Læri líklega seint ef þá nokkurtímann, að það fer ekkert endilega allt eftir því sem ég vil...
Var svo algjörlega ákveðin í að mér yrði batnað í fætinum í dag, mánudag og ég færi auðvitað í vinnuna...
Ég er ekki farin að sjá það gerast, nema það gerist eitthvað kraftaverk fram til klukkan 10, en þó ég sé nú oft með höfuðið uppi í skýjunum, þá hef ég samt aldrei trúað á kraftaverk
Svo sveiflast ég á milli þess að fara nú kannski bara samt, vegna þess að það er þessi tími og það er ekkert víst að það sé nein til að leysa mig af og fara ekki, af því að ég er varla fær um að gera neitt almennilegt gagn
Allt tekur svo langan tíma hjá mér, ég laumast þetta á hraða snigilsins á milli í húsinu og þá er ég sko ekki að meina Snigil á mótorhjóli... ég er að meina þetta þarna litla slímuga dýrið, sem fer svo hægt að það er alveg hægt að sofna við að fylgjast með því...
En bara svona fyrir þá sem ekki þekkja mig í eigin persónu, þá er ég samt hvorki slímug né lítil...
Annars ferlega góð inn í daginn, svoleiðis...
Fer núna klukkan hálf níu á uppáhaldssnyrtistofuna mín að láta dúlla við mig, ég get nefnilega alveg setið á rassinum, fjarskalega góð í því
Hafið það gott í dag, sem og alla aðra daga elskurnar mínar allar, það er alveg að koma að fallegustu stund ársins...











Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Betra að vera heima kona
Birna Dúadóttir, 22.12.2008 kl. 07:12
Birna mín: Já rétt hjá þér mín kæra, enda búin að hringja og tala það inn á símsvarann í vinnunni að ég hengslist heima í dag...
Jónína Dúadóttir, 22.12.2008 kl. 07:29
Mikið betra kona að vera heima og láta sér batna

Helga skjol, 22.12.2008 kl. 07:30
Helga mín: Mikið rétt ! Skynsemin eiginlega öskraði á mig og skipaði mér að hringja mig veika og ég gegndi bara í þetta skiptið

Jónína Dúadóttir, 22.12.2008 kl. 07:35
Skynsemin þín hefur verið svona eins og öskrarinn í Harry Potter.alger snilld
Birna Dúadóttir, 22.12.2008 kl. 07:50
Láttu þér batna Jónina mín. Jólakveðja
Kristín Gunnarsdóttir, 22.12.2008 kl. 08:06
Ekkert vit í öðru en vera bara heima. Nú eða á snyrtistofu
Aðalatriðið að ofgera ekki fótarræflunum. Eigðu góðan dag mín kæra 
, 22.12.2008 kl. 09:03
ég var búin að segja þér að þú færir ekki í vinnu fyrir jól
disa (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 09:38
Ía Jóhannsdóttir, 22.12.2008 kl. 09:53
Jónína Þ lét skynsemina ráða, sko það er kraftaverk
Erna Evudóttir, 22.12.2008 kl. 10:49
Láttu þér nú batna fyrir hátíðarnar ljúfan mín, skynsemi í að vera heima, kominn tími til að huga að sjálfum sér líka
Sigríður Jóhannsdóttir, 22.12.2008 kl. 12:15
Það er stundum gott að láta í minni pokann fyrir skynseminni
Njóttu þess bara að sitja á rassinum og láta dúllast við þig. Hafðu góðan dag og vonandi batnar fætinum fyrir jól 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 22.12.2008 kl. 13:16
Birna mín: Minnsta kosti
Kristín mín: Takk mín kæra
Dagný mín: Það virkaði fínt að vera á snyrtistofunni

Dísa mín: Já ég veit það...
Takk fyrir komuna elskuleg
Ía mín:
Erna mín: Hvur er´essi Jónína þoddn... ?
Jónína Dúadóttir, 22.12.2008 kl. 13:39
Sigga mín: Ég er svo obbosslega skynsöm sko

Sigrún mín: Ég geri fátt betur en að sitja á rassinum
Takk heillin góð
Jónína Dúadóttir, 22.12.2008 kl. 14:01
Ha ert þú skynsöm? og ferð ekki í vinnu? þú gætir nú kanski skriðið um hjá fólkinu og ??? ÆÆ ég er að gera grýn því ég held að þú sért svona eins og ég( ææ nei ég er ekkert svo veik og mæti í vinnu með 39,5.
Látu þér batna, Gleðileg jól og takk fyrir bloggið.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 22.12.2008 kl. 22:09
Dúna mín: Hvernig vissirðu...
Það er allt í lagi að gera grín að mér, ég á það alveg skilið
Hafðu það virkilega gott mín kæra, Gleðileg jól og takk sömuleiðis fyrir bloggvináttuna
Jónína Dúadóttir, 23.12.2008 kl. 06:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.