Í dag er fyrsti virki vinnudagurinn...

... hjá nýrri ríkisstjórn og ég óska þeim öllum velfarnaðar í þeim störfum sem framundan eru, það er  nú ekkert smáræði sem þau þurfa að takast á við. Í dag er líka fyrsti virki dagurinn í febrúar 2009, hjá okkur öllum með nýja ríkisstjórn og ég óska okkur öllum til hamingju með þaðSmile Þá er þessu umræðuefni lokið... í bili...Wink Annars er allt gott hér, allir viðstaddir á jákvæðu nótunum, (lesist; ég, en veit ekki með köttinn) og ég ákvað áðan, að í stað þess að vera að ergja mig út í snjóinn, er ég   bara ánægð með að það skuli þó vera búið að finna upp snjóruðningstækiTounge Engin kvöldvinna þessa viku sem er ferlega gott, þó það sé fín vinna þá er nauðsynlegt að fá pásu af og til. Bara hálfgert slugs framundan í þessari vikuna, smá dagvinna og hugsanlega skipti ég um skít á gólfunum hérna. Það er að vísu meira svona frekar líklegt, vegna þess að blessuð sólin er farin að skína inn á gólf hérna sem er yndislegt, en þá sést bara miklu betur hvað konan sem hér býr hefur alls ekki verið dugleg með ryksuguna og skrúbbinn, sem er ekki alveg eins yndislegtWhistling En það lagast með hækkandi sól eða með því að nenna að taka fram ryksuguna... nema hvorutveggja séGrin Ég hef ekkert að segja sem nokkurt minnsta vit er í, svo ég hætti bara núna og óska ykkur góðs dags í hækkandi sólLoL Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu dagsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.2.2009 kl. 08:40

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hef ákvedid ad gfa okkar nýju ríkisstjórn alla mína jákvædni Eigdu gódann dag mín kæra

kvedja til tín 

Gudrún Hauksdótttir, 2.2.2009 kl. 08:53

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jenný mín: Sömuleiðis takk

Guðrún mín: Það líst mér vel áKveðjur úr snjóóóó

Jónína Dúadóttir, 2.2.2009 kl. 09:04

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Eigðu góðan dag

Huld S. Ringsted, 2.2.2009 kl. 09:20

5 Smámynd:

Fínn dagur í dag. Annar febrúar, bjart og fallegt úti, ný ríkisstjórn að byrja að moka skít eftir fyrirrennara sína og ég í tveggja daga fríi. Og til viðbótar var ég að fá borgað vaktaálagið eftir jólin  Hvað getur maður beðið um meira.

, 2.2.2009 kl. 11:14

6 Smámynd: Tiger

Uss jamm.. ég er handviss um að þessi nýja ríkisstjórn á eftir að standa sig með prýði. Auðvitað hafa þau stuttan tíma en þau gera gott er ég viss um ..

Snjórinn er góður, frábær reyndar. Og jú .. snjóruðningstæki eru auðvitað góð þar sem þeirra er þörf. Hvað er annars snjóruðningstæki? Sko, það snjóar eiginlega aldrei neitt að ráði hérna fyrir sunnan svo það er ekki furða þó maður kannist ekki við það sem snjónum er tengt..

Hafðu ljúfa kvöldvinnulausa viku framundan skottan mín. Læt næsta snjóruðningstæki ryðja til þín sköflum af knúsum ...

Tiger, 2.2.2009 kl. 15:05

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þetta heitir að vera jákvæður  Það þýðir ekkert að ergja sig á snjónum. Hann mundi samt halda áfram að koma!

Ég hef trú á að ný ríkisstjórn geri eitthvað gott. Kannski að þeir fái eitt stykki snjóruðningstæki og ryðji bara seðlabankann...? Knús á þig skott

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.2.2009 kl. 16:18

8 identicon

Mér líst mjög vel á þessa ríkisstjórn, en hún hefur ekki langan tíma til að sanna sig...vonum það besta...takk fyrir hlýjar kveðjur ljúfan, og eigðu góðan daga

Jokka (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 16:23

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Huld mín: Þakka þér og sömuleiðis

Dagný mín: Ferlega fínn dagur

Högni minn: Sko snjóruðningstæki er svona.... Nei held þetta þýði ekkert, komdu bara í snjóparadísina og skoðaðu þauTakk væni, ég geri mitt besta til að verða fyrir þeim

Sigrún mín: Kannski ég sendi eins og eitt eða tvö... býsna góð hugmynd hjá þérKnús á þig líka ljúfan mín

Jokka mín: Sömuleiðis

Jónína Dúadóttir, 2.2.2009 kl. 17:25

10 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Kvitt og knús elskuleg

Sigríður Jóhannsdóttir, 2.2.2009 kl. 17:35

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sigga mín: Takk og sömuleiðis mín kæra

Jónína Dúadóttir, 2.2.2009 kl. 17:45

12 Smámynd: Anna Guðný

Það er satt, það kemur ýmislegt í ljós þegar sól hækkar á lofti.

Anna Guðný , 2.2.2009 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband