Mætt ! Og fer aldrei frá ykkur aftur elskurnar mínar !!!

Gvööööð hvað ég er búin að sakna ykkar allra Heart En nú er ég komin í samband við umheiminn og það er allt að þakka mínum gríðarlega langlundargeði og geigvænlega fattleysi Tounge  Það átti sko ekkert eftir að finna upp net og síma, það var bilun hérna inni í nýja húsinu okkarBlush  Og ég búin að rífast og skammast og..... sem sagt ekkert elskuð alveg á öllum vígstöðvum, nema greinilega hérna á blogginu, þið eruð æðisleg öll sem skrifuðuð kommentin hérna við síðustu færsluGrin Ég er búin að skemmta mér alveg stórkostlega yfir þeim núna á þessum 7 mínútum, sem liðnar eru frá því að ég kom heim úr vinnunni og sá að sím/fræðings/virkinn hafði komið og tengt netið, en ég kann samt ekki ennþá að fá són úr nýja símtækinu.... hefði kannski verið betra að henda ekki leiðbeiningunum alveg strax.... En pokarnir eru ennþá úti á palli, svo ég bara tek upp gamla pokakellingatakta og gref eftir leiðbeiningunum... seinna... Wink  Núna verð ég að fara aftur í fj... vinnuna, ég eiginlega nenni því ekki sko, miklu skemmtilegra að vera hérna heima og koma okkur fyrirInLove Það er svo mikið pláss að ég verð líklega að kaupa helling í staðinn fyrir allt sem ég er búin að henda, svona rétt til þess að það verði ekki algert tómahljóð í öllum skápumLoL  Hrikalega gaman að vera komin aftur til ykkar allra, á eftir að kíkja á bloggin ykkar þegar ég kem heim seinnipartinn, meira seinnaSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vííí velkomin í bloggheima!! oh búin að kíkja hérna oft á dag síðustu daga..hlakka til að heyra frá þér og hey! jafnvel sjá þig ;)

knús af Eyrinni

Jokkuz

Jokka (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 13:23

2 Smámynd: Tiger

  Ha?? Ert þú komin aftur hvað?? Hmm.... varstu í ferðalagi? Æi, skiptir svo sem litlu, er nýbyrjaður að lesa hjá þér - og leiðist bara helling - enda þekki ég þig náttúrulega ekki rassga.... u know, þannig séð.

  Auðvitað saknaði maður þín addna skapvonda pokakeddling. Ekkert fútt í að þurfa að koma hérna inn dögum saman til að skoða - ekki neitt - bara til að gleyma þér ekki addna.

  Næst þegar þú hverfur svona og skilur allt eftir í loftköstum - þá verður ýmislegt annað tekið upp en heimsóknir á tóma síðu sko! Þú ert eins og Zteini, u bring out the worst in me - nebbla maddömmu spanking!

Knús á þig ljúfan og velkomin í siðmenninguna og bloggheima. Vertu dugleg að verzla inn í tóma skápa svo ekki hverfi einhver vinurinn þinn eða vinkonan inn í einn slíkan - ekki það að skápafólk sé slæmt - ónei - yndislegasta fólk ever. Og, nei - ef þú ert að velta því fyrir þér - ég ætla ekki að fylla einhvern skápinn þinn - með sjálfum mér .. dream on dúskurinn minn! Knús og klemmerí.. 

Tiger, 11.4.2008 kl. 13:56

3 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Velkomin aftur í bloggheima. Mikið skil ég þig vel að vilja helst vera heima í nýja húsinu þínu og standsetja. Ekki kaupa of mikið að skápavöru. Verðum við ekki að fara að gæta okkar eftir umræður um peningamálin, krónuna, vextina og svo frv.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 11.4.2008 kl. 14:09

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jokka mín: Takk fyrir og það kemur að heimsókn, vona þér sé farið að líða betur

Högni minn: Ég saknaði þín líka

Ólöf mín: takk og jú ég er svo sem ekki í neinu verslunarstuði núna

Jónína Dúadóttir, 11.4.2008 kl. 15:11

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gaman að sjá þig aftur í bloggveröldinni góðu...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.4.2008 kl. 15:17

6 Smámynd: Erna Evudóttir

Velkomin í samband

Erna Evudóttir, 11.4.2008 kl. 15:31

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gunnar minn: Takk, mér finnst líka gaman að vera komin aftur

Erna mín: þakka þér fyrir

Jónína Dúadóttir, 11.4.2008 kl. 15:46

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Veeelkoooomin,ertu búin að fá kortið

Birna Dúadóttir, 11.4.2008 kl. 18:36

9 Smámynd: Júdas

Æ hvað það er gott að þú ert komin aftur....ekki það að ég hafi talið niður eða komið fýluferðir á síðuna   en ég saknaði þín samt .

Júdas, 11.4.2008 kl. 19:15

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Takk fyrir flott kort, falleg stelpa

Elsku Júdas minn: Ég saknaði þín líkaOg ég veit alveg að auðvitað hefurðu ekkert talið niður eða komið og kíkt

Jónína Dúadóttir, 12.4.2008 kl. 05:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband