Þarf að leiðrétta smá misskilning.....
Ég vinnvið heimaþjónustu sem felur í sér hjálp við venjuleg húsverk og annað tilfallandi inni á heimilum, hjá fólki sem sökum annað hvort elli eða einhverra annarra leiðinda á erfitt með að gera hlutina sjálft. Þó ég sé búin að vinna við þetta í tíu ár og þyki varið í vinnuna mína þá er þetta ekki áhugamál
Þrif eru ekki áhugamál, þetta er vinnan mín og fyrir alla muni ekki og ég endurtek, ekki vera að bjóða mér á einhverjar sápu og klúta og fötu og skrúbbakynningar bara af því að ég vinn við þetta
Takk fyrir....
Við erum að eignast þetta fína "söddnubergi" eins og það hét heima hjá okkur í gamla daga, búin að mála, búin að leggja parket og hálfnuð að setja gólflistana. Þurfum að lækka hurðarkarminn af því að gólfið er lægra núna og förum í dag og pöntum fataskápa frá sama stað og eldhúsinnréttinguna. Svo verðum við að setja upp rimlagardínur vegna þess að rétt fyrir utan gluggann er töluvert mikið notaður gangstígur og þó ég sé ekkert voðalega feimin, þá eru nú takmörk fyrir athyglissýkinni í mér....
Það er dásamlegt veður úti og ég er að verða nokkuð viss um að það er geitungabú hérna við húsið, það er að verða dálítið grunsamlegt hvað einu flugurnar sem álpast hérna inn líkjast mikið geitungum
Mér finnst þær dónalegar að vaða svona inn óboðnar, ekki er ég að troðast inn hjá þeim
Að þessu bulli skrifuðu óska ég þess að allir eigi eins góðan dag og mér finnst vera í vændum hjá mér








Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Maí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flott hvað það gengur vel með söddnubergið
En ég bara skil ekki akkuru þú vilt ekki fara á svona fötu-tusku-skítskynningu

Birna Dúadóttir, 27.6.2008 kl. 08:30
Birna mín: Nei þú skilur það ekki...ég er kannski bara svona vanþakklát
Ragna mín: Góðan daginn mín kæra
Hvar vinnur þú ?
Jónína Dúadóttir, 27.6.2008 kl. 09:02
Hva!
Hefurðu ekki áhuga á tuskum og sápum?
Ekki ég heldur.
Geitungar eru ekki góðir nágrannar
Til hamingju með hjónaherbergið
Dísa (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 09:21
Dísa mín: Þakka þér fyrir mín kæra
Jónína Dúadóttir, 27.6.2008 kl. 09:31
Heiður Helgadóttir, 27.6.2008 kl. 10:07
Heidi mín: Já segðu....
Jónína Dúadóttir, 27.6.2008 kl. 10:09
Geitungar..geit-ungar..eruð það nokkuð kiðlingar?
nei segi bara svona, meiri óþjóðalýðurinn sem kemur óboðinn í heimsókn, þó þeir heiti geitungar..
Eigðu góðan dag sömuleiðis
Jokka (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 10:56
Kannski bara spurning um að rukka inn
Birna Dúadóttir, 27.6.2008 kl. 11:06
Er vinnan ekki áhugamál? Ég er svo aldeilis hissa, hélt að það væri kannske hægt að bjóða þér í kaffi og þú tækir með þér fötu-tusku skítsett og sæir um að losa mig við skít
. Geitungar eru mesti óþjóðalýður, kunna enga mannasiði og troða sér þar sem troðið verður. Eitur á draslið!
(en ekki gerða það sjálf þó ég efist ekki um að þú gætir)
Sigríður Jóhannsdóttir, 27.6.2008 kl. 11:48
gera átti það að vera, ekki gerða
Sigríður Jóhannsdóttir, 27.6.2008 kl. 12:03
Jokka mín: Geitaungar væru velkomnir og svo þú líka
Birna mín: Jú góð hugmynd, ætti ég að láta þá borga í hunangi ?
Hallgerður mín: Þakka þér fyrir, alltaf svo ljúft að láta dást að sér
Búkolla kemur mér fyrir sjónir sem aðlaðandi kvenskörungur, hef aldrei séð hana samt, bara lesið
Sigga mín: Jú mundi kannski gefa mér tíma fyrir smá kaffisopa á meðan ég mundaði skítagræjurnar
Neibb ekki hugsjón, ekki áhugamál, bara nokkuð vel borguð vinna
Veistu ég mundi með ánægju eitra sjálf fyrir kvikindunum, ef ég vissi hvar væri hægt að finna búið þeirra
Jónína Dúadóttir, 27.6.2008 kl. 12:36
Jónína mín það er nú ekki víst að geitungarnir eigi bú hjá þér bara komi í heimsókn því þú sér með betri mat handa þeim. Í fyrra sumar var eitt geitungabúi hjá mér sem var staðsett rétt fyrir utan eldhúsgluggan minn. Ég hafði ekkert orðið vör við geitungana, en frétti svo að kona í raðhúsinu í G íbúðinni ( ég er í A) hefði verið farðinn að leita á sinni lóð eftir búi, þar sem hún hafði orðið svo mikið vör við geitunga hjá sér. Ætli þeir fari ekki dálítið frá búunum til að þau finnist ekki. Kannski eru þetta svo vitur skordýr.Það var tilviljun að búið fannst og ég læddist út með myndavélina og myndaði það áður en meindýraeyðirinn losaði mig við það. Góða helgi.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.6.2008 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.