Ég er búin að vera.....

... ekki samt alveg uppgefin "búin að vera"... Wink  Frekar svona búin að vera að rifja upp og finna ýmislegt gleymt og ferlega fyndið, undanfarna daga... haldandi til í geymslunni minni hérna, af öllum stöðumGetLost  Eitt af því sem ég er búin að finna er ryk, mælanlegt í tonnum held ég... sumt orðið minnst 7 ára gamalt, vegna þess að ég fann nefnilega nokkra kassa sem við höfðum bara alls ekkert opnað þegar við fluttum hingað og það eru sko 7 ár síðan það varTounge  Ussuss, ég bara bókstaflega týndist í rykskýinu þegar ég hreyfði þá og ekki batnaði það þegar ég herti mig upp og opnaði þá ! En margur er ríkari en hann hyggur og þarna fann ég ýmislegt sem ég var auðvitað löngu búin að gleyma að ég átti og virðist þá ekki vera alveg lífsnauðsynlegt að geyma eða hvað ? Og af því að ég er svo ferlega skynsöm, lesist löt, þá lokaði ég þeim bara aftur og fór fram á meðan rykskýið settist nógu mikið til þess að ég rataði þarna inni aftur. Stofan hérna í Fjallakofanum er mjög tómleg, bara sófinn og borðið og sjónvarpið... ok, fj.. sjónvarpið er alveg nógu stórt en það virkar samt eitthvað svo aumingjalegt, svona eitt uppi á veggGrin  Svo er auðvitað talvan líka eftir og hún verður auðvitað ekki hreyfð fyrr en kaffivélin og tannburstinn hafa "left the building"Cool Mér finnst asnalegt að skrifa tölvanBlush  En sama hvernig það er skrifað þá verður tölvan/talvan aldrei inni í stofu hjá mér aftur, ég snobbhænan ógurlega verð nefnilega með alveg spes tölvuver ! Það er að vísu bara eitt lítið herbergi í nýja húsinu en orðið er svo flott, tölvuverLoL Njótið dagsins elskurnar og kíkið endilega á nýjasta afrekið hans Gunnars bloggvinar míns, TopplistannSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Mér finnst líka skrýtið að skrifa Tölvan.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 4.4.2008 kl. 07:30

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi, takk Gunnar minn

Jónína Dúadóttir, 4.4.2008 kl. 07:35

3 Smámynd: Unnur R. H.

Ég er með fullan bílskúr af kössum, held að sumir hafi ekki verið opnaðir í 10 ár, eða síðan ég minn kall byrjuðum að búa. Þetta eru kassar bæði frá honum og mér og hef égekki hugmynd hvað þeir innihalda. Verð nú að fara að taka mig til og kíkja.

Unnur R. H., 4.4.2008 kl. 11:30

4 identicon

Langbest að taka svona kassa og henda þeim án þess að kíkja í þá hehe, annars stenst ég það aldrei, opna þá og upplifi þvílíka nostalgíuna tíhí..hvað er að frétta af háfnum annars?

kv neðan af eyri

Jokkuz

Jokka (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 11:37

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hæ Unnur, mundu að ryksuga þá fyrst ofan af þeim

Jókka mín: Ég get ekki staðist heldur að opna þá, þó ég eigi á hættu að fá asma eða eitthvað af rykinu Ekkert að frétta af háfnum, hann er örugglega ennþá að mótmæla olíuverðshækkunum einhversstaðar

Jónína Dúadóttir, 4.4.2008 kl. 11:47

6 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Ég á nú eitthvað af svona kössum sem ekki hafa verið hreyfðir fjöldamörg ár. Á hverju vori hef ég ætlað að fara í gegn um innihald þess, en ekki komið því í verk. Kannski best að opna þá ekki og keyra þetta bara í ruslagám.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 4.4.2008 kl. 13:19

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

.. ég er ein af þeim sem fæ gæsahúð ef fólk segir talvan í staðinn fyrir tölvan eða einkannir í stað einkunnir ...sorry sérviskuna, kannski af því ég er að vinna í skóla og þarf að passa að allir tali/skrifi rétt...   Gangi þér vel með kassana!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.4.2008 kl. 19:33

8 Smámynd: Júdas

Mér er sossem sama hvernig aðrir skrifa þetta en tölva er það heillin.  Verð nú samt að nefna það að þegar Max raftækjaverslunin opnaði fann ég að því að því við verslunarstjórann að á öllum tilboðsskiltum stóð "talva með..............".

Kannski er mér ekkert sama eftir allt saman en Jónína mín, þú mátt það!

Júdas, 4.4.2008 kl. 20:46

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóhanna: Ég segi aldrei einkannir og ég veit alveg að það á að segja tölva, mér finnst það bara ljótt orð Takk

Júdas minn: Skil þig, þú ert langbestur

Jónína Dúadóttir, 4.4.2008 kl. 22:12

10 Smámynd: Birna Dúadóttir

Andans dugnaður er þetta kona

Birna Dúadóttir, 4.4.2008 kl. 23:41

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Nauðsyn brýtur lög

Jónína Dúadóttir, 5.4.2008 kl. 06:03

12 Smámynd: Tiger

  Well, hún er sem sagt ekki búin - frúin. Gott að heyra það, enda tími til að slá smá í motturnar, rotturnar og rassakinnarnar... ehh... þannig séð náttúrulega. Það er eins og ég segi, þú ert bara föst í ryki og vesendi þarna í stússi einhvers staðar úti í buskanum - á meðan ég er hér í rólegheitum og sólskyni.. eða þannig! Mikið knús á þig kjeddlingin mín!

Tiger, 6.4.2008 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband