Framkvæmdagleðin mín er að koma aftur... ekki viljandi samt, ég finn hana bara nálgast og ég eiginlega nenni henni ekki...
Ég kenni um hækkandi sól...
Er sem sagt farin að sjá nýtt stofugólf í hyllingum...
Það gamla er sigið og grindin undir greinilega ekki fest við eldgamla steingólfið, sem er þarna um 30 cm neðar þar sem dýpst er ! Upphaflega gólfið hefur sigið um 1-2 cm á þeim 30 árum sem liðin eru frá því að þetta var gert, svo stofugólfið virkar líkt og trampólín. Hillusamstæðan er með glerhurðum og þegar gengið er á gólfinu fyrir framan hana, þá glamrar í öllu draslinu...
Við þurfum að taka gamla parketið af og henda því, festa grindina sem er þar undir við eldgamla gólfið og lækka hana líka svo gólfið verði í sömu hæð og á holinu. Helst taka líka gamla risastóra níðþunga ofninn, einhver hundruð kíló sá hlunkur og setja hita í gólfið í staðinn, þykka plötu á grindina, nýtt parket og... trallala... komið nýtt gólf
Það var nú á planinu að klára þetta fyrir síðustu jól, en þá vorum við bara komin með upp í háls af framkvæmdum
Á fjórum mánuðum, apríl til júlí á síðasta ári, bjuggum við til stórt eldhús algjörlega frá A-Ö, geri það aldrei aftur... rifum upp gamla gólfið í svefnherberginu og settum nýtt og smíðuðum líka fataskápa þar og máluðum og flikkuðum mjög mikið upp á okkar yndislega hús og vorum bæði í fullri vinnu með, en komumst svo loksins að því að það eeeeeru takmörk...
Þetta var náttulega bara bilun en líka alveg ofsalega gaman
Ég ætla að hætta þessu áður en ég verð of þreytt bara við tilhugsunina um þetta allt...
Eigið dásamlegan dag þið öll þarna úti











Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hljómar rosa einfalt og flott
þið massið þetta eins og ekkert sé líkt og með eldhúsið
sendi knús þarna uppeftir
Jokka (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 08:44
Ragna mín: Þakka tiltrúna mín kæra
Knús til baka
Jokka mín: Já það hljómar einmitt þannig....
Möööörg knús á Eyrina
Jónína Dúadóttir, 10.2.2009 kl. 08:59
Vá ég varð bara uppgefin við að lesa þetta
Held ég leggi mig í hádeginu 
Birna Dúadóttir, 10.2.2009 kl. 09:08
Birna mín: Skil þig, leið líka þannig þegar ég var búin að skrifa þetta
Jónína Dúadóttir, 10.2.2009 kl. 09:16
Alltaf gaman þegar framkvæmdagleðin lætur á sér kræla. Verst ef maður er ekki að nenna því
Það er alveg upplagður tími einmitt núna, ef maður er að spá í eitthvað svona. Það styttir veturinn og allt klárt þegar sumarið kemur... En eins og þú segir, þá hljómar þetta afar einfalt
Þetta er auðvitað spennandi og gaman, en mest gaman þegar verkið klárast 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.2.2009 kl. 09:37
Sigrún mín: Mæltu manna heilust mín kæra



Jónína Dúadóttir, 10.2.2009 kl. 09:50
Ég vona að þið hendið ekki gamla þunga ofninum ykkar
ég varð hálf þreytt þegar að ég las um allar þessar framkvæmdir hjá ykkur, en þegar að maður er að vinna fyrir sjálfan sig, þá er eins og að það séu engin takmörk fyrir dugnaðinum hjá manni. Eigðu góðan dag
Heiður Helgadóttir, 10.2.2009 kl. 12:30
Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2009 kl. 13:39
Heidi mín: Við hendum honum örugglega, ég veit ekki um neinn sem vill hann
Já dugnaðinum er víst engin takmörk sett þegar maður er að vinna fyrir sjálfan sig
Eigðu líka góðan dag
Ásdís mín: Æi takk, alltaf svo gott að fá hrós, þó það sé ekki endilega verðskuldað

Jónína Dúadóttir, 10.2.2009 kl. 16:54
Gættu þess bara að fari ekki fyrir þér eins og háfnum góða hér um árið - týndu þér ekki í gólfgerð. Hvaða máli skiptir þó gólfið sé aðeins eins og trampolín - hugsaðu bara um börnin og barnabörnin - þau elska slíka græju - svo hættu bara þessari sjálfselsku og púkahætti.
Mér var stundum um og ó þarna í fyrra - vegna hamagansins í ykkur - enda heyrðust af því sögur að kerfisvillan ofan af fjöllum sæist af og til á náttfötunum úti á snúru ... en það er svo sem gott að fólk setji þá rétta hluti á snúrur þegar það hengir þar upp. Gott á meðan hausinn hangir þar ekki einn og sér sko ...
Mundu að með hækkandi sólu - og meiri birtu - neyðist þú til að fara í meira en bara náttkjól þegar þú ferð út að labba! Engin launung að náttkjólaáráttunni hjá þér verður að fara að linna - nágrönnum þínum stendur -------> ekki á sama sko! *blush* .. haha!
Knús í krús ... niðursuðuknús sko, sauð nokkur niður síðast þegar ég gerði rabbarbarasultutau! Vonandi er það ekki of súrsað ...
Tiger, 10.2.2009 kl. 17:27
Jibbíjeij - það er sko sannarlega að koma vorhugur í allri þessari sól og þarmeð hrikaleg framkvæmdagleði
En hrikalega hafið þið skötuhjú verið dugleg með nýja húsið í fyrra - má kannski bjóða ykkur í heimsókn til mín 
, 10.2.2009 kl. 18:09
Högni minn: Náttkjóll hvað... alltaf þarft þú nú að kjafta frá öllu....
Súrt eða sætt, alltaf æðislegt að fá knús
Dagný mín: Æts... maður er nú alltaf duglegri að vinna fyrir sjálfan sig
En kannski kem ég í næsta lífi og geri upp húsið þitt 

Jónína Dúadóttir, 10.2.2009 kl. 21:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.