Góðan daginn....

... kæru landar og aðrir nærsveitamennTounge Það er óvenju lítið af hörmungum í fréttunum í dag eða er ég bara orðin ónæm ? Æi, ég vona ekki.... ef ég er orðinn ónæm fyrir ógæfu og erfiðleikum annarra, er þá ekki eitthvað lítið eftir að mannlegu eðli í mér ? Blush Ég sem get ekki horft á hvaða mynd sem er í sjónvarpi eða bíó, þó ég viti að það er leikið efni... ef það er ofbeldi eða önnur ógeðslegheit, þá fer ég fram eða í besta falli loka augunum. Það er mikið gert grín að mér fyrir þetta og hefur alltaf verið gert, en mér er alveg sama. Mér finnst allt of mikið til af ofbeldi í hinum raunverulega heimi, þó það sé ekki búið til svokallað skemmtiefni úr því líkaPinch Eldhúsmyndir eru þær myndir kallaðar sem mér finnast of ofbeldisfullar og ljótar, af því að þá hætti ég að horfa og fer fram í eldhús ! Svona er ég nú mikill vesalingur ... Og þá vitiði það ! Cool Annars er ég ekki í skemmtilegasta djobbinu núna... ég er að skrifa vinnuskýrslur fyrir maímánuð og það finnst mér alveg hreint þrautleiðinlegt...Shocking Þetta eru fjórar tegundir af skýrslum sem ég þarf að skila og blöðin eru alltaf í kringum 30.... En ég er alveg að verða búin, það er sól úti, þvotturinn sem ég gleymdi að taka inn í gærkvöldi er ennþá þurr og ég er að fara suður á morgun og gista hjá Birnu systir, sem er æðislegtInLove  áður en við förum til Gautaborgar, sem er líka æðislegt !Heart Njótið dagsins kæru landar og aðrir nærsveitamennSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Evudóttir

Til hamingju með sumarfríið og leikinn í gærkvöldi og gistingu hjá Birnu og ferðina til Gautaborgar og útskriftina hjá Kötu Það er bara tóm hamingja í gangi hjá þér, til hamingju með það

Erna Evudóttir, 2.6.2008 kl. 07:06

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín: Takk og takk og takk og takk og takkOg takk fyrir

Hallgerður mín: Þakka þér og sömuleiðis

Jónína Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 07:30

3 identicon

Sömuleiðis eigðu góðan dag ljúfan

Jokka (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 08:36

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Búkolla mín: Já lífið er ljúft

Jokka mín: Þakka þér fyrir elskuleg

Jónína Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 08:44

5 Smámynd: Heiður Helgadóttir

 Coffee DrinkerGóðan daginn Jónína mín!

Skil svo vel að þú horfir ekki á hvað sem er, en ég loka alltaf augunum þegar að eitthvað óhuggulegt er í sjónvarpinu, eins og til dæmis blóðugir uppskurðir. Let’s See A MovieAnnars elska ég spennandi myndir, svona myndir þar sem að ekki kemst upp um vonda kallinn, fyrr en á síðustu mínútu myndarinnar. Til hamingju með væntanlegt sumarfrí, ef að veðrið helst svona gott, þá áttu framundar meiri háttar daga í Gautaborg.kveðjur 





Heiður Helgadóttir, 2.6.2008 kl. 09:48

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ég hef líka svona eldhús-púða-loka augunum viðmót gagnvart sumum ógeðslega fáránlega ljótum myndum

Birna Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 12:16

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Heidi mín: Ég er líka hrifin af spennumyndumOg ég hef trú á að veðrið í Svíþjóð verði gott, nú ef ekki þá verður bara að hafa það... við höfum samt gaman 

Birna mín: Skyldi þetta vera ættgengt ?

Jónína Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 12:44

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fór bara allt á reiðiskjálf á meðan ég var í burtu .. róast um leið og ég kem heim! .. Já Góðan daginn!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.6.2008 kl. 13:56

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóhanna mín: Já, góðan daginn, viltu bara vera svo góð að vera heimaþú hefur svo róandi áhrif

Jónína Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 14:01

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Sjáðu til þess að Birna kveiki ljósið...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.6.2008 kl. 15:39

11 Smámynd: Birna Dúadóttir

Birtuskilyrði geta verið svo misjöfn

Birna Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 20:00

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gunnar minn: Ég skal gera mitt besta

Birna mín: Kemur í ljós.... á morgun

Jónína Dúadóttir, 3.6.2008 kl. 00:04

13 Smámynd: Tiger

  Já farðu bara kelling ... eða ertu ekki annars að fara? Take me with you?? *hvolpaaugu*... if not - then don´t return! There is no sakn over here...

Tiger, 4.6.2008 kl. 02:05

14 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Hæ sætust! Langar bara að benda á að það er hægt að skreppa í dagsferð frá Gautaborg til Jönköping  Tekur bara 2 tíma ca með lest...

Jóhanna Pálmadóttir, 5.6.2008 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband