Loksins kominn föstudagur... enn einu sinni... notalegt að sitja inni í hlýjunni og dunda mér við að gera bara alls ekkert af viti...
Svolítið þreytt eftir vikuna... en það lagast
Biði ekki í það ef ég ætti lítil börn með þessu öllu saman...
Ég ætla að fara út úr þessu húsi um hádegið og koma ekki aftur fyrr en ég er búin að klára jólainnkaupin... jólagardínurnar og síðustu jólagjafirnar í verslun RL, frímerkin á jólakortin (takk Ólöf mín) og aðrar lífsnauðsynjar í Bónus og eyða svo afganginum í vitleysu... það er að segja afganginum af tímanum til klukkan 5... ef hann verður þá einhver
Spúsi á eldhúsið þessa vikuna, af því að ég er að vinna á kvöldin og hann er orðinn fínasti kokkur skal ég segja ykkur, ber fram hverja veislumáltíðina á fætur annarri
Eiginlega bara búin að hóta honum fastráðningu
Blogga ekki um stjórnmál eða fréttir en verð samt að segja að blessaður gamli maðurinn hann D. Oddson á gullmola vikunnar... eða kolamola ef þið viljið það frekar... "Ef þið leyfið mér ekki að vera áfram í Seðlabankanum, þá fer ég bara aftur út í stjórnmálin"
Oh boy, ég skelf á beinunum...
Þegar ég las þetta um daginn datt mér fyrst í hug hrokafullur, mjög virkur alkóhólisti og þegar ég las þetta svo aftur, þá datt mér aftur í hug hrokafullur, mjög virkur alkóhólisti sem hefur virkilega mikla þörf fyrir alla þá hjálp sem hann getur fengið
En kannski er ég að misskilja þetta eitthvað og blessaður gamli maðurinn virkilega að meina eitthvað allt annað en hann sagði
Eigið góðan og blessaðan dag elskurnar mínar allar, ég ætla að fara að skrifa innkaupalista













Flokkur: Bloggar | 6.12.2008 | 08:47 (breytt kl. 08:49) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 173250
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragna mín: Þakka þér fyrir ljúfan mín og eigðu líka góðan dag

Jónína Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 09:56
Eigðu góðan dag mín kæra
Já hann Dabbi sko, þegar ég heyrði þetta fannst mér þetta snilldar kaldhæðni hjá honum,enda gripu allir andann á lofti flisss
Og svo hugsaði ég hvort skyldi vera betra að hafa hann á þingi eða seðlabanka?
Ætla samt að hugsa um eitthvað allt annað en hann í dag
Líney, 6.12.2008 kl. 09:58
Gangi þér vel í jólaundirbúning
Huld S. Ringsted, 6.12.2008 kl. 10:02
Líney mín: Ég ætla sko líka að hugsa um allt annað en hann í dag
Mamma þín og pabbi komu í kaffi í fyrradag, alltaf jafn yndislegt að hitta þau
Eigðu góðan dag í jólastússi ljúfan
Jónína Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 10:03
Huld mín: Þakka þér fyrir og sömuleiðis
Jónína Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 10:04
Dabbi kallinn,snilldar ljóska
Birna Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 11:15
Birna mín: Góð
Jónína Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 11:17
Passaðu þig á innkaupunum
Já hann Dabbi. Eigðu góða helgi
Kristín Gunnarsdóttir, 6.12.2008 kl. 12:07
Krúttkveðja norður
Ásdís Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 12:10
Kristín mín: Ég passa mig sko
Góða helgi
Ásdís mín: Krúttkveðjan meðtekin og önnur á leiðinni til þín

Jónína Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 12:18
Mér þótti þetta svolítið fyndið, ég skelf ekkert á beinunum en þetta held ég að hafi hitt nákvæmlega það sem það átti að hitta, Geir
. Geir ræður hver er í SB en hann ræður ekki hver verður formaður Sjallanna
. Dabbi sagði nákvæmlega það sem ég vissi, hann heldur SB-stöðunni með valdi
Hurðu gangi þér jólagjafakaupin vel, ég er hins vegar að setja seríurnar úti, eða réttara sagt minn betri helmingur, ég er bara pen og sæt húsmóðir og sit við tölvu og hugsa um hvort ég eigi að henda í eins og eina sort

Sigríður Jóhannsdóttir, 6.12.2008 kl. 12:41
Sigga mín: Held hreinlega að þú hafir rétt fyrir þér
Gangi þér vel að hugsa og slugsa pena, sæta dúllan mín

Jónína Dúadóttir, 6.12.2008 kl. 12:51
, 6.12.2008 kl. 12:59
Sé ég þig ekki í kvöld???
Jokka (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 13:28
Mér finnst Davíð vera áhugaverður maður... en ég myndi aldrei kjósa hann.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 6.12.2008 kl. 23:18
Dagný mín:
Jokka mín: Eeeee... líklega ekki... eða var það nokkuð....
Kom uppgefin heim úr vinnu rétt fyrir 10... 

Gunnar minn: Hann er vissulega eftirtektarverður náungi, það vantar nú ekki
Segi það með þér, hef aldrei kosið hann og mun aldrei kjósa hann
Jónína Dúadóttir, 7.12.2008 kl. 08:30
Flott að við séum sammála... ég vissi það. Mér finnst ég þekkja þig
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.12.2008 kl. 20:28
Gunnar minn: Eins með mig, mér finnst ég alveg þekkja þig... eina sem er að við höfum aldrei hist
Jónína Dúadóttir, 7.12.2008 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.