Mér telst svo til....

... að með nýjustu eldsneytislækkuninni þá minnki olíukostnaðurinn hjá mér um heilar 140 krónur á mánuði.... farin til Florida fyrir sparnaðinn... eyði svo bara afganginum í einhverja vitleysu....Shocking Heldur þetta lið að við séum hálfvitar ? Bara við það eitt að nota orðið lækkun í staðinn fyrir hækkun, þá verði bara allir ofsalega glaðir....Pinch Ég ætla að selja jeppann minn, en ég ætla samt að eiga bíl. Nú þegar ég þarf ekki að keyra fjallvegi nema að eigin vali og mér til skemmtunar og óblandinnar ánægju, en ekki bara til að komast heim, þá þurfum nú við ekki að eiga tvo jeppa, en ég hjóla ekki ! Og ef ég ætlaði nú af einhverjum undarlegum ástæðum að fara að labba í vinnurnar mínar, þá mundi mér ekki endast sólarhringurinn til að komast á milli allra staðanna sem ég vinn áTounge  Þessa dagana erum við á fullu að flytja litla draslið okkar niður eftir í nýja húsið, mér finnst að vísu dótið okkar ekki vera drasl nema þegar ég þarf að hafa eitthvað fyrir því....Blush Ég er búin að henda svo miklu og margvíslegu dóti/drasli, undanfarið og er virkilega búin að njóta þess ! Og er ekkert hætt, bara ekki segja spúsa frá því, honum er farið að finnast nóg um held égWink  Núna á eftir ætla ég að taka niður öll stóru málverkin og myndirnar og búa til flutnings og kannski gera eitthvað fleira... eða ekkiWhistling   Njótið dagsins í dag, sem ég held að sé örugglega miðvikudagurSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Það er miðvikudagur - Góðan daginn

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.4.2008 kl. 07:15

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þakka þér fyrir og góðan daginn

Jónína Dúadóttir, 2.4.2008 kl. 07:43

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Gvöð hvað ég elska að flytja, noooootttttttttttttttttttttt

Erna Evudóttir, 2.4.2008 kl. 08:03

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi skinnið mitt, ertu byrjuð ?

Jónína Dúadóttir, 2.4.2008 kl. 08:11

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Nei ekkert voðalegaþykist eitthvað vera að pota í þetta

Erna Evudóttir, 2.4.2008 kl. 10:50

6 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Það er örugglega miðvikudagur. Vona að hann verði góður svo og þeir næstu. Mér líst vel á að þú seljir jeppann og fáðu þér bara einhvern sparneytinn.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 2.4.2008 kl. 20:56

7 Smámynd: Birna Dúadóttir

Selja Jappann,ertu galin.Gefðu frekar Ernu hann,hún er að flytja í dreifbýlið,sveitina

Birna Dúadóttir, 2.4.2008 kl. 21:42

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna sveitakona er svo flott á því að hún labbar út um allt

Jónína Dúadóttir, 2.4.2008 kl. 21:57

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

  Best ég fari líka til Flórída!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.4.2008 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband