Þá er hann loksins runninn upp, dagurinn sem börnin bíða eftir í ofvæni og vonandi fullorðna fólkið bara líka
Í þessu húsi er allt tilbúið til að taka á móti jólunum, hér verður fámennt og góðmennt í kvöld, yngri sonur minn borðar með okkur og verður hjá okkur eitthvað fram eftir kvöldinu, svo lengi sem hann endist
Og á morgun verða þau svo líka með okkur, eldri sonur minn, tengdadóttirin og yndislega stelpuskottið þeirra, hún Linda Björg þriggja ára
Þá vantar bara stelpurnar mínar tvær í Svíþjóð, en þær koma ekki núna þó ég fegin vildi...
Æi ég sakna þeirra alltaf, ég veit þið kannist við tilfinninguna, það er alveg sama hvað börnin verða fullorðin, maður saknar þeirra samt...
Núna ætla ég að laumast til að pakka inn jólagjöfunum til spúsa míns, á meðan hann sefur svefni hinna réttlátu og hálflösnu... hann er með einhverskonar flensudr... vona samt að honum versni ekki meira, karlgreyinu mínu
Einhvertímann fyrir hádegið ætla ég svo að hætta mér út í vonda veðrið og fara með jólakort á tvo staði og jólagjafirnar til stóra stráksins míns og stelpnanna hans og svo horfi ég á teiknimyndir og borða mandarínur
Óskin mín til ykkar allra sem lesið þetta er sú, að þið eigið góð og gleðileg jól, umvafin fjölskyldum og vinum... Megi nýja árið færa ykkur frið, farsæld og góða heilsu og verða á allan hátt miklu betra en gamla árið...









Flokkur: Bloggar | 24.12.2008 | 06:52 (breytt kl. 06:54) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
gleðileg jól til ykkar
Ólafur Th Skúlason, 24.12.2008 kl. 07:16
Gleðileg Jól til ykkar Ninna mín.Skilaðu góðri kveðju til krakkanna
Birna Dúadóttir, 24.12.2008 kl. 07:25
Gleðileg jól til þín og þinna. Hafðu það sem allra best um jólin
Huld S. Ringsted, 24.12.2008 kl. 07:38
Ólafur: Þakka þér og sömuleiðis gleðileg jól og velkominn

Birna mín: Sömuleiðis systir mín góð

Huld mín: Gleðileg jól og haf þú það líka sem allra best

Jónína Dúadóttir, 24.12.2008 kl. 08:04
Ég vona að hann spúsinn þinn hætti við þessa flensu og verði hress um jólin. Ég skil söknuðinn þinn svo vel. Ég á einn stjúpson sem býr í Noregi og mun sakna hans um jólin. Fyrstu jólin sem hann er ekki með okkur. Ég óska þér og þínum gleðilegra jóla. Megi hátíðin færa ykkur gleði og frið.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 24.12.2008 kl. 08:22
Þakka þér fyrir Jónína mín og megir þú sömuleiðis eiga góð jól og enn betra nýár
Þakka einnig bloggvináttuna - færslurnar þínar bæta gleði í hversdaginn 
, 24.12.2008 kl. 09:09
Sendi þér og fjölskyldunni mínar bestu óskir um gleðileg jól. Þakka þér allar skemmtilegu stundirnar hér á blogginu á árinu sem er að líða. Njótið hátíðarinnar meðal fjölskyldu og vina við kertaljós og kræsingar.
Ía Jóhannsdóttir, 24.12.2008 kl. 09:09
Já, Gleðileg jól til þín og ykkar, og hafið gott nýtt ár!
:-)
Einar Indriðason, 24.12.2008 kl. 09:13
Ójá alltaf saknar maður barnana sinna hversu gömul sem þau verða.
Gleðileg jól til þín og þinna mín kæra.
Jólaknús
Helga skjol, 24.12.2008 kl. 09:14
Sigrún mín: Það vona ég líka, en hann er bara verri núna en í gær
Þakka þér mín kæra og sömuleiðis
Dagný mín: Þakka þér og sömuleiðis fyrir bloggvináttuna og falleg orð

Ía mín: Sömuleiðis mín kæra, hafið það sem allra best yfir hátíðirnar

Einar minn: Þakka þér og sömuleiðis minn kæri

Helga mín: Æi já, en það er huggun harmi gegn ef þeim bara líður vel, hvar svo sem þau eru
Takk sömuleiðis og jólaknús til baka

Jónína Dúadóttir, 24.12.2008 kl. 10:03
Gleðileg jól Ninna mín til ykkar allra
er komin á ról og spúsi er að hella upp á eðalkaffi
vertu ávallt velkomin
Jokka (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 10:18
Gleðileg jól, elsku Ninna mín og bestu jólakveðjur til allra þinna.
HH
Hóffa (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 13:04
Jokka mín: Takk fyrir eðalkaffið elskuleg og Gleðileg jól

Hóffa mín: Sömuleiðis mín kæra vinkona

Jónína Dúadóttir, 24.12.2008 kl. 13:48
Ég óska þér og þínum gleðilegra jóla elsku Ninna mín
. Hafið það sem allra best öll
Sigríður Jóhannsdóttir, 24.12.2008 kl. 13:58
Sigga mín: Þakka þér fyrir elskuleg og sömuleiðis

Jónína Dúadóttir, 24.12.2008 kl. 14:52
Gleðileg jól kæra vinkona og kveðja norður
Ásdís Sigurðardóttir, 24.12.2008 kl. 15:39
Ásdís mín: Gleðileg jól elskuleg

Jónína Dúadóttir, 24.12.2008 kl. 15:50
Góð og Gleðileg jól óska ég þér og þínum, vona nú að kallinn hressist af flensunni, og að Lúkas köttur fái vænan ýsu sporð í jólamatinn. Með bestu kveðju frá Torrevieja
Heiður Helgadóttir, 24.12.2008 kl. 18:04
Mín ljúfasta og blíðasta Jónína Dúa .. óska þér og þínum öllum bestu óskir um gleðilega hátíð og gæfuríkt árið framundan! Megi friður og fegurð hellast á þig og þína um ókomna tíð! Þakkir fyrir yndislega bloggvináttu og skemmtilega óþekk samskipti á árinu sem er bráðum að kveðja...
Sendi þér og þínum hér með hið eina sanna Jólaknús .. margfallt!
Tiger, 24.12.2008 kl. 20:11
Heidi mín: Hjartans þakkir mín kæra vina og sömuleiðis Gleðileg jól
Spúsi er aðeins skárri og kötturinn fékk rækjur og rjóma og uppáhaldsleikfangið sitt : sjálft jólatréð
Jónína Dúadóttir, 25.12.2008 kl. 07:29
Högni minn: Þú ert alveg einstakur, þakka þér fyrir fjarskalega fallega jólakveðju og ég segi bara hjartans þakkir og sömuleiðis til baka á þig

Jónína Dúadóttir, 25.12.2008 kl. 07:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.