steini minn, ef þú sleppir nú allri smámunasemi þá endist "rúmlega þrítugur" alveg fram til 99 ára....
Jónína Dúadóttir, 28.2.2008 kl. 05:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.