... læri og það barasta fyrir hádegiÞað geri ég náttulega bara undir sérstökum kringumstæðum og þær eru núna
Elsti sonur spúsa, konan hans og tvö börn eru á leið austan af fjörðum, suður á land og stoppa hér í leiðinni, það verður yndislegt að fá þau aðeins í heimsókn
Strax og ég byrjaði að búa, fyrir um það bil hundrað árum síðan, neitaði ég alfarið að fara á fætur löngu fyrir hádegi um helgar, meðan allir aðrir sváfu á sitt græna og elda einhverjar stórsteikur, sem voru svo tilbúnar á borðinu þegar liðinu datt í hug að drattast á fætur
Ég var ekki, er ekki og verð aldrei, einhver vinnukona á mínu eigin heimili
Sunnudagssteikin hefur alltaf verið á laugardagskvöldi hjá mér og verður það, þangað til einhverjum öðrum en mér, dettur í hug að æsa sig upp eldsnemma og fara að setja upp læri eða eitthvað
Fyrrverandi hefði frekar lagt á sig löng ferðalög til að fá að borða í hádeginu á sunnudögum, í stað þess að fara sjálfur á fætur til að elda
Núverandi mundi æða á fætur um miðja nótt og grilla naut úti í stórhríð, ef ég bæði hann um það, en það geri ég auðvitað aldrei
Annars ferlega góð inn í daginn krakkar mínir og vona að þið séuð það líka
Eigið nú góðan dag og gangið hægt um gleðinnar dyr, þannig njótum við hennar betur
Flokkur: Bloggar | 27.12.2008 | 11:00 (breytt 28.12.2008 kl. 15:48) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað var það líka með þetta lið þarna Norðan hnífapara og þá er ég bara að tala um tvo bæi.Það átti helst að vakna kl 8,henda kjötinu inn í ofninn og ekki taka það út aftur fyrr en það var tilbúið til að renna af beininu og á diskana

Birna Dúadóttir, 27.12.2008 kl. 11:08
Birna mín: Þá þurfti sko ekki að hafa of mikið fyrir því að brytja og tyggja, svona nývaknaður
Jónína Dúadóttir, 27.12.2008 kl. 11:23
Ég er alveg að sjá afhverju ég missti sem ekki fékk að búa þarna Norðan hnífapara
Erna Evudóttir, 27.12.2008 kl. 12:03
Erna mín: Það var nú ekkert smáræði skal ég segja þér
Jónína Dúadóttir, 27.12.2008 kl. 12:21
Ég er hvort sem er vakin fyrir allar aldir á sunnudögum og mér finnst voða notalegt að elda í hádeginu. Húsbandið tekur líka upp á því stundum. Þú ert nú voða tillitssöm að senda ekki spúsann út um miðja nótt í stórhríð til að grilla naut. En það er gott að vita af því að hann mundi gera það

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 27.12.2008 kl. 12:26
Sigrún mín: Það er í lagi ef allir eru vakandi sko
Heyrðu já, finnst þér ég ekki vera ofsalega góð við hann ?

Jónína Dúadóttir, 27.12.2008 kl. 13:10
Hjá okkur hefur alltaf verið borðað sunnudagssteikin um fjögur á sunnudögum og man ég hvað leikfélögum barnanna okkar fannst þetta skrítinn siður.
Ía Jóhannsdóttir, 27.12.2008 kl. 13:59
Sunnudagssteikin er líka á laugardagskvöldum á mínu heimili, hefur verið frá því ég fór að búa og verður meðan ég þarf að elda
. Hver hefur/hafði líka lyst á steiktu læri klukkan 12 á sunnudagsmorgni?
Heppinn spúsi þinn að þú skulir vera svona tillitssöm að heimta ekki grillaða steik um miðjar nætur
. Hafðu það sem allra best mín kæra
Sigríður Jóhannsdóttir, 27.12.2008 kl. 15:13
helgarsteikin mín er á laugardagskvöldum
og stundum bæði á föstud.kv og laugard.kv
.en h´erna áður fyrr var alltaf eldað í hádeginu ÞV'IL'IK vitleysa
Dísa (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 16:00
UMMM læri. En hvað þú átt yndislegan mann, heppin ertu. Kærleikskveðja
Kristín Gunnarsdóttir, 27.12.2008 kl. 16:03
Hvað gerir maður ekki fyrir fólkið sitt. Hátíðarkveðja.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.12.2008 kl. 16:38
Ía mín: Já það hefur hver sinn sið
Sigga mín: Var það ekki örugglega ég sem fann upp tillitssemina
Hafðu það líka sem best elskuleg
Dísa mín: Já ekki nenni ég að elda í hádeginu og alls ekki á virkum dögum náttulega
Kristín mín: Já ég er heppin
Jólaknús út til þín
Ólöf mín: Sko þú ert góð kona, það er ég aftur á móti ekki
Hátíðarkveðjur til þín og þinna
Ragna mín: Mæltu manna heilust

Jónína Dúadóttir, 27.12.2008 kl. 18:06
Líney, 27.12.2008 kl. 23:05
Gæðakona ertu

, 27.12.2008 kl. 23:08
Líney mín:

Dagný mín: Ó já það er ég sko......


Jónína Dúadóttir, 28.12.2008 kl. 11:27
Ég man þá tíma er mamma eldaði alltaf læri í hádegismat á sunnudögum, ekki til mikilla vinsælda fyrir unga fólkið á heimilinu, því í matinn skildum við vakna alveg sama klukkan hvað við fórum að sofa nóttinni áður
eða hvernig ástandi við vorum í þegar við fórum að sofa, vorum miklir djammarar 
Jólaknús
Huld S. Ringsted, 28.12.2008 kl. 22:21
Huld mín:

Jónína Dúadóttir, 28.12.2008 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.