Það væri gaman að vita það, vegna þess að þá get ég grobbað mig almennilega af því, hvað ég hélt á miklu magni af múrbroti út úr eldhúsinu okkar á sumardaginn fyrsta ! Það hljómar svona aðeins of groddalegt að segjast hafa haldið á heilu eldhúsgólfi.... flottara að segja xxx kíló... 16.4 m2 x 2 cm og reikniði svo
Ég fór á skyndihjálparnámskeið í gær og mér var svo andstyggilega illt í bakinu eftir að hafa haldið á heilu eldhúsgólfi, var ég nokkuð búin að nefna það ? að reyndi ekki einu sinni að hnoða lífi í æfingadúkkuna, leiðbeinandinn bauð samt 100 þúsund ef við gætum lífgað hana við ! Allir voða vitlausir og hömuðust á grey dúkkunni....
Ég var svakalega fegin að þetta var ekki lifandi manneskja sem ég hefði þurft að hnoða í gang.... hún hefði trúlega hrokkið uppaf
En samt hefði ég nú lagt það á mig að láta eins og ég væri ekki með neitt bak, ef þetta hefði verið í alvöru, maður gerir svoleiðis. Annars sagði mér ein gamlan sem ég kíki til á kvöldin, að ég þurfi ekkert námskeið til að halda hjartanu í henni gangandi. Hún hrekkur alltaf svo við þegar ég hringi dyrasímanum hjá henni, að hjartað í henni stoppar ekkert á næstunni segir hún. Elskurnar mínar, ef þið eruð hjá einhverjum sem fer í hjartastopp, trítlið þá bara niður í forstofuna í blokkinni og hringið dyrasímanum hjá viðkomandi... örskyndihjálparnámskeiðið búið, takk fyrir þátttökuna
Núna á eftir förum við og leigjum okkur iðnaðarryksugu til að þrífa eldhúsgólfið og svo steypum við í það í dag og flotum á morgun, þetta er að verða miklu raunverulegra og skemmtilegra núna, þegar við erum farin að byggja upp, í staðinn fyrir að brjóta endalaust niður
Njótið helgarinnar elskurnar mínar allar og brosið hringinn þó það snjói aðeins






Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi þér vel að byggja upp.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 26.4.2008 kl. 12:54
Snjór á Akureyri já......eftir sumardaginn fyrsta! Má það?
Júdas, 26.4.2008 kl. 13:11
Gott að vita að þú ert hætt að rífa og brjóta niður. Ágætt að vita að gamlar pokakerlingar geta bætt sig og séð að sér. Batnandi englum og það stúff. Enda ertu örugglega búin að gera nágranna þína alveg óða með þessum hamagangi. Reyndu nú að leggja alúð í að endurbyggja svo sómi sé að, verandi komin í svona fínt hverfi þýðir ekkert að haga sér eins og maður sé fjallaskessa sem veður í aur og látum um allt.
Tiger, 26.4.2008 kl. 14:00
Ólöf mín: Þakka þér fyrir
Júdas minn: Nei það má sko ekki !!!!
Högni minn: þú ert í besta falli ótrúlega bráðskemmtilegur og í versta falli ótrúlega bráðskemmtilegur
Heyrðu ég varð náttulega að kíkja á þennan dýrmæta gimstein sem þú varst að lýsa, hana systir þína
Þakka þér fyrir hamingjuóskirnar á mína, hún er alger dúlla líka
Knús og klemm á þig inn í kvöldið
Jónína Dúadóttir, 26.4.2008 kl. 16:44
kem kannski heim á morgun
Jokka (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 19:12
Jokka mín: Æði
Jónína Dúadóttir, 26.4.2008 kl. 20:16
Daginn.......
Júdas, 27.4.2008 kl. 08:31
Daginn...
Jónína Dúadóttir, 27.4.2008 kl. 08:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.