Hætt !?!

Nei nei, ég er ekkert hætt að kíkja á bloggið, bara mikið að geraWink Þarf að fara út og slá lóðina núna en nenni því eiginlega varla. Nota það sem afsökun að klukkan er nú ekki einu sinni orðin 8 og það er auðvitað dónaskapur  að vekja nágrannana með hávaðanum í sláttuvélinni, sem er rafdrifin á loftpúðum og framleiðir engan sérstakan hávaða. Og svo er kannski kalt úti... veit það að vísu ekki af því að útihitamælirinn liggur ennþá inni á borðstofuborði... Ekki get ég farið út á náttsloppnum til að taka veðrið... hvað mundu nágrannarnir hugsa...Errm Þessir sem ennþá hljóta að vera sofandi fyrst það þarf að fara hljóðlega við garðsláttinn...Whistling En af því að ég er ekkert mikið gefin fyrir að taka áhættur í lífinu, þá doka ég stund og blogga bara á meðanTounge Þegar byggingavöruverslunin okkar opnar núna klukkan tíu förum við og náum í eldhúsbekkplötuna og skellum henni á, setjum hurðir á skápa, höldur á hurðir og ég veit ekki hvað og hvað.... Veit ekki hversu langt við komumst í dag en ég er svooooo farin að hlakka til að sjá þetta tilbúiðHeart Við erum með tvo stærri efri skápa með glerhurðum, ég vildi ekki hafa hurðir með heilum rúðum frekar svona franskar, en þá komu auðvitað hurðir með heilum rúðumShocking Ég bara nenni ekki að skipta á þeim svo ég ætla að láta útbúa filmu í báðar hurðirnar, eins og glerið sé hamrað og láta skera skúffukökuuppskriftina mína í aðra og kleinuuppskriftina í hina, kannski með minni skrift ekki búin að ákveða það. Maður tekur ekkert svona mikilvæga ákvörðun í einu stökki skiljiði....Grin Eigið yndislegan dag elskurnar mínar allarSmile Áfram ÍslandWizard

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Evudóttir

Áfram Innbæingar

Erna Evudóttir, 24.5.2008 kl. 08:32

2 Smámynd: Einar Indriðason

Það þarf nú ekki að breyta þessari blogg færslu þinni mikið til að vera komin með handrit að einum þætti í sápunni okkar

Einar Indriðason, 24.5.2008 kl. 09:31

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín: Ég var að hugsa um að skrifa áfram Innbæingar en hélt það gæti misskilist

Einar minn: Episod 789 af 2597 í burðarliðnum, sendur út í fyrramálið

Jónína Dúadóttir, 24.5.2008 kl. 09:47

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Áfram Ísland...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.5.2008 kl. 11:03

5 identicon

Vííí áfram Ísland   það vildi ég að mínir nágrannar væru jafn tillitssamir og þú vina mín, ég meina ég bý í 30m langri götu og það búa hér jeppakarlar og mótorhjólamenn sem eru mjöööög árisulir og vilja helst þenja græjurnar í 5 mínútur áður en þeir mokast út úr götunni... 

Eigðu góðan dag og við sjáumst í kvöld

Jokka (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 11:23

6 identicon

Ef ég man rétt áttu góðar uppskriftir.Eru þeir þarna fyrir sunnan að endur hanna innréttinguna Þ'INA?

Bergdís Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 11:27

7 Smámynd: Tiger

  Mahhrrrrr .. sú klikkaða á náttsloppnum - ofanúr fjöllum - er komin út að slá blettinn. Gat hún nú ekki í það minnsta tekið hárrúllurnar úr sér áður þó hún sé enn á sloppnum og kanínuinniskónum bleiku???

Jamm, nú þarf sko að taka tillit til fleiri en bara fuglanna og skordýranna - nú ertu sko með alvöru nágranna sem gera veður - jafnvel óveður - ef þú hleypur út á náttgörmunum einum saman. Ertu ekki örugglega farin að draga fyrir gluggana á kvöldin þegar  þú ert að stripplast á súlunni - rétt svona til að blessaðir nágrannar þínir límist nú ekki of fast á gluggana þína??? Hope so sko ..

  Annars er mér so sem sama þó þú dragir ekki fyrir strippdansinn - ég fæ kvossimer ekkert að sjá, enda ekki með nógu sterk gleraugu til að setja mig inn í verknaðinn - hvað þá að ég sé nágranni - búandi hinu megin við heiðarnar.

  Gott að vita að þú ert ennþá í smíðavinnunni - eins gott að halda vel áfram svo ekki lendir ekki í vandræðum á ellilaunum í uppbyggingu. Enda myndu þau ekki hrökkva fyrir svona sérviskuhugdettum eins og uppskriftagluggafilmuflippi ... hvað þá öðru.

Farðu nú að koma fargins hitamælinum - út í kuldann - og hafðu mælinn fastan við eldhúsgluggann til að hlífa nágrönnum við því að þú sért að hlaupa um nágrennið með rúllur - í kanínuinniskóm og náttslopp - í leit af hita/kulda mælum til að taka hitann/kuldann..

  Pínkuponsu knús á þig svona í lokin mín ljúfa dúfa - og eigðu yndislega helgi (lesist - spark í rassinn og reyndu svo að gera eitthvað af viti um helgina)...

Tiger, 24.5.2008 kl. 14:43

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Búkolla mín: Fínt veður hérna, engin sól en bara hlýtt

Gunnar minn: Áfram Ísland

Jokka mín: Það má alltaf ljúga upp á sig góðmennsku... til að afsaka letina  Sjáumst í kvöld

Dísa mín: Ég á þær allar ennþá og tek þær bestu í notkun í nýju eldhúsi

Högni minn: RÚLLUR Hvað dettur þér næst í hug ????? Faðm til þín samt

Jónína Dúadóttir, 24.5.2008 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband