... ef við erum ekki bara farin að sjá fyrir endann á framkvæmdunum hérna... í biliVið fluttum rúmið okkar inn í nýja svefnherbergið í gærkvöldi. Herbergið er stórt 19 fermetrar og rúmið, sem er enn sem komið er eina húsgagnið þar inni, er eins og krækiber í helv..... en það má alveg venjast því
Mig er farið að vanta tilfinnanlega fataskápana, þeir koma í næstu viku vonandi og þá get ég farið að "pakka upp", loksins ! Í íbúðinni okkar í Fjallakofanum vorum við með þrjá glugga, stofu- eldhús- og svefnherbergisglugga, hérna í þessu húsi eru þrettán gluggar og dökk trérimlatjöld fyrir sjö af þeim og þeir eru yndislega stórir.... en allt með þykku ryklagi eftir hamagang síðustu þriggja mánaða......
Tók mig til í gærmorgun og þreif þessi tvö sem eru í stofunni og ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort er leiðinlegra, að þrífa rimlatjöld eða mála. Ég ætla að reyna að komast að niðurstöðu í dag, á meðan ég þríf þessi 5 sem eru eftir
Ja hérna, sólin er aðeins að gægjast...
nei nei, hún fór aftur....
Var að hugsa um það áðan hvað heimilisstörf, sem hafa aldrei verið uppáhaldið mitt en eru alveg bráð andsk.. nauðsynleg samt, eru algerlega ósýnilegt starf. Þannig að það sést alveg ef það er ekki unnið, en það tekst ekki eins vel eftir því ef það er unnið sæmilega sómasamlegaKannski er það þess vegna sem ég hef aldrei getað fundið mig í því starfi... vantar athyglina.... úps...
En jæja, ég er nú samt sem betur fer meira þannig að mér nægir að vera ánægð sjálf með það sem ég geri og er bara nokkuð dugleg að hæla sjálfri mér... einhver verður að gera það
Með þessa ómetanlegu speki sendi ég ykkur inn í daginn og vona að ykkur öllum líði sem best, sem lengst
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er nú meiri dugnaðurinn hjá ykkur. Hvernig er það vantar ykkur ekki góðan og fallegan kallhund. Systir mín sem að býr á Akureyri er með aukahund, fallegan strák sem að heitir Jökull, hann er nokkra mánaða og algjör rúsína, og mér skilst að honum vanti góða foreldra
fólk sem að er gott við dýr.Mér datt í hug að aðstoða hana við leit hennar að góðu heimili. Eigðu góðann dag mín kæra

Heiður Helgadóttir, 28.6.2008 kl. 08:14
Góðan daginn heillin mín, sama og þegið en, nei takk mig vantar alls ekki hund
En ég skal láta þig vita ef ég rekst á einhvern sem langar í hund
Jónína Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 08:18
Þrif eru ekki skemmtileg, sammála því og þrif í rimlum eru þó það leiðinlegasta. Gangi þér vel baráttan við þessa fimm
Sigríður Jóhannsdóttir, 28.6.2008 kl. 10:30
Góðan daginn Ragna mín, æi já en ofsalega gaman þegar það er búið
Og vina mín, það ert þú sem ert hetjan
Jónína Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 10:32
Sigga mín: Takk fyrir það mín kæra, ég held þetta sé jafnvel leiðinlegra en að mála og nú á ég bara eftir fjórar
Jónína Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 10:38
Spurning um að sleppa rimlunum bara, þá þarf ekki að þurrka af þeim
Eigðu góðan dag sömuleiðis heillin
Jokka (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 11:00
Hvað á svo að gera næst?
Erna Evudóttir, 28.6.2008 kl. 11:25
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2008 kl. 11:36
Jokka mín: Frábær hugmynd, af hverju varstu ekki búin að segja mér þetta fyrr ?

Erna mín: Ekki segja neinum, en ég var rétt í þessu að ákveða að mála borðstofuna... og er byrjuð
Jónína Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 11:36
Jenný mín:
Jónína Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 11:37
Jónína mín, ertu ekki bara fíkill, svona málníngarfíkill, er ekki hægt að hjálp við þessum ósköpum
Heiður Helgadóttir, 28.6.2008 kl. 13:00
Að þrífa rimlagardínur fær mitt atkvæði sem einn af leiðinlegustu hlutum í heimi að gera! ... Miklu skárra að mála..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.6.2008 kl. 16:26
Hún er ekki bara Húsmóðir;Útivinnandi,heldur Iðnaðarmaður líka
Birna Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 16:53
Þú ert ótrúleg ljúfan í miðju „rimlaþrifakafi“ ferðu að mála, aftur!
Sigríður Jóhannsdóttir, 28.6.2008 kl. 21:11
Bara gaman að mála, ef einkver tekur svo til eftir mann. Rimlaþvottur er leiðinlegur.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 28.6.2008 kl. 21:17
Heidi mín: Hæ, ég heiti Jónína og er laumumálningarfíkill.....

Jóhanna mín: Ég er alveg á báðum áttum sko
Birna mín: Jú en bara fyrir mig, tek ekki að mér vekefni.... held ég
Sigga mín: Jú en sko, veggirnir voru líka skítugir og mig langaði svo að fara að laga til í borðstofunni og..... sko fíni glerskápurinn fer svo vel við nýmálaða veggina

Ólöf mín: Það er kannski málið... við málið, það er alltaf ég sem þarf að þrífa eftir okkur bæði
Spúsi minn vill bara henda og kaupa nýtt
Jónína Dúadóttir, 28.6.2008 kl. 22:28
Ninna mín ertu haldin sjálfspíningarkvöt
eða ertu bara að mæla þolmörkin hjá þér?


Dísa (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 23:22
Dísa mín, ég held ég sé orðin svona agalega snobbuð.....
Jónína Dúadóttir, 29.6.2008 kl. 07:59
Nei, Ninna mín ég held þú verðir aldrei snobbuð
Sigríður Jóhannsdóttir, 29.6.2008 kl. 11:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.