... við nísku ? Það get ég ekki...Sparsemi er fín, líklega kölluð dyggð en níska er eitthvað allt, allt annað og svoleiðis gjörsamlega, algerlega á hinum endanum...
Það er hægt að spara á svo margan hátt og eins og ástandið er núna á mörgum heimilum, þá er það alveg nauðsynlegt og það getur meira að segja verið gaman að finna út nýjar leiðir til að spara
Ég ætla ekkert að fara að vera með einhverja kennslustund í sparsemi hérna, ég er ekki og hef aldrei verið til fyrirmyndar í þeim efnum. Það er líklega vegna þess að ég hef alltaf hatað nísku og forðast allt sem gæti á nokkur hátt tengt mig við hana...
Og svo má örugglega bæta því við líka að ég hef aldrei haft hundsvit á peningum... ég hef nefnilega alltaf haldið að það ætti að nota þá... svo þeir skemmdust ekki eða eitthvað
Það sýnir líka hvað ég hef lítið vit á þeim að ég hef frekar gefið þá heldur en að setja þá inn á bankabók eða keypt eitthvað handa einhverjum fyrir þá. Það hefur nefnilega aldrei heillað mig neitt að vita að ég eigi þetta og þetta mikið af peningum einhversstaðar og að ég sé núna búin að fá þetta og þetta mikið í vexti af þeim...
Jú ef ég geri svoleiðis þá verð ég auðvitað rík... en elskurnar mínar bara rík af peningum en engu öðru...
Ekki samt halda að ég sé einhver góð manneskja sem er alltaf að gefa peninga... ég tími því náttulega ekki
Búin að vinna í dag og alveg ofsalega kát með þaðNjótið dagsins elskurnar mínar, þess sem eftir er af honum
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og ég sem sit sveitt og tel seðlana undir koddanum áður en ég fer að sofa á kvöldin
Væri aldeilis munur ef það væri, eða þannig sko
Get alveg bætt við mig sko 
Knús norður
Líney, 4.3.2009 kl. 13:04
Ragna mín: Satt segirðu það er sorglegt hvernig sumir sóa lífinu í... ekkert eiginlega... bara safna peningum...
Knús að norðan

Líney mín: Ég vissi það alltaf sko... eða alls ekki
Knús að norðan

Jónína Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 13:12
stendur einhversstadar ad peningar kaupi ekki hamingjuna...en fjárinn sjálfur..their létta undir i baráttu fyrir henni held ég
thad er soldid erfitt ad vera hamingjusamur ef madur er med allt nidrum sig fjárhagslega,med hnút af fjárhagsáhyggjum og th.. en ég er ekkert gód i ad spara thannig..en langt i frá eydslusøm lika...bara soldill balance i thessu hjá mér
nokkud gód bara..
Hafdu gódan dag og knús i thitt hús
María Guðmundsdóttir, 4.3.2009 kl. 13:55
María mín: Mér virðist þú nú vera afskaplega normal í þessu
Góðan dag og knús í þitt hús líka
Jónína Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 14:02
Níska er sá leiðinlegast galli í fari manneskju, fyrir utan skítlegt eðli.
Níska er ekki bara græðgi og skortur á að deila með sér af veraldlegum hlutum, heldur á það við líka hvað varðar að gefa af sér sem persóna.
Ógeðisgalli og hefur ekkert með sparsemi að gera.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.3.2009 kl. 16:23
Jenný mín: Mikið erum við sammála
Jónína Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 16:36
Eina jákvæða sem ég sé við nísku er að ég þarf ekki að umgangast neinn nískupúka
Skynsöm sparsemi er fín og ekkert við það að athuga. Ég gæti nú aldrei orðið neitt múltirík sko, ekki peningalega séð. Mér finnst miklu skemmtilegra að gefa heldur en að eiga..
Stórt knús á þig mín kæra. Tími því alveg sko

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 4.3.2009 kl. 19:37
"ég hef aldrei haft hundsvit á peningum... ég hef nefnilega alltaf haldið að það ætti að nota þá... svo þeir skemmdust ekki eða eitthvað Það sýnir líka hvað ég hef lítið vit á þeim að ég hef frekar gefið þá heldur en að setja þá inn á bankabók eða keypt eitthvað handa einhverjum fyrir þá."
En auðvitað ert það bara þú sjálf sem ert að segja frá sjálfri þér - we are just so much alike each other i guess .. Og það er náttúrulega það sem gerir þig svona sérstaklega yndislega skjátan þín!
En, þar sem ég er svona hrikalega gjafmildur, rétt eins og þú, þá ætla ég að vera óvenjulega rausnalegur í dag .. æi .. nei ... ég tími því ekki! Hendi bara einu knúsi yfir heiðar - en knúsið er eins og búmerang - svo ég á von á að fá það aftur til baka strax! Sættu þig bara við það .. það eru ekki alltaf jólin!
Tiger, 4.3.2009 kl. 19:51
Alveg er ég sammála þér þarna - níska er óþolandi eiginleiki.
, 4.3.2009 kl. 19:55
Hef þetta bara stutt,er að spara

Birna Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 20:45
Sigrún mín: Ef þú getur ekki fundið það jákvæða þá getur enginn það
Tími líka alveg risaknúsi á þig

Högni minn: Ég hef alltaf vitað að þú ert líka óttalegur nískupúki... og þá sérstaklega á hlýlegheitin og knúsin... rétt eins og ég
Náði knúsinu og þú færð það sko ekkert aftur
Gleðileg jól
Dagný mín: Það vissi ég að þú mundir vera

Birna mín: Í skeytastíl...

Jónína Dúadóttir, 4.3.2009 kl. 22:21
Stundum er talað um fólk sem að æpir um leið og það skítur, svo erfitt er fyrir þau að láta eitthvað frá sér.
Ég er óttaleg eyðslukló, hef aldrei haft vit á að spara.
enda á ég enga peninga, en mér líður ekkert illa yfir því
Heiður Helgadóttir, 4.3.2009 kl. 23:04
Níska er gildishlaðið neikvætt orð -
Þú ert frábær í þessum neikvæðni/jákvæðni pælingum!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.3.2009 kl. 00:36
Heidi mín: "Æpir um leið og það skítur"
Velkomin í hópinn mín kæra

Jóhanna mín: Já og það alveg verulega
Þakka þér fyrir heillin, þetta er líka gaman
Jónína Dúadóttir, 5.3.2009 kl. 05:59
Hahahaha frábær pæling og svo sönn

Helga skjol, 5.3.2009 kl. 08:56
Helga mín: Þakka þér fyrir heillin

Jónína Dúadóttir, 5.3.2009 kl. 09:01
Erna Evudóttir, 5.3.2009 kl. 09:48
Góðar pælingar ég þoli ekki nískupúka. Kveðja inn í góðan dag til ykkar norðanmanna.
Ía Jóhannsdóttir, 5.3.2009 kl. 10:38
Erna mín:

Ía mín: Ég held að langflest eðlilegt fólk þoli ekki nísku
Við norðanmenn sendum þér batakveðjur

Jónína Dúadóttir, 5.3.2009 kl. 18:40
Eins og talað ur minum munni, til hvers að vera að geima peninga, þú veist ekki nema að þú sert dauð á morgun og þá gastu ekki notað peninginn. Ég hata alt sem heitir niska. Knus Jónina min
Kristín Gunnarsdóttir, 6.3.2009 kl. 05:33
Kristín mín: Nákvæmlega
Knús til baka
Jónína Dúadóttir, 6.3.2009 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.