... núna ætla ég að gera tilraun til að vera á jákvæðu nótunum hérna... aldrei þessu vant
Ef ég á að telja upp allt það jákvæða í lífið mínu þá endist mér ekki dagurinn til að skrifa og yrði sjálfsagt vísað út af þessum miðli, vegna einokunar á internetinu...
Ef eitthvað er þá hef ég það alltof gott og verð að passa mig að láta mér ekki leiðast það... stundum dett ég í það að hafa áhyggjur af því að hafa ekkert til að hafa áhyggjur af ! Spyrjið þið bara börnin mín
Það snjóaði í nótt og það jákvæða við það er.............leyfið mér að hugsa...... nú skal ég segja ykkur að það jákvæða við snjó og frost er samsagt....... ég hlýt að finna eitthvað....
Já jæja prófa eitthvað annað, þessi tilraun mín til jákvæðni fór algerlega út um þúfur...
Nei nei, bara hinn fínasti mánudagur af því að ég er búin að ákveða að hann verði það
Kvöldvinnuvikan mín er búin og heil vika framundan sem fer alfarið og eingöngu í allrahandanna slugs og leti og jú, kannski smá dagvinnustubba af og til
Vona að þið öll sjáið fram á góðan dag og ennþá betri viku









Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragna mín: Sömuleiðis ljúfan mín

Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 08:35
er ekki bara thad jákvæda vid snjóinn ad thad birtir soldid yfir øllu?
en gott thú ert jákvæd og thakklát fyrir thad sem thú átt. Thad mættum vid øll hafa til fyrirmyndar held ég bara..madur vill gleyma thvi af og til hvad madur hefur thad gott.
Gódan mánudag,knús og kram hédan
María Guðmundsdóttir, 2.3.2009 kl. 08:58
það er nauðsinlegt að hafa jákvæðina í fyrirrúmi... hún er ljósið sem lýsir upp veginn framundann... :D halda áfram svona
mbk
Jónas Abel Mellado
Jónas Abel Mellado, 2.3.2009 kl. 09:32
María mín: Takk fyrir hjálpina, þarna kom það
Knús og kram á þig líka
Jónas Abel: Alveg rétt hjá þér
Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 09:44
o Mér finnst þú nú alltaf vera á jákvæðu nótunum og snjórinn kemur og fer er það ekki bara gott mál. Knús inn í góðan dag.
Ía Jóhannsdóttir, 2.3.2009 kl. 10:08
Ía mín: Já finnst þér það, þakka þér mín kæra
Þarna kom annar jákvæður punktur um snjóinn:"hann fer"
Hafðu það sem allra best og flýttu þér að láta þér batna

Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 10:24
Oh stelpa
þú ert alltaf jákvæð, meira að segja þegar þú ert neikvæð þá ertu samt jákvæð
veit ekki hvað þú ert að kvarta þaddna...hehe....
Eigðu góðan dag ljúfan mín, veeeerðum að fara að hittast!!
Jokka (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 13:48
A) Hættir að klæða þig í rolluflygsu sem hræðir litlu börnin.
B) Hættir að læðast út í kuldann á morgnanna á náttkjólnum.
C) Hættir að blogga á Mbl.is..
D) Hættir að kalla þig flottari en ég - bara af því mamma vildi ekki gefa þér Pizzu addna ...
E) Hættir að prjóna og færir að baka Kanelsnúða .. *flaut*..
Tiger, 2.3.2009 kl. 16:02
Svo er nú alveg þjóðráð að skella sér bara út í snjóinn og búa til engla og snjókarla. Gætir örugglega fundið eitthvað jákvætt þar við snjóinn
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.3.2009 kl. 16:29
Það ættu allir að prófa að vera jákvæðir, þvílíkur munur. Þetta með snjóinn, ég bara dauðöfunda þig af honum, enivey, þú ert frábær stelpa. Knus
Kristín Gunnarsdóttir, 2.3.2009 kl. 16:48
Jónína: Hættessu, smá neikvæðni er nauðsynleg í l´finu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.3.2009 kl. 17:23
, 2.3.2009 kl. 17:24
Flissssss
kossar og knús
Líney, 2.3.2009 kl. 19:28
Jokka mín: Þú ert góð
Við sjáumst fyrr en þig grunar stelpa

Högni minn: "Það var í rauninni bara eitt jákvætt við þessa færslu, hún var svo stutt"
Skammastín krakkaskömm, ég ætla ekkert að hætta að blogga hérna, aldrei og ég er miklu flottari en þú, spurðu bara mömmu þína
Knús á þig samt og takk fyrir björgunarhringinn

Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 20:30
Sigrún mín: Ertu vitlaus manneskja... fara og leika mér í snjónum
Ég moka snjó og finnst gaman að keyra í miklum snjó en alls alls ekki segja neinum frá því

Kristín mín: Þú ert bæði jákvæð og indæl

Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 20:33
Jenný mín: Já satt... fyrirgefðu 50 sinnum....
Ég lofa að gera þetta... alltaf aftur og aftur
Dagný mín: Takk fyrir innlitið

Líney mín: Kossar og knús á móti, mamma þín og pabbi komu hérna í dag, alltaf jafnyndisleg bæði

Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 20:36
Sko það jákvæða við snjó og kulda er það að manni verður kalt og þá veit maður að maður er lifandi.
Hvaða maður ætli það sé annars sem er lifandi?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.3.2009 kl. 21:45
Jóhanna mín:
Jónína Dúadóttir, 2.3.2009 kl. 22:47
Já ég frétti að kaffið þitt væri rosagott,verð að tékka á þér þegar ég kem norður
knús í hús
Líney, 3.3.2009 kl. 09:50
Líney mín: Alltaf velkomin mín kæra
Knús í þitt hús
Jónína Dúadóttir, 3.3.2009 kl. 09:53
Díana mín: Þakka þér fyrir elskan
Jónína Dúadóttir, 3.3.2009 kl. 11:18
Sko,það jákvæða við snjóinn er að þá geturðu farið út og gert engil.Mér finnst það alveg ómissandi ennþá.Krökkunum finnst ég nú samt bara skrítin
Birna Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 12:12
Birna mín: Mér finnst þú líka vera skrítin, en á jákvæðan hátt

Jónína Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.