Ég er sem sagt í sumarfríi, en er samt ennþá með þessa tilfinningu að ég þurfi að mæta klukkan þetta eða hitt einhversstaðar.... vinnan mín er svo mikið svoleiðis. Þessi tilfinning hverfur líklega ekki alveg ef ég þekki sjálfa mig rétt, það er samt í sjálfu sér allt í lagi að líða þannig, það er svo gaman þegar ég fatta að þetta er bara hugsanavilla... ein af mörgum
Setti áðan inn mynd af eyjunni í eldhúsinu, við fengum borðplötuna á hana í gær og keyptum okkur líka stóla, á meðan við vorum að bíða eftir því að restin af steypunni þornaði á svefnherbergisgólfinu. Núna heitir það að gólfið er "tilbúið undir veggmálningu" og svo kemur parketið
Það dugar ekki að slá slöku við í sumarfríinu... eða er það nokkuð ?
Ég er búin að setja dagsetningu á verklok hérna : 12. júlí, 12.45
"Bara aþþí bara" líklega ekkert að marka samt, var spurð að því af virðulegum lögfræðingi og gat ekki með nokkru móti sleppt því að svara með álíka virðulegum hætti..... alveg þekkt fyrir það, hvað ég er virðuleg
Eigið dásamlegan dag elskurnar, ég er að fara að mála... þegar ég er búin að fá mér aðeins meira kaffi..... og líta kannski svo sem einn blogghring... og kíkja á það helsta í fréttum... ég er í nú sumarfríi






Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Maí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sumarfrí og sumarfrí.. er þetta ekki frekar afstætt í þínu tilviki :)
hafðu góðan dag í málingunni
Helga Auðunsdóttir, 25.6.2008 kl. 08:29
Góðan daginn Helga mín
Ehh jú ég er líklega ekki alltaf að skilja þetta frí-dæmi alveg rétt, en hef mér til afsökunar að ég hef alltaf verið í vinnu í öllum sumarfríum síðan um miðja síðustu öld
En svo lengi lærir sem lifir
Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 08:46
Jamm Jónína, ég þekki þessa tilfinningu mæta vel, enda vissi ég ekki hvað sumarfrí var lengst af, en ég er að fatta þetta stundum :) en þetta lærist við verðum góðar á elliheimilinu
Helga Auðunsdóttir, 25.6.2008 kl. 09:29
Ragna mín, ég er strax farin að hlakka til

Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 09:29
Helga mín, það verður ógissssslega gaman hjá okkur á elliheimilinu
Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 09:32
Eldhúsið þitt er glæsilegt,töff stólar
Birna Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 09:35
Tekur alltaf smá tíma að vinda ofan af rútínunni .. og svo finnst manni að það þurfi að nýta alla daga svo ,,fjandi" vel .. gleymir stundum að gera ekki neitt og njóta þess að rolast í leti.. og vera með fætur uppí sófa - eða þannig.
Ætla að leita að myndunum þínum! ..
p.s. takk fyrir atkvæðið .. ég er farin að telja og það er komið 1 (það er byrjunin)
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 25.6.2008 kl. 10:32
Verklok 12.júlí..með pomp og prakt væntanlega
lúðrasveit og kampavín
ég býst þá við boðskorti og rauðum dregli hahahaha 
Þarf! að fara að hitta þig hehe...
Jokka (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 11:21
Ninna ei nennir að vinna
nema þá húsinu að sinna
Og aldraðir bíða
bognir af kvíða
að breytingum brátt taki að linna
En þau engu þurfa að kvíða
því þreytan úr Ninnu mun líða
Með gólf öll úr stáli,
steypu og áli
hún fljótlega fær sér að "sofa"
Kveðja í Heiðardalinn
Þorsteinn Gunnarsson, 25.6.2008 kl. 11:22
Njóttu dagsins, vikunnar og mánaðarins.
Vei.
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.6.2008 kl. 11:32
Birna mín: Æts takk
Jóhanna mín: Kem til með að rolast aðeins inni á milli.... eins og núna
Jokka mín: Boðskortið er í prentun, sjáumst
Steini minn: Takk fyrir þetta, æðislegt
Þú stefnir hraðbyr í listamannalaun
Jenný mín: Sömuleiðis takk og farðu vel með þig
Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 12:30
Heiður Helgadóttir, 25.6.2008 kl. 12:39
Heidi mín: Fj... sumarfrí alltaf á fólki, nennir þetta ekkert að vinna
Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 13:09
Flott vísan hans Þorsteins, hann stefnir áræðanlega á listarmannalaun.
Hafðu það gott og farðu út og njóttu veðursins. Það varir kannski ekki lengi.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 25.6.2008 kl. 19:49
Ólöf mín: Hann Steini er bara snillingur
Fer út núna og labba hring, eigðu gott kvöld heillin
Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 20:43
Skrítið þetta með sumarfrí, maður mætir þreyttari í vinnu eftir frí en áður en maður fór í frí!!
Himmalingur, 26.6.2008 kl. 00:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.