... eða eitthvað svoleiðis... Svona tölur eru svo oft við sápuóperur, datt í hug að setja þetta við mína sápuinnréttingaróperu
Að vísu ekkert að gerast í þeim málum, nema bara að bíða og bíða og bíða..... og bíða aðeins meira, eftir að afhenda hús og fá afhent hús. Svo allt í einu verður allt komið á fullt skrið áður en ég veit af og skil ekkert til hvers ég er nú að sleppa mér út í þessa óþarfa óþolinmæði. Væri nær að eyða kröftunum í að pakka niður eða eitthvað álíka gáfulegt. Þess vegna sit ég auðvitað í tölvu frammi í eldhúsi, ennþá búandi í Fjallakofanum og var í uppáhalds orðaleiknum mínum, Bookworm og núna að blogga
Ég þarf að baka tvær tertur fyrir morgundaginn og það er minnsta málið í öllum heiminum, ég er búin að baka 2 botna og 2 marengs..... og öll veröldin hlær núna, ég keypti þetta auðvitað í Bónus ! Svo þeyti ég rjóma og sletti út í hann ávöxtum og súkkulaði, dúndra þessu á og þá eru komnar tvær þessar fínu tertur
Að vísu er nú eins og mig minni að það sé hægt að gera þetta einhvernvegin öðruvísi, eitthvað með að baka sjálf... iss nei nei nei, það hlýtur bara að vera einhver vitleysa í mér
Er að fara að passa örverpið í barnabarna hópnum okkar í kvöld, foreldrarnir, eldri sonur minn og hans ekta kvinna eru svo miklir sukkarar, að þau vilja geta komist út að minnsta kosti eitt kvöld í mánuði ! Svo koma þau alltaf heim rétt eftir að barnið sofnar svo að ég er yfirleitt ekki búin með nema hálfa blaðsíðu í bókinni sem ég er að lesa heima hjá þeim, þegar ég passa þar. Ég er komin á blaðsíðu 5 !
Þetta eru alvöru sukkarar verð ég að segja, skyldi vera til meðferð við þessu....
Ég er nú að hugsa um að fá bókina bara lánaða, annars verð ég ekki búin með hana fyrr en litla prinsessan mín fermist og líklega verð ég löngu hætt að þurfa að passa hana þá
Njótið þess að vera í fríi í dag, þeir sem eru svo heppnir að eiga frí og þar á meðal er ég








Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er nú að verða alvarlegt með Stjána og Andreu.Spurning um að leita sér aðstoðar
Birna Dúadóttir, 8.3.2008 kl. 13:17
Ég veit, hef miklar áhyggjur af þessu
Jónína Dúadóttir, 8.3.2008 kl. 13:24
Ég vinn bara a morgun og svo er ég komin í viku frí...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.3.2008 kl. 15:05
Cool
Birna Dúadóttir, 8.3.2008 kl. 15:37
Tiger, 8.3.2008 kl. 21:01
Luv you 2
Jónína Dúadóttir, 8.3.2008 kl. 23:08
Þau sukka bara jafn mikið og þú, hræðilegt ástand í þessari fjölskyldu
Erna Evudóttir, 9.3.2008 kl. 09:20
Já mér líður alveg agalega að hafa þetta fyrir þeim sko...
Jónína Dúadóttir, 9.3.2008 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.