Sem betur fer þjáist ég ekki af ofskynjunum.... eða ranghugmyndum... held ég
Ég er frekar jafnlynd og glaðleg í eðli mínu og á auðvelt með að umgangast fólk, ekkert grobb neitt, bara upptalning á staðreyndum ! Ég lít samt ekki á mig sem eitthvað kraftaverkameðal eða guðs gjöf til handa þeim sem þjást af depurð... það náttulega væru hreint ægilega ofskynjaðar ranghugmyndir ! Og neita líka að láta nota mig þannig. Það getur hreinlega gert út af við þá, sem þjást af þunglyndi og/eða depurð að þurfa að umgangast svona manneskju eins og mig, sem tek það mjög alvarlega að láta eins og fíbbl í vinnunni...
Rétt rúmlega fertugur maður sem greindist með MS sjúkdóminn fyrir þrítugt, er mjög dapur þessa dagana.... lái honum hver sem vill. Það passar þá ekki að leggja áheyrslu á að reyna að peppa hann upp með alls konar hálfvitagangi og sögum af frísku fólki, sem getur allflest sem það langar að gera og kemst allra sinna ferða án hjólastóls... Mér finnst það nálgast mannvonsku að láta sér detta það í hug og ég tek ekki þátt í því... Stundum vita blessaðir sérfræðingarnir ekkert utan bókanna...
Ef þessi góði maður vill bara lesa blaðið á meðan ég er að þrífa hjá honum, þá má hann það sko alveg ! Ég get ekkert sagt eða gert og neita að reyna það, til að fá hann sætta sig við að vera að lamast hægt og rólega, missa sjón og ýmislegt fleira sem við hin sem erum í frískari kantinum, teljum alltof sjálfsagt að hafa... Vildi samt óska þess að ég gæti sagt eða gert eitthvað sem að gagni mundi koma....
Þetta er meiriháttar náungi, var rétt að ljúka námi í iðn sem hann hafði áhuga á að stunda þegar hann greindist með þetta helvíti... Yfirleitt er ég ekki reið út í neitt eða neinn en ég get orðið örmagna af reiði í garð svona sjúkdóma... og í garð sumra sérfræðinga líka sem sjá bara sjúkdómstilfellið, en ekki manneskjuna sem þarf að burðast með sjúkdóminn...
Æi eigið góðan dag elskurnar mínar allar og munið aðgát í nærveru sálar






Flokkur: Bloggar | 21.5.2008 | 08:13 (breytt kl. 09:00) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þakka þér fyrir vina, mér finnst bara ekki hægt að sjá þetta öðruvísi....
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 08:20
Vissi það
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 09:05
Æh þetta er svo sorglegt og óréttlátt
svo er maður að væla yfir e-hverjum smáatriðum fnusss
en þetta er fallegur pistill hjá þér elskan mín, vona þú eigir góðan dag í sólinni 
Jokka (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 09:07
Ekki hef ég nú heyrt þig væla Jokka mín
Þakka þér fyrir dúllan mín og eigðu líka góðan og sólríkan dag
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 09:16
Falleg grein, nærvera og hlustun góðrar manneskju (eins og þín) er held ég það sem gefur mest þeim sem á þurfa. Flest orð verða hjákátleg þegar verið er að reyna að peppa í svona tilfellum. Það þarf a.m.k. að fara varlega eins og þú segir sjálf.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.5.2008 kl. 11:58
Falleg grein
Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.5.2008 kl. 12:13
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 12:14
Jóhanna mín: Ekki veit ég nú hversu góð ég er, en mér finnst þetta eiginlega bara rökrétt....
Gunnar minn: Þakka þér fyrir
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 12:34
En, nú verð ég að fara aðeins inn á smíðastofu - þarf aðeins að láta pússa nebbann minn... þoli ekki hvað fargins nefið tútnar út þegar ég er að reyna að vera góður við aðra - eins og ég núna við þig. En, þú ert best .. úfff .. nú tútnaði nefið heldur betur marrr. Ég verð að láta lækni líta á þetta fyrirbæri.
Tiger, 21.5.2008 kl. 16:05
Högni minn: Kærar þakkir, ég verð að fá að hugsa mig um.... þetta kemur svo á óvart....
ok, hvar og hvenær ?
Hefur þú séð myndbandið um Fiskinn ? Ekki námskeið í fiskverkun samt, heldur um menn sem vinna á fiskmarkaði einhversstaðar í USA, sem leiddist í vinnunni og fundu það út að það er alveg hægt að hafa gaman í vinnunni, meira að segja á fiskmarkaði. Syngja og gefa börnum nammi og kasta á milli sín fiskinum... láta eins og fíbbl í vinnunni... eins og ég geri
En það eru samt takmörk
Vantar þig góða sög á nefið ?
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 19:50
Hvar er myndin af þér ?
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.5.2008 kl. 20:00
Hvaða mynd ?
Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 21:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.