Næstu dagana....

... blogga ég örugglega bara um gott veður, svo þið getið þá kannski alveg eins farið bara inn á veðurstofan.is... ef það er tilTounge Kom því loksins í verk í gær að skila restinni af eldhúsinnréttingunni, þá rýmkaðist aðeins hérna inni í tölvuverinuWink Ætlaði líka að heimta með frekju, að fá haldið á síðasta skápinn... það er nú eiginlega komið að frekjunni sko, það er að verða svo svakalega langt síðan ég bað um þetta... en ég gleymdi þvíPinch Hélt nú ekki að vinnan mín væri neitt svo voðalega stressvaldandi, en um leið og ég byrjaði að vinna aftur fór ég að verða eins og einhver hefði misst hrærivél á yfirsnúningi inn í hausinn á mér og ég gleymi og fatta ekki og athyglisgáfan langt úti á túni....Blush Skyldi ég ekki geta fengið örorkubætur út á þetta ? Mér sýnist nefnilega af fréttum að það eigi að fara að skella einhverri upphæð í málefni öryrkja og af því að frekjan í mér er til umræðu, þá verð ég að segja að mér finnst upphæðin alls ekki nógu há, það er búið að svelta þetta málefni svo lengi. Og svakalega svíður það svo að vita, að töluvert af þessari upphæð fer beinustu leið til  gerviöryrkjanna... þeir eru til, ég veit það og þið vitið það. Fólk sem hefur tekist að arga sig inn á bætur, en getur alveg unnið og gert allt sem það langar til og þarf að gera, vinnur svart, svíkur það allt undan skatti og kvartar svo yfir því að bæturnar séu ekki nógu háarShocking Það er svoleiðis fólk sem kemur óorði á þá sem  virkilega í alvöru, neyðast til að þiggja þessar aumingjalegu lúsabætur og geta barasta alls ekkert unnið og aukið með því tekjur sínar, hvorki löglega né ólöglega.....Angry Áður en ég missi mig alveg og geri veðurstofan.is að mun skemmtilegri lesningu en bloggið mitt, ætla ég að óska ykkur öllum góðs dags og góðs veðursSmile    

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svei mér þá..held það sé blíða á eyrinni líka  og þú ert skemmtilegri en vedur.is (ójá það er til) eigðu góðan dag heillin

Jokka (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 09:01

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jokka mín: Það er alltaf blíðan ein þar sem þú ert

Jónína Dúadóttir, 23.7.2008 kl. 09:25

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Alltaf gott að vita hvernig veðrið er .. var hrærivélin nokkuð mjög þung annars ?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.7.2008 kl. 21:16

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Búkolla mín: Nákvæmlega

Jóhanna mín: Vissi það nefnilegaEkkert voðalega þung hrærivél sko

Jónína Dúadóttir, 23.7.2008 kl. 21:32

5 identicon

Til hamingju með góða veðrið:)

Regína í Reykjavík (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 23:15

6 Smámynd: Heiður Helgadóttir

 MapSá að þú varst nýkomin úr hringferð, hér skín sólin, vona að þið njótið hennar líka á Akureyri. 





Heiður Helgadóttir, 24.7.2008 kl. 08:05

7 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Sól, sól, sól, trallala. Sjáumst heillin og hafðu það gott!

Sigríður Jóhannsdóttir, 24.7.2008 kl. 09:42

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Regína mín: Þakka þér fyrir

Heidi mín: Sólin er búin að skína töluvert hér í dag, ekki núna að vísu

Sigga mín: Mitt trallalla átti að koma í morgun, en netið lá niðriHafðu það gott líka, sjáumst hressar

Jónína Dúadóttir, 24.7.2008 kl. 17:29

9 Smámynd: Júdas

Sól já..........hún er nú hérna í borginni líka..........hinum megin við rigningarskýin!

Júdas, 24.7.2008 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband