Engin pólitík hér.....

... nenni henni ekki, sérstaklega ekki þessa dagana... læt aðra um það...Wink  Það er örugglega margt gott gert á þeim vettvangi og væri nú gaman að fá að vita meira um það jákvæða, en ekki samt bara korteri fyrir kosningarWoundering Ég hef lítið sem ekkert verið í vinnunni síðan í endann á júní og núna eru "gömlurnar mínar" farnar að hringja í röðum...Wink Flestar eru bara að gá hvernig ég hef það, en inn á milli eru svona frekjutruntur sem er alveg sama hvernig mér líður, hafa meiri áhuga á hvernig rykinu þeirra líður. Í gær hringdi ein, sem ég er búin að biðja um að fá að hætta hjá og henni fannst  að ég gæti nú bara alveg komið til hennar og þrifið, þó ég væri í veikindafríi...Shocking Hún er nefnilega búin að bíta það í sig að ég vinni betur en allar aðrar, sem er auðvitað bara helíum rugl... Ég veit að vísu fyrir víst, að ég geri betur en sumar sem vinna þessa vinnu, þannig er á öllum vinnustöðum auðvitað, en alls ekkert betur en megnið af þeim. Hún vill ekki fá neina aðra og setur ýmislegt fyrir sig... ein var meira að segja of stór...LoL Einn dag í viku er ég á 2 heimilum sem mig langar að hætta á, þetta er annað þeirra og er búin að biðja um breytingu, en ekkert gerist... Ég er ekki nógu frek, en það má alveg laga það, nú eða fara í plan B... minnka aðeins við mig vinnuna og hætta að vinna akkúrat þann dag, vinna dagvinnuna bara 4 daga í vikuWhistling Nóg komið, eigið yndislegan dag þið öll þarna úti og munið að hamingjan er ekki endastöð, hún er í hverju augnabliki fyrir sigSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Flottur dagur í dag

Birna Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 09:29

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús úr rigninarglegu veðri í borg HB.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2008 kl. 09:41

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Hann er það

Jenný mín: Knús með helmingnum af þessar litlu sólarglætu hérna, alveg spes handa þér

Jónína Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 10:07

4 identicon

Líst vel á þetta plan hjá þér, þetta er álíka og að neita að versla í matvörubúðinni ef rétta manneskjan er ekki að vinna á kassanum  

Takk fyrir mig í gær, sjáumst fljótt aftur

Knús

Jokka (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 10:17

5 Smámynd: Einar Indriðason

Svo gætirðu skipt um vinnu?  Mér skilst að staða borgarstjóra í Reykjavík losni von bráðar?  (Að vísu... það er kannski ekki alveg atvinnuöryggið þarna, sko.)

Einar Indriðason, 16.8.2008 kl. 10:45

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

Skiptir kannski ekki öllu máli með atvinnuöryggið,biðlaun og annað bæta það uppmér finnst þú ættir að sækja um

Birna Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 10:51

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín: Knús til bakaOg flott hjá þér að minnka við þig vinnu, það er takmarkað hvað má slíta sér út... ef maður þarf þess ekki

Jokka mín: Já er það ekki bara ?Takk sömuleiðis og sjáumst ljúfan mín

Einar minn: Ekki svo galin hugmynd

Birna mín: Segðu... kannski ég ætti bara að skella mér í þetta

Jónína Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 11:13

8 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Skelltu þér í þetta, yrðir flottur borgarstjóri! Hafðu það gott ljúfust!

Sigríður Jóhannsdóttir, 16.8.2008 kl. 11:21

9 Smámynd: Erna Evudóttir

Ninna borgarstjóri, sounds good

Erna Evudóttir, 16.8.2008 kl. 11:25

10 Smámynd: Birna Dúadóttir

Fetar þá í fótspor hreppstjórans í Gilinu

Birna Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 12:01

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sigga mín: Þakka þér fyrirHafðu það líka gott mín kæra og ég sendi þér róandi knúsin í búnkunum akkúrat núnaÁfram Ísland

Erna mín: Já finnst þér það ekki

Birna mín: Ekki ónýtt það

Jónína Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 12:58

12 Smámynd: Skattborgari

Þú ert allavega ekki skítseyði eins og flestir þessara aðila sem virðast leita stólinn uppi. Þannig að það væri ágætt að fá nýtt blóð inn.

Kveðja Skattborgari. 

Skattborgari, 16.8.2008 kl. 13:25

13 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Takk fyrir knúsin Ninna mín, ég er pollróleg, allt þér að þakka. Bara eitt undir í hálfleik, höfum séð það svartara. Áfram Ísland!

Sigríður Jóhannsdóttir, 16.8.2008 kl. 13:28

14 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Skattborgari góður: Þakka þér fyrir hólið

Sigga mín: Ég er viss um að þú hefðir hvort sem er verið alveg róleg allan tímann

Jónína Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 18:17

15 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Jónína mín .Ég er ekkert hissa þó fólk vilji fá þig í vinnu, hef reynslu af því sjálf. Verst að þú ert að vinna á brekkunni svo ég á litla von um að fá þig.  Farðu bara fram á að vinna í 603 og gerðu það að skilyrði að vinna hjá mér. Það eru allt of margar þessar ungu sem ekki kunna að þrífa. Hafðu það gott ljúfan.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 16.8.2008 kl. 21:34

16 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ólöf mín: Þakka þér fyrir falleg orðGóð hugmynd, mér fannst nefnilega  bæði gaman og yndislegt að vera hjá þérHaf þú það líka gott

Jónína Dúadóttir, 16.8.2008 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband