... þá verður allt vitlaust
Ríkisstjórnin fallin, það hlaut nú að koma að því... það er ekki endalaust hægt að drekka úr tómu glasi eða þannig...
Frétti eftir heimildarmanni þó ekki mínum eigin, í forsætisráðuneytinu í gær að Jóhanna Sigurðardóttir yrði næsti forsætisráðherra. Ég var ferlega ánægð með það, en svo virðist það nú ekki vera... því miður
Ég mundi glöð vilja sjá hana taka til þarna, moka út og sótthreinsa... veitir ekki af og ég held hún yrði góð í því. Ein gamlan mín (lesist; gömul kona) sem ég heimsótti í gærkvöldi er ekki aaaalveg sammála mér um hana, það er nú ekki nóg að geta haft hátt og svo býr hún með konu
Þar með er hún víst óhæf til að gegna embætti forsætisráðherra
Ég er búin að vera í fréttabindindi núna lengi og liðið vel með því, en það fer samt barasta alls ekkert fram hjá mér þó ég sitji ekki yfir öllum fréttatímum og lesi ekki heldur allt sem skrifað er
Og þetta voru elskurnar mínar góðu fréttirnar... ekki alveg eins góðu fréttirnar eru þær, að einn sem aldrei var alveguppáhaldsskjólstæðingurinn minn í kvöldvinnunni og rak mig fyrir rest í fyrra, er búinn að ráða mig aftur... og ég bað bara alls ekkert um það...
Karlgreyið er búinn að vera svo veikur og ég fékk að vita að hann væri mjög lasburða og svo lítill eitthvað að ég hugsaði með mér að auðvitað yrði þetta í lagi núna... Hann hlyti nú að hafa mildast og svartagallsrausið, sem alltaf rann algerlega viðstöðulaust og mjög auðveldlega upp úr honum væri ábyggilega eitthvað í rénun. En Ninna mín, láttekkisvona... þú átt að vita það, að asni verður ekkert hestur þegar hann eldist, hann verður bara gamall asni... sá gamli tók tvíefldur á móti mér í gærkvöldi
Ææææ hvað ég átti erfitt með að hafa samúðina mína með mér þarna inni hjá honum, ég þurfti hreinlega að beita hana ofbeldi til að vera þarna jafnlengi og ég...
En svo er á það að líta að ég bý ekki með honum og 20 mínúturnar sem ég eyði þarna eru ekki stór hluti af lífi mínu og ég er á góðu kaupi... vá, ferlega jákvæð
Og ég ætla að halda því áfram og vona að þið getið það líka... svona í aðalatriðum í það minnsta
Eigið dásamlegan dag elskurnar mínar













Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jóhanna hefði verið best sem forsætisráðherra, ekki spurning. Seigðu kallinum að vera góður við þig annars rassskelli ég hann. Eigðu ljufan dag Jónina min
Kristín Gunnarsdóttir, 27.1.2009 kl. 07:18
Kristín mín: Sammála þér með Jóhönnu
Segi honum það, hann verður örugglega skíthræddur
Eigðu líka góðan dag mín kæra
Ragna mín: Sömuleiðis ljúfan mín
Jónína Dúadóttir, 27.1.2009 kl. 07:34
Ía Jóhannsdóttir, 27.1.2009 kl. 09:08
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2009 kl. 09:39
Jóhanna er ein af fáum sem eru á þingi sem ég treysti. Hinir eru meira og minna að hugsa um eigið rassgat. Það má alveg nota sama samnefnarann á allmarga þingmenn og þú notar á ekkiuppáhaldsskjólstæðinginn þinn. Asni breytist ekki í hest þó hann sitji nógu lengi á þingi! Hafðu ljúfan dag, ljúfan mín
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 27.1.2009 kl. 10:56
Ía mín: ...
Jenný mín: ...
Sigrún mín: Eins og talað út úr mínum munni
Eigðu líka ljúfan dag mín kæra
Jónína Dúadóttir, 27.1.2009 kl. 11:42
, 27.1.2009 kl. 13:15
Hafðu það gott elskan mín
Ásdís Sigurðardóttir, 27.1.2009 kl. 15:23
Hurðu mig.... ég sá eitthvað á fésinu um hnéskeljar og hringa? Á ekkert að pistla um það:-)
Kv. í Hnékropinn Heiðardalinn
Þorsteinn Gunnarsson, 27.1.2009 kl. 16:16
Dagný mín: ...
Ásdís mín: Sömuleiðis mín kæra

Steini minn: Iss það er orðið eldgamalt og hann vill ekki sjá að giftast mér
Var bara aðeins að pikka í þennan sem ber minn hring, hann skrifar á fésinu að hann sé í sambandi... 
Jónína Dúadóttir, 27.1.2009 kl. 16:49
Blessssuð
Jóhanna væri fín þarna við þrifin í seðlabankanum
og svo samhryggist
ég
þér
með þennan gamla
leiðinlega
kall
Dísa (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 22:33
Dísa mín: Blessuð og sæl
Jamm líst vel á hana við það
Æi já sá gamli... hm... maður getur ekki fengið allt sko og einhvertímann fer hann eitthvað annað
Svo á ég líka inni sumarfrí
Jónína Dúadóttir, 28.1.2009 kl. 06:58
Er á margan hátt sammála þér með Jóhönnu en ekki að öllu, ætla ekkert nánar út í það hér, en það hefur ekkert með kynhneigð konunnar að gera
. Ég hins vegar sammála þér með það að gamli asninn breytist ekkert í hest
.
Hafðu það gott dúllan mín
Sigríður Jóhannsdóttir, 28.1.2009 kl. 18:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.