Tók bara einn dag í sumarfrí í bili, er að reyna að vinna niður daga sem ég átti eftir síðan í fyrra... held ég eigi ennþá 10 daga eftirSat eiginlega bara mestmegnis og röflaði einhverja vitleysu, rétt eins og stjórnarandstaðan á okkar háa Alþingi...
En ég var í fríi... þau eru í vinnunni, svo ég má ætlast til þess af þeim að þau vinni vinnuna sína, en sitji ekki bara og bulli einhverja vitleysu alla daga... "Ég sagði þetta um daginn, það var ég sem samdi þetta, ég var á undan, þú ert að stela hugmyndinni minni..." kjaftæði sem engu skilar öðru en að álitið á þeim minnkar bara ennþá meira, ef það var þá hægt...
Gera og græja takk ! Sameinast í því að bjarga því sem bjargað verður, þegar það er búið þá má bulla út í eitt fyrir mér...
Annars ferlega góð inn í daginn bara
Farin að sjá vorið í hyllingum... það er búið að vera svona smá sýnishorn af því hér undanfarna daga, en nú á víst að kólna aftur...
En þar sem ég get ekki stjórnað því þá læt ég það ekki ergja mig, en ég verð nú samt að viðurkenna að þolinmæðin mín er að verða svolítið stutt í annan endann
En þetta keeemur... góðir hlutir geeerast hææægt og svo framvegis
Góður dagur framundan, verum góð hvort við annað, það skilar sér alltaf
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragna mín: Takk...

Jónína Dúadóttir, 17.2.2009 kl. 07:28
Vorið ætlar að láta bíða eftir sér her í danaveldi, buið að vera skítkalt ansi lengi, verum bjartsýnar, það kemur Jónina min
Kristín Gunnarsdóttir, 17.2.2009 kl. 07:28
Kristín mín: Ég er alltaf bjartsýn og svo er ég með þetta fína gullfiskaminni, greinilega... verð alltaf jafnhissa þegar vorið kemur loksins

Jónína Dúadóttir, 17.2.2009 kl. 07:32
Ía Jóhannsdóttir, 17.2.2009 kl. 08:40
Oh..langar í vor...
vil ekki meiri snjó...ekki meira frost...ekki meiri hálku...
sendi knús þarna upp á brekkuna
Jokka (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 11:43
Ohh ég elska vorin
Febrúar bráðum búinn...og um leið og mars kemur þá finnst mér vorið bara að koma. Knús í daginn þinn 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 17.2.2009 kl. 12:42
Rétt hjá þér vinkona - við borgum ekki þessu fólki fyrir að bulla
Og ég get svo svarið það - vorið er bara rétt handan við hornið 
, 17.2.2009 kl. 16:11
Þegar maður byrjar að taka sér svona mikið frí eins og þú - sjá árstíðir í hillingum og rugga sér með tuði og tauti - þá þýðir það bara eitt - elliskirteinið þitt hlýtur að fjúka inn um lúguna á morgun!
Þú getur þó róað þig niður - eða hætt að rugga þér fram og aftur - því það er frítt í strætó fyrir fólk eins og þig - þar getur þú farið hring eftir hring alla daga og ruggað þér og rólað eins og þú vilt - áhyggjulaus og útúr heiminum... muhahaha! Gamla mín ....
Annars góður bara - þrátt fyrir að það styttist hræðilega mikið í báða endana hjá mér líka og sennilega mun ég birtast í þínum strætó áður en langt um líður. Enda, allt þetta rugl og þrugl á þingi er að gera fólk í blóma gráhært og gamalt löngu fyrir aldur ...
Væri sennilega góður bissness að kaupa nokkra góða strætóbíla í kreppunni ...
Fyllti vagninn af knúsum áðan - og þegar þú ferð að rugga þér og tauta á morgun - á morgunrúntinum - þá munu knúsin falla eins og snjókorn yfir þig alla ... nanana .. it´s raining ... knúsum (not men) hættu að hugsa sona kerling ..
Tiger, 18.2.2009 kl. 00:13
Ía mín:...
Jokka mín: Innilega sammála
Knús og kossar niðureftir á uppáhalds Eyrarpúkana mína

Jónína Dúadóttir, 18.2.2009 kl. 06:49
Sigrún mín: Tek undir með þér og sendi þér knús inn í góðan dag
'
Dagný mín: Jamm þeir eru á allt of háu kaupi til að vera bara að bulla...
Ég held líka að vorið sé þaddna rétt handan við hoddnið

Jónína Dúadóttir, 18.2.2009 kl. 06:53
Högni minn: Ég er ekkert stutt, ég er næstum því alveg einn og sjötíu
En mikið var nú gaman að hitta þig í strætó í morgun gamli minn
Og takk fyrir að láta rigna mönn... nei knúsum yfir mig, þau eru alltaf svo velkomin

Jónína Dúadóttir, 18.2.2009 kl. 06:57
Þetta heitir vetrarfrí. Annars er orðið bjart langt fram eftir degi, allavega á Kópaskerinu.
Kvitt og kveðja.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 19.2.2009 kl. 00:47
Jóhanna mín: Já, en ekki hvað ?
Dúna mín: Afgangur af aumarfríi síðan í fyrra verður að heita sumarfrí, við fáum nefnilega engin vetrarfrí í minni vinnu
Veistu, það er bara líka orðið bjart fram eftir öllum degi hérna á Akureyri
Jónína Dúadóttir, 19.2.2009 kl. 06:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.