... þess minna nenni ég að gera
Janúar og febrúar eru hreint ótrúlega tilbreytingalausir mánuðir, mér hefur alltaf fundist það. Mars var líka með í því þangað til yngri sonur minn þessi elska, fæddist í þeim mánuði
Sjálfsagt má reyna að setja þetta á einhverskonar skammdegisþunglyndi, en þá er ég auðvitað öfug við annað fólk... eins og með svo margt annað
Sólin er nefnilega að hækka á lofti og þá passar ekki að vera með skammdegisþunglyndi, enda mundi ég aldrei viðurkenna að ég væri með það
Ég sef samt alls ekkert meira, af því bara að ég þarf þess ekki, en mér var nú samt ráðlagt að prófa bara að fá mér svefntöflur við því...
Halló... fyrr mundi ég nú dauð liggja skal ég segja ykkur, ef ég get ekki sofið þá er ég ekki syfjuð og þá fer ég bara á fætur og mér er nokk sama hvað klukkan er... aldrei dytti mér í hug að fara að taka lyf við engu
Annars ferlega góð inn í daginn, engin kvöldvinna þessa vikuna og ég sit eftir vinnu á daginn og púsla... ef ég þá nenni því...
Nei nei ég er ekki bara löt ég er líka svolítið lygin, mér tekst alltaf að finna eitthvað að gera hérna heima og ef ekki vill betur til erindast ég fyrir gamla fólkið sem ég vinn hjá, í sjálfboðavinnu... biluð gleraugu hér, vottorð þar
Ég held það sé hláka úti, allavega heimtar vor háeðla heimilisköttur að fara út
Hætt þessu bulli, eigið dásamlegan dag elskurnar mínar, ég ætla að fara að hleypa kettinum út











Flokkur: Bloggar | 20.1.2009 | 08:02 (breytt kl. 08:09) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér með þessa mánuði, skelfilega leiðinlegir, ég nenni varla í vinnu þessa dagana. En sem betur fer líður tíminn hratt og það verður komið sumar áður en við vitum af

Huld S. Ringsted, 20.1.2009 kl. 08:17
Finnst janúar alltaf mjööööög erfður mánuður! En hann er alveg að klárast og sólin er að hækka á lofti...þá kemur þetta...vonandi!
Eigðu góðan dag heillin mín, þarf endilega að fara að sjá framan í þig! spurning hvort við spúsi kíkjum á ykkur um helgina...var ekki e-hvað tölvuvesen...hehe....
Jokka (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 08:19
Ragna mín: Góðan dag mín kæra
Flott hjá þér, ég púsla og prjóna... ef ég nenni
Huld mín: Skil þig, þetta er eini tíminn á árinu sem ég nenni svoooo ekki í vinnuna
En þetta kemur

Jokka mín: Jamm, ég er greinilega ekki ein um þetta...
Já komið þið endilega hvenær sem er, en ekkert bara í viðgerðir takk
Borðtölvunni er batnað en fartölvan þarf eitthvað spark í rassinn, hún er kannski bara með skammdegisþunglyndi
Sjáumst ljósið mitt
Jónína Dúadóttir, 20.1.2009 kl. 08:26
Blessuð og góðan dag
Dísa (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 08:29
Dísa mín: Blessuð og góðan dag líka

Jónína Dúadóttir, 20.1.2009 kl. 08:31
Alveg sammála þessu með mánuðina, en sem betur fer taka þeir enda eins og allir aðrir mánuðir.
Knús á þig inní góðan dag mín kæra
Helga skjol, 20.1.2009 kl. 09:00
Góðan daginn Jónina min, já þessir mánuðir, jan, feb, og mars eru frekar leiðinlegir en svo birtir til. Eigðu yndislegan dag vinan
Kristín Gunnarsdóttir, 20.1.2009 kl. 09:16
Allir sammála með þessa mánuði. Hjá mér eru það jan. og febr. síðan byrjar lífið eftir bolludaginn, get alveg svarið það.
Ía Jóhannsdóttir, 20.1.2009 kl. 10:05
Helga mín: Já sem betur fer gera þeir það
Knús inn í daginn þinn
Kristín mín: Það vorar fyrr hjá þér en okkur hérna á klakanum er það ekki ? Eigðu líka yndislegan dag
Ía mín: Ég skal alveg taka undir það að lífið byrjar eftir bolludaginn
Jónína Dúadóttir, 20.1.2009 kl. 11:08
Mikið er gamla fólkið heppið að hafa svona engil eins og þig til að skottast fyrir sig eitt og annað. Ekki sjálfgefið að fólk taki að sér svona aukaverk.
Mér finnst janúar laaaangur mánuður. Svo kemur febrúar og þá á dóttir mín afmæli. Febrúar er svo stuttur að það kemur strax mars, og þá fer maður að finna vorlyktina í loftinu
Hafðu líka góðan dag 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 20.1.2009 kl. 12:01
Ég er alveg ótrúlega brött og finnst þessi mánuður hafa liðið hratt. Febrúar er aftur stundum langur hjá mér, en þetta hefst alltaf. Kær kveðja norður
Ásdís Sigurðardóttir, 20.1.2009 kl. 16:06
Sigrún mín: Engill er nú ofsögum sagt... en mér er lífsins ómögulegt að vita sumt fólk algerlega bjargarlaust
En takk fyrir að segja það samt
Ásdís mín: Það er gott þér líður vel og vonandi verður bara áframhald á því, líka í febrúar
Jónína Dúadóttir, 20.1.2009 kl. 16:20
Knúsaðu köttinn frá mér NOOOOT
Birna Dúadóttir, 20.1.2009 kl. 17:41
Knúsaðu köttinn frá mér
, held að hans hátign sé algjört æði
. Hafðu það gott krúsin mín
Sigríður Jóhannsdóttir, 20.1.2009 kl. 19:54
Hvenær áttu helgarfrí næst?????
Sigríður Jóhannsdóttir, 20.1.2009 kl. 19:55
Birna mín: Hva... en þú sem ert svo hrifin af köttum

Sigga mín: Ég skal segja hans hátign að hann eigi knús inni hjá þér... ég knúsa hann aldrei
Helgarfrí.... einhvertímann í febrúar, tek aukavinnu eins og asni...

Jónína Dúadóttir, 20.1.2009 kl. 21:38
Tad leidinlegasta vid tessa mánudi er tegar sólin kemur upp og er svona lágt á lofti tá skín hún beint inn til mín og ég er med 100 glugga eda næstum
Alla vega finnst mér tad tegar sólin skín svona beint inn á lýsir upp óhreinindin á rúdunum....Ég er nefnilega med letivírus og tá get ég alls kki tveigid rúdurnar.Svona einfalt er tad nú.
Hjartanskvedjur til tín frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 21.1.2009 kl. 08:23
Mér finnst janúar nú ágætur enda á ég afmæli í lok janúar
Febrúar er líka fínn - mér finnst alltaf byrja að vora um miðjan febrúar og spennandi að fá risjótta veðrið sem því fylgir. Svo kemur mars og þá fer ég að hlakka til sumarsins og í apríl eru páskar og sumardagurinn fyrsti og svo er komið sumar í maí. Váááá - er ekki nóg komið af jákvæðni - úfff 
, 21.1.2009 kl. 10:09
Guðrún mín: Já þá fer ég líka að sjá allan skítinn sem ég kemst upp með að þykjast ekki sjá allan veturinn
Auðvitað getur maður ekkert unnið með svona alvarlegan vírus
Hjartanskveðjur til þín líka frá Akureyri
Dagný mín: Jú nú er sko nóg komið af allri þessari fj... jákvæðni takk fyrir
Nei bara grín...
Það er eiginlega alveg að koma sumar
Jónína Dúadóttir, 21.1.2009 kl. 10:37
Mööörg innlitskvitt!!! - Ok... mér finnst allir mánuðir ársins líða allt of hratt. Allir dagar ársins líða allt of hratt... Að ekki sé talað um næturnar... Maður lokar augunum.... opnar þau aftur og fleiri klukkutímar fallnir í valinn. Og ekki má sleppa sumrinu... það klikkar bókstaflega aldrei að það er fyrir bí.. löngu áður en maður lýkur vorverkunum. Svo þegar tíminn æðir svona áfram þá er alltof stutt á milli gjalddaga.... eitthvað sem ætti að kíkja á í aðgerðarplani ríkisstjórnarinnar
Kveðja í hæggengan Heiðardalinn
Þorsteinn Gunnarsson, 21.1.2009 kl. 12:33
Steini minn: Maaaargar þakkir fyrir möööörg innlit
Heyrðu já, það þarf að athuga þetta sérlega vel... sérstaklega með sumrin og gjalddagana
Kveðja frá Slow town
Jónína Dúadóttir, 21.1.2009 kl. 14:02
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 21.1.2009 kl. 16:29
Þá er matarboði frestað þangað til einhvern tímann í febrúar
Sigríður Jóhannsdóttir, 21.1.2009 kl. 19:19
Það er ekki hægt að þú missir af blogghitting aftur. Næst verður 28.febr.
Anna Guðný , 21.1.2009 kl. 19:35
Ólöf mín: Takk fyrir innlitið
Sigga mín: Hlakka til

Guðný mín: Velkomin í hópinn minn
28. febrúar er kominn í dagbókina, takk fyrir
Jónína Dúadóttir, 21.1.2009 kl. 22:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.