Smákökubakstur í gær eftir vinnu, bara gaman og sonardóttir mín Linda Björg þriggja ára, fór á kostum eins og við var að búast
Hún var alltaf að smakka deigið og þegar ég vildi ekki smakka líka, þá huggaði hún mig með því að það væri allt í lagi að smakka aðeins, mamma hennar sagði það. Þegar ég fór að breiða út þurfti hún auðvitað að hjálpa mér, með sitt eigið kökukefli... ég ætlaði eitthvað að segja henni til, en hló bara að mér: "Amma mín, ég kann´etta sko alleg... ér orrin hriggjára"
Ég reyndi líka að segja henni að ég ætlaði nú aðeins að stjórna þessu, en: "Neinei amma mín, mamma skjórnar"
Eldhúsið hjá henni tengdadóttur minni leit út eftir baksturinn, eins og hveitipoki hefði sprungið þar í loft upp, með látum... alveg makalaust hvað svona litlar verur geta komið miklu í verk á stuttum tíma
Þegar ég fór, ráðlagði sú stutta mér að fara skrax að sofa þegar ég kæmi heim, annars fengi ég ekkert í skóinn... "amma mín" á auðvitað að vera með í öllu
Ég fór ekkert skrax að sofa, enda fékk ég ekkert í skóinn, en kannski var það að hluta til vegna þess að ég setti hann ekki út í glugga
Laufabrauð á sunnudaginn... í mínu eldhúsi
Þetta er bara gaman og yndislegast af öllu að hafa lítinn engil til að njóta þess með
Ég bið ykkur vel að lifa og óska þess að þið öll eigið góða helgi, ég er að fara til tannlæknis











Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Erna Evudóttir, 12.12.2008 kl. 08:12
Ía Jóhannsdóttir, 12.12.2008 kl. 08:21
Jokka (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 09:03
Huld S. Ringsted, 12.12.2008 kl. 09:08
Þegar að ég var lítil, þá þótti mér gott að smakka á deiginu, tala ekki um ef að það var súkkulaðideig. Eigðu góðan dag vina mín
Heiður Helgadóttir, 12.12.2008 kl. 09:15
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 12.12.2008 kl. 10:28
Hun er bara yndisleg dúllan þín. Kærleikur til þín
Kristín Gunnarsdóttir, 12.12.2008 kl. 10:39
Ninna mín... það þarf ekki endilega litlar verur til þess að eldhúsin geti litið svona út. Þær geta sko verið stórar... mjöög stórar
Kveðja í Heiðardalinn
Þorsteinn Gunnarsson, 12.12.2008 kl. 11:02
Yndisleg sú stutta
Gangi þér vel hjá tannsa 

, 12.12.2008 kl. 11:17
Dásamlegt, ekkert annað
Ásdís Sigurðardóttir, 12.12.2008 kl. 13:45
Þau eru svo frábær þessir athafnasömu englar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.12.2008 kl. 16:02
Bara æðibiti þetta barn
Knús inní góða helgi
Helga skjol, 12.12.2008 kl. 16:27
Sigríður Jóhannsdóttir, 12.12.2008 kl. 18:09
Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.12.2008 kl. 20:54
Sitja skóinn í gluggann til hvers? Ég er farinn að skrá mig í Votta Jehóva til að losna við jólastandið.
Það er ágætt að láta aðra baka.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 12.12.2008 kl. 22:32
Takk þið öll
Jónína Dúadóttir, 13.12.2008 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.