.... af mér og mínum, eftir gærdaginn. Að vísu þrifum við aðeins og gengum frá verkfærum og svona dóti og slugsuðum svo bara. Tókum á móti gestum og fórum á vorhátíð Síðuskóla, þrír dóttursynir spúsa eru í þeim skóla og við skoðuðum það sem þeir eru búnir að gera í vetur, alltaf gaman að fá að fylgjast aðeins með. Svo var selt kaffi og "meððí", allt of mikið úrval af tertum og kökum og alls konar góðgæti, glæsilegt að venju !
Ég fer og skila leiserVælinum á eftir, með ánægju og þarf svo að taka smástund í að afgreiða skattmann
Nei ég ætla ekki að stúta honum sko.... bara borga það sem ég hefði auðveldlega getað komist hjá að borga, ef ég hefði vit á að vera óheiðarleg og fattað að ljúga aðeins
En ég burðast greinilega ekki með nógu mikið af viti til þess að geta fundið upp á einhverju svoleiðis. Og það verður bara að hafa það, mér líður líka bara vel með þessum skorti mínum á svindlgeninu og finnst líka alltaf best, einfaldast og auðveldast að hafa allt á hreinu. Vitiði að ég svindla ekki einu sinni í kapli.... auðvitað á ég ekki að segja frá svona og svo sem ekkert líklegt að neinn trúi mér, en svona er þetta nú bara....
Nú er að byrja ný vinnuvika með engri kvöldvinnu og seinna í dag verður eldhúsgólfið flotað og á morgun byrjar Tengdasonur Rafvirki að töfra upp hin ýmsustu ljós og tengla og verður snöggur að
Hann er algjör perla þessi drengur og ekki ónýtt að eiga hann að og ekki bara í rafmagninu. Ég held hann geti allt og hann mætti alveg snerta mína háheilögu saumavél, ég veit nefnilega að hann hefur saumað gardínur og eflaust eitthvað fleira
Farin í Húsasmiðjuna ( dulin auglýsing ?
) Njótið dagsins og munið að hafa brosið með og gefa stefnuljós








Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegan mánudag mín kæra.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2008 kl. 08:10
Sömuleiðis Jenný mín
Jónína Dúadóttir, 28.4.2008 kl. 08:40
Er farin að vilja sjá þetta heimsfræga eldhúsgólf, sendu myndir þegar þið eruð hætt, ekki búin, þið verðið það sjálfsagt seint
Erna Evudóttir, 28.4.2008 kl. 10:45
komin heim
Jokka (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 12:02
Erna mín: ég skal senda myndir prontó..... eh seinna í dag samt..
Jókka mín: Velkomin heim
Jónína Dúadóttir, 28.4.2008 kl. 12:05
Er nokkuð vatnshalli á því,sko eldhúsgólfinu
Birna Dúadóttir, 28.4.2008 kl. 12:19
Ónei Birna mín, þetta er næstum því leiðinlega fullkomið hjá okkur
Jónína Dúadóttir, 28.4.2008 kl. 12:45
Tiger, 28.4.2008 kl. 14:13
Mér finnst BYKO betri en Húsasmiðjan!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.4.2008 kl. 19:33
Högni minn: Bíð spennt
Jóhanna mín: Leiservælirinn var bara til í Húsasmiðjunni, allt annað kaupum við í Byko
Jónína Dúadóttir, 28.4.2008 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.