Hér eru prik, um prik, frá prikum.....

Eitt af prikum dagsins fær hann sem fann upp verkjatöflurnar og annað fær svo hún sem fann upp hurðirnar ! Kyngreiningin í þessu er alveg rökrétt og verið ekkert að reyna að fá mig ofan af því....Tounge Karlmenn eru veikara kynið og þess vegna er rökrétt að þeir hafi fundið upp verkjatöflurCool Ég hef engan karlmann hitt enn sem komið er, sem er eins hrifinn af uppfinningunni "hurðir", eins og ég og ég er kona, svo það telst rökrétt að kona hafi fundið upp hurðirnarWink Verkjatöflurnar koma sér einstaklega vel þessa dagana, svo ég geti haldið áfram að þræla mér út bæði í vinnunum og nýja eldhúsinu okkar og verið sæmilega geðgóð á meðan. Hurðirnar koma sér svo sérlega vel um þessar mundir, vegna þess að ef ég loka herbergjunum hérna, með áðurnefndum hurðum, þá þarf ég ekki sífellt að vera að horfa á draslið sem er þar inni ! Miklu skemmtilegra útsýni þannig skal ég segja ykkur og aftur, ég get verið sæmilega geðgóð á meðanGrin  Helgarnar eru líka alveg ferlega flott uppfinning, sérstaklega þessar þriggja daga. Fyrir æðilöngu að mér finnst, voru þær eftirsóttar á þessu heimili til hvíldar eftir vinnuvikuna, núna eru þær svo vinsælar hér á bæ vegna þess að þá getum við unnið meira við að byggja upp eldhúsið og fáum frið fyrir vinnunum okkar á meðan. Að vísu er ég að vinna kvöldvinnu þessa viku, fram á sunnudagskvöld en á mánudaginn næsta gerist sá fáheyrði atburður, að ég á alveg frí allan daginn ! Ég er nú ekki búin að ákveða hvað ég geri við allt þetta frí.... sénsinn, hvað annað en eldhúsLoL Líði ykkur sem best í allan dag og verið dugleg að hæla öðrum... líka mérSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn heillin, ójá karlinn getur farið frá manni og börnin og peningarnir og heilsan og svo má lengi telja, en draslið fer sko aldrei eitt einasta fet frá manni

Jónína Dúadóttir, 9.5.2008 kl. 07:44

2 identicon

Það má líka taka sér frí frá draslinu, þá er bara að setja upp hestaskjólin og horfa í rétta átt hahahaha  eigðu góðan dag ljúfan

Jokka (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 08:44

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Elsku Jokka mín afmælisbarn dagsinsKysstu Orlando frá mér....

Kveðjur úr yndislegu drasli og rigningu

Jónína Dúadóttir, 9.5.2008 kl. 09:15

4 Smámynd: Tiger

  Karlmaðurinn fann upp verkjapillur vegna stanslausra hausverka kerlingarinnar - maðurinn þarf náttúrulega að fá sitt til að geta smíðað hurðar fyrir drasl hennar - ekki satt?

  Hurðir eru til ýmissa góðra verka - t.d. til að skella þeim á þá sem maður kærir sig ekki um í heimsókn. Nú eða bara til að skella á forvitnar pokakerlingar sem læðast um nágreni sitt og reynir að komast inn á gafl hjá manni. Nú svo má líka loka óþekkar forpokaðar kerlingar inni á baði - með hraði - án súkkulaði.

  Mér finnst alveg óforskammað af þér að vera að væla um frídaga - og hvað þá alveg heilan dag sko! Reyndu bara að sýna ábyrgð og stattu þig í gamalmennaparadís. Þú getur fengið nóg af frídögum þegar þú er komin á ellilaun - sem eru náttúrulega bara nokkra metra frá þér miss púkó. Sendi samt eitt pínu pons ör-knús innfyrir dyrina þína (lesist auðvitað hurðina þína)... *knock-knock*...

Tiger, 9.5.2008 kl. 14:15

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Högni minn: Það var svo sem auðvitað að það væri uppi á þér typp...

Góða helgi vitleysingurinn þinn

Jónína Dúadóttir, 9.5.2008 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband