Nú er lífið að komast í svona nokkurnveginn eðlilegt horf í kringum mig... kominn þriðjudagur í svona mánudagslíki, frekar kalt úti, allir gestir farnir, spúsi að byrja að vinna í dag eftir sumarfrí og ég ætla að fara og sækja borðtölvuna mína á verkstæðið og setja þessa óhemjuleiðinlegu fartölvu mína þangað í staðinn
Að vísu er ég nú ekkert að fara að vinna líkt því strax, það er ekki eins og maður nenni því
Ég fór til læknisins á sunnudagsmorguninn og hann tók saumana úr...
Það var alveg ógeðslega vont og þegar hann var búinn að leita lengi að endanum á einum saumnum og neglurnar á mér voru löngu komnar í gegnum leðurlíkið á bekknum og langt ofan í svampinn þar undir, sagði hann við mig þá fallegustu setningu sem hefur verið sögð við mig lengi : "Ég er búinn" ! Ég var líka búin.... að vera, þarna í augnablikinu ! En ég er nú líka vesalingur af Guðs náð, það er ekki hægt að ljúga neinu öðru upp á mig
Fór líka heim og lagði mig í fjóra tíma og missti þar af leiðandi af "smá" kaffiboði í fermingarveislulíki hjá Siggu móðu.... rsystur minni, en eins og hennar var von og vísan þá hringdi hún í gær og bauð mér í afgangana. Afgangarnir hjá henni Siggu móðu.... rsystur minni líta sko ekkert út eins og afgangar af neinu....
Þannig að ég er góð og lífið líka
Eigum góðan dag og reynum að láta gott af okkur leiða..... þó ekki sé nema að brosa framan í ruslakarlinn eins og ég gerði áðan, út um gluggann hérna í tölvuherberginu mínu.... honum snarbrá að vísu







Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Maí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað á það að þýða að bregða ruslakallinum svona
Birna Dúadóttir, 5.8.2008 kl. 07:23
Æi ég var bara að vera almennileg

Jónína Dúadóttir, 5.8.2008 kl. 07:28
Ertu svona voðaleg í framan heillin mín?
Sigríður Jóhannsdóttir, 5.8.2008 kl. 07:57
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.8.2008 kl. 09:20
Sigga mín: Sko já, ég bara gleymdi mér þarna smástund....
Komdu bara og sjáðu, ég á alltaf kaffi
Jenný mín:
Jónína Dúadóttir, 5.8.2008 kl. 09:37
Ertu með einhverja fordóma út í öskukalla?
Erna Evudóttir, 5.8.2008 kl. 10:25
Aldrei að vita nema marr kíki í te eftir að þú ert búin að sækja tölvudýrið þitt
marr er jú í sumarfríi skoh hahaha 
Jokka (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 10:57
Erna mín: Nehei sko, mér er alveg einstaklega vel við alla sem laga til eftir mig
Verð bara að muna að brosa ekki án stóru sólgleraugnanna minna næst..... þeir koma annars alltaf klukkan 6 á mánudagsmorgnum.....
Jónína Dúadóttir, 5.8.2008 kl. 10:59
Jokka mín: Komdu hvenær sem er

Jónína Dúadóttir, 5.8.2008 kl. 11:01
Jahá, ertu farin að gera hosur þínar grænar fyrir ruslakallinum.
Heiður Helgadóttir, 6.8.2008 kl. 03:26
Útsaumuð afganga bítur,
andlitsfríð þegar hún lítur
í spegillinn góða
en setur svo hljóða...
Í Botox part II síðan þýtur
Kv. í Heiðardalinn
Þorsteinn Gunnarsson, 6.8.2008 kl. 17:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.