... að það snjóar hér á norðurhjaranum ! Segi nú samt frá því eins og sannur íslendingur... blessað veðrið alltaf aðalfréttinDóttir mín elskuleg sem er búin að búa úti í Svíþjóð í allt of mörg ár, er að vísu búin að venja mig af þessu þegar við tölum saman... "Mamma hvað ertu að spyrja um veðrið ? Hverjum ætli sé ekki sama um það... !" Hún er greinilega búin að vera þarna allt of lengi
Ég fer ekkert í vinnuna í dag, bakið á mér talaði og ég hlustaði... aldrei þessu vant
Annars er það nú að verða frekar sjaldgæft að það argi á mig, þær eru nefnilega svo elskulegar og tillitssamar yfirkonur mínar að færa mig til í verkum svo ég geti gert þetta verkjalaust, ég er meira farin að vera í yfirsetum og þessháttar dútli, en það þarf að vinna það líka
Vitiði... að ég er hérna að skrifa um leiðinlegustu umræðuefni veraldarinnar : Veðrið og verkina mína !
Hætti bara núna áður en mér tekst að finna eitthvað ennþá leiðinlegra handa ykkur... farin út að labba
Vona að þið öll eigið góðan dag og hafið það sem allra best
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragna mín: Þú ert nú alltaf svo indæl
Knús inn í daginn þinn og njóttu þess að láta dúlla við þig

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 09:14
stundum tharf madur ad skrifa um thad midur skemmtilega lika
lifid er jú ekki bara eitt tívolí sko, en mér finnst bara akkúrat ekkert leidinlegt vid ad lesa um vedrid heima og verkin
og blogga oft um thessa sømu hluti sjálf
vid høfum thetta bara eins og okkur hentar Jónína , hverju sinni . knús og kram til thin 
María Guðmundsdóttir, 11.3.2009 kl. 09:34
María mín: Takk og knús og kram til þín líka

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 09:36
En tókstu eftir því að sólin er líka að skína þrátt fyrir snjókomu?
allavega hér á eyrinni...veit ekki með brekkuna
þetta hlýtur að verða búið þessi blessaði vetur!!!
Farðu vel með bakið þitt og hlustaðu vel á það
Jokka (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 10:35
Jokka mín: Já ég tek eftir sólinni, þó ég taki ekki eftir neinu öðru... hún skæin líka hérna á brekkunni sko
Það er staður asni í bakinu á mér og mér er ekkert vel við að hlusta á svoleiðis leiðindapúka, en verð stundum að gera það samt
Ert þú heima eftir hádegi mín kæra ?Ca 1-2 ?

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 10:53
Arg... hún skæin ekki hún skÍn
Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 10:55
Það er betra en að sjá ekki neitt frá þér, vonandi ferðu að lagast i bakinu. Veðrið her er buið að vera yndislegt í dag her i danaveldi. Knus i hus Jónina min
Kristín Gunnarsdóttir, 11.3.2009 kl. 13:53
Ég fæ skammir í hneykslanlegum tón ef ég er að tala við einhvern í síma sem er staddur á öðrum landshluta, ef ég spyr ekki um veðrið. Svo ég reyni nú stundum að muna eftir því að spyrja..
Gott að þú hlustar á bakið þitt því þú átt bara eitt. Það er ekkert að því að tala um verkina - verra að vera með þá
Vona að þú jafnir þig fljótt ljúfan mín

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 11.3.2009 kl. 17:44
Kristín mín: Þakka þér fyrir, skal muna það
Bakið er ennþá leiðinlegt en það lagast... með hækkandi sól eða eitthvað
Öfunda þig nú svolítið af góða veðrinu sko og knús í þitt hús líka

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 19:06
Sigrún mín: Já það er svo svakalega íslenskt að tala um veðrið, eins gott að klikka ekkert á því
Rétt það er verra að vera með þá en mér finnst ekkert að ég ætti að að vera að tala um þá heldur...
Þakka þér fyrir mín kæra, ég vona það líka

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 19:09
Það er krúttlegur sveitamannasiður að ræða veðrið
Verkir eru kannski nútímalegra umræðuefni en allt í lagi að ræða þá líka þegar á þarf að halda
Vona að bakið og veðrið batni 
, 11.3.2009 kl. 20:57
Dagný mín: Krúttlegur sveitamannasiður
Takk heillin ég er öll að koma til, labbaði langt og lengi í dag í fínu veðri

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 22:36
Hehehe já við hér útlendingarnir nennum voða lítið að eyða púrði í veðrið. Farðu vel með bakið Jónína mín.
Ía Jóhannsdóttir, 12.3.2009 kl. 08:11
Ía mín: Já ég er farin að fatta það
Far þú sömuleiðis vel með þig mín kæra

Jónína Dúadóttir, 12.3.2009 kl. 08:23
Ekkert mál ryksugaðu katta skrattann það gerðum við þegar loðköttur mikill að nafni Bubbi Morteins ( það var gælu nafn hann hét Ásbjörn Kristinsson ) var að ganga úr hárunum ég held að það væri betra en að frysta hann.
En svo er það spurning ef þú frystir hann þá hættir hann að ganga úr hárunum.
Kveðja Ásgerður
egvania, 12.3.2009 kl. 20:59
Ásgerður mín: Það er þetta með köttinn og ryksuguna, hann lætur sig alltaf hverfa um leið og ég opna skápinn sem hún er geymd í
Það leysir óneitanlega þó nokkur vandamál að frysta hann...
Jónína Dúadóttir, 12.3.2009 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.