... alltafÍ minni vinnu er enginn samdráttur og engar uppsagnir, það á þvert á móti að fara að lengja vinnutímann í kvöldvinnunni minni... veit ekki alveg hvernig mér líst á það, en auðvitað hækka ég þá í launum, sem kemur sér vel með atvinnulausan sambýlismann
Hér fyrr í vetur var svolítill þrýstingur á okkur að flytja til Noregs, en ég tók þvera nei-ið á það... þurfti ekki að hugsa mig um einu sinni. Hver sem er má flytja hvert sem er, mér og mínum að meinalausu, ég fer ekki fet
Það kostar líka að lifa í öðrum löndum og atvinnuleysi er að aukast í Noregi eins og annarsstaðar. Paradís á jörð er ekki til nema í huga hvers og eins og hversdagslífið og allt strögglið fylgir manni alltaf, alveg sama hvaða tungumál þar er talað
Svo ég verð hér og reyni að gera það besta úr því sem ég hef, það verður auðvitað hver að liggja eins og hann hefur um sig búið
Ekki fer ég að hætta í vel launaðri vinnu eins og ástandið er núna, það væri bara heimska... ég veit hvað ég hef en ekki hvað ég fengi...
Við erum mjög vel stödd miðað við svo marga aðra, erum til dæmis ekki með myntkörfulán á húsinu okkar, af því að ég gat ekki með nokkru móti fattað almennilega hvernig það virkaði, svo ég neitaði að taka svoleiðis lán... segið svo að það geti ekki komið sér vel að vera hæfilega fattlaus...
Er að vinna 3- 21 í dag og á morgun og svo sumarfrí á mánudaginn... en bara á mánudaginn, ég er að reyna að vinna niður afganginn af sumarfríinu mínu síðan í fyrra
Góða helgi
Flokkur: Bloggar | 14.2.2009 | 08:07 (breytt kl. 11:06) | Facebook
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.2.2009 kl. 08:09
Jóhanna mín: Já... sömuleiðis takk

Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 08:10
Ég held að það sé ekkert vit að flytja til annara norðurlanda eins og ástandið er, það er atvinnuleysi alsstaðar Jónina min, rett ákvörðun hjá þér
Kristín Gunnarsdóttir, 14.2.2009 kl. 08:38
Ég er að hugsa um að flytja til Kanada, nei bara að grínast
Erna Evudóttir, 14.2.2009 kl. 09:28
Kristín mín: Já þrjóskan og þvermóðskan koma sér líka vel... stundum

Erna mín: Trúði þér ekkert litla mín

Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 09:47
aha nákvæmlega eins og ég hef hugsað, veit hvað ég hef en ekki hvað ég fæ ef ég flyt eitthvað erlendis,mig langar samt að prufa það áður en ég dey...Það er á To Do listanum ;)
Bíð bara þangað til krílin stækka meira og fleiri flytja að heiman ;)
Annars knús heim :)))
Líney, 14.2.2009 kl. 11:06
Ragna mín: Hlýtt knús frá mér til þín
Líney mín: Ég hugsaði þannig líka þegar krakkarnir voru litlir, en sú hugsun virðist hafa týnst einhversstaðar á leiðinni
Knús þarna út til þín
Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 11:30
Góðan Valentínusardag Jónína mín.
Ía Jóhannsdóttir, 14.2.2009 kl. 13:03
Ía mín: Sömuleiðis ljúfan mín
Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 13:12
Mig langar nú samt til Kanada,er m.a.s farin að skoða það á netinu.Hmm hallærispinninn ég
Birna Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 15:41
Birna mín: Já þú ert hallærispinni
Ef þú þarft að flytja komdu þá hingað
Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 19:02
J+á, við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum. Það er mikið rétt. Ég segi einsog þú, við tókum ekki myntkörfulán og erum því í betri málum en margir aðrir. Ég hef heldur ekki heyrt það að það sé eitthvað ódýrara að lifa í Noregi en hér. Man að ég keypti aldrei neitt þar, það var allt dýrara en heima.
Gerum það besta úr því sem við höfum hér heima.
Hafðu það gott
Anna Guðný , 14.2.2009 kl. 23:48
Gott hjá þér að fara hvergi.
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2009 kl. 00:44
Anna mín: Ég veit ekki betur en Noregur sé með dýrari löndum nefnilega
Haf þú það líka gott
Jenný mín: Eins og maðurinn sagði: Hlíðin er fögur, ég fer ekki rassg...
Jónína Dúadóttir, 15.2.2009 kl. 07:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.