Hættulegt hverfi .... ?

Það lítur ekkert sérstaklega vel út þegar lögreglubíll með bláum blikkandi ljósum stendur hérna fyrir framan húsið okkar á laugardagskvöldi og það tvisvar sama kvöldið....Police Að vísu voru þeir nú ekki að koma hingað til okkar að skakka neina leika, þeir voru að stöðva ökumenn fyrir of hraðan akstur, þetta er íbúðagata ekki hraðbraut... asnarBanditVið búum við mikla umferðargötu og stundum er bensín/olíugjöfin troðin aðeins of langt ofaní gólfið, af fólki sem virðist halda að það sé svo miklu mikilvægara en allir aðrir og það skipti aðalmáli í lífinu að komast 1/2 til 1 mínútu fyrr en ella, á áætlaðan stað. Verulega bjánalegt... og kostnaðarsamt og ég ætla ekki að fara neitt út í umræðuna um hversu hættulegt það getur svo líka veriðGetLostÉg fór út núna á laugardagsmorgun og byrjaði að slá lóðina okkar... með áheyrslu á orðið "byrjaði". Ponsulitla babysláttuvélin mín, sem dugði svo fínt á litlu lóðina okkar í Fjallinu, lagðist grenjandi niður og neitaði alfarið að djöflast hérna í hnéháu grasinu og núna á eftir verður henni skipt út fyrir fullorðna vél með drifi á öllum, svo ég þurfi ekki að ýta henni áfram og poka, svo ég þurfi ekki að raka lóðinaGrinEins og sést svo greinilega þá reyni ég allt til að auka sjálfri mér letiWhistlingÉg er komin í sumarfrí frá kvöldvinnunni þangað til 16. júní og vinn dagvinnuna út þessa viku og er þá komin í tveggja vikna frí og í dag er rétt rúm vika þangað til við förum til GautaborgarWizardNjótið góða veðursins eins og kostur er og gangi ykkur vel í nýrri vinnuvikuSmile Pé ess: Setti inn nýjar myndir af nýjustu afrekunum okkarGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn í blíðuna til þín líka

Jónína Dúadóttir, 26.5.2008 kl. 07:30

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góðan daginn - ég er búinn að skoða myndirnar

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.5.2008 kl. 08:17

3 identicon

Úberflottar myndir af flottu eldhúsi

Jokka (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 08:35

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn Gunnar minn, þakka þér fyrir að skoða myndirnar

Takk Jokka mín og gangi þér vel

Jónína Dúadóttir, 26.5.2008 kl. 09:59

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Mér finnst nú Jói flottari en skápurinn og hitt grejsogmojsið í skápnum, skilaðu því til hans

Erna Evudóttir, 26.5.2008 kl. 14:13

6 Smámynd: Tiger

   Döhhh.. gat nú verið. Liggur kerlingin nú á glugganum og njósnar um nágranna og kallar á lögguna í hvert sinn sem eitthvað er í gangi!! Hvers eiga vesalings spíttararnir að gjalda? Mega þeir ekki bara spítta í og kála hund og kött í Guðs friði? Dragðu bara fyrir og hættessu forvitnisstari á allt sem gerist í hverfinu.

  Og sko.. kannski maður ætti að biðja yfirvaldið um að kíkja í garðinn þinn Solla stirða, hugsanlega mætti finna þig í fjöru - á hraðvirkri olíuslátturvél á ofsa hraða um hvern hól. Passaðu bara sjálf að vera ekki með bensíntakkann í botni - gætir endað í nágrannagarðinum.

  Og bara svo þú vitir það - að þá nenni ég ekki að kíkja á myndirnar þínar og því get ég ekki sagt þér að mér finnst þetta æðislegt hjá ykkur! Og fílukallinn undir hörmungarflykkinu - ég er saklaus af honum, enda hef ég ekkert farið að skoða myndirnar ...

  Farru svo bara til úglanda bráðum, mér er alveg samma sko! (lesist; ömurlegt að þurfa að hanga heima í allt sumar og öfund í ykkur að fara svona snemma)... en mér er allleg samma! Grýti samt eins og einu litlu kremjuknúsi yfir heiðarnar - og ef þú sérð það - láttu það þá í friði - áttðaekkert!

Tiger, 26.5.2008 kl. 14:34

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín: Ég skal skila því

Högni minn: Ég elska þig líkaLeiðinlegt að þú skulir ekki vilja skoða myndirnar, þá mundir þú sjá hvað þetta er að verða fíntNáði kremjuknúsinu, það er merkt mér

Jónína Dúadóttir, 26.5.2008 kl. 15:02

8 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Innlit

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.5.2008 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband