Í fréttum er það helst héðan af norðurhjaranum að vorið var tiltölulega stutt þetta áriðÞað er núna ca 20 cm jafnfallinn snjór og snjóar enn... spurning að fara að huga að jólagjöfumÉg prjóna sem telst ekki til helstu frétta... ég geri töluvert af þvíMeðal annars hef ég verið með síða peysu á sjálfa mig á prjónum núna í um það bil ár eða svo, hef alltaf tekið hana upp og prjónað slatta ef mér hefur ekki dottið neitt annað í hug þá stundina, búin með bolinn og aðra ermina en þá var garnið allt í einu búið...Var síst að skilja í því hvernig mér tókst svona gjörsamlega að klúðra þessu... það eru nú engin geimvísindi á bak við það að reikna út hvað þarf mikið garn í peysu... og ég er líka yfirleitt með vaðið fyrir neðan mig og kaupi frekar meira en minna...Mikið búin að leita að þessu garni í búðum, hringdi meira að segja suður í nokkrar búðir, en þetta virðist bara ekki vera framleitt lengur...Fúlt eiginlega en jæja, ákvað að rekja hana upp og nota garnið í annað... sem ég og gerði, þessi kona drífur í hlutum þegar hún er búin að ákveða að gera þá... hef nú svona yfirleitt álitið það frekar kost en löst... en... Nokkrum dögum seinna nánar tiltekið í gær, gerðist sá ægilegi atburður í mínu annars frábæra lífi að ég fann garnið sem vantaði uppá í peysuna... í poka, í hillunni þar sem ég geymi allt garnið mitt, inni í skáp, inni í herbergi, í mínu eigin húsiÉg eiginlega fór svolítið í taugarnar á sjálfri mér þegar ég fann helv... garnið... fyrsta hugsunin var auðvitað og eðlilega: "Dæs og ég rakti hana upp"... en svo kom þetta: "En bara bolinn, ekki þó ermina" Halló.... allt í lagi að hemja Pollýönnuna aðeins, svona af og tilAnnars ferlega góð inn í daginn og vona sannarlega að þið séuð það líka
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já fór svona med vorid ykkar lika vonandi kemur thad samt fljótt aftur bara. ég held i thá von hér...
Myndarskapur ad prjóna, hef aldrei nád lagi med thad, en dáist ad theim sem thad geta. Thú ert bara asskoti efnileg i polliønnu sko ég er alltaf ad æfa mig...thetta lærist.
Hafdu gódan dag i snjónum,knús hédan
María Guðmundsdóttir, 26.3.2009 kl. 08:26
María mín: Við vöknum upp einn daginn við að allt í einu er vorið bara komiðEn það verður að vera fljótlega... sem fyrst... strax... helst áðanKnús úr snjó og meiri snjó
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 08:48
Já snjór, hmmmmmmmmmmmmmmmmmm held ég eigi heima á Íslandi
Erna Evudóttir, 26.3.2009 kl. 09:19
Heheh ég veit að það er ljótt af mér að hlæja að þessu en ég gat ekki annað heheh
Ía Jóhannsdóttir, 26.3.2009 kl. 09:20
Erna mín: Ertu nú alveg viss ?
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 09:21
Ía mín: Er annað hægt ?
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 09:21
Æí Ljótt að hlægja að óförum annarra en þetta er óborganlegt . Vonum svo að vorið komi aftur fljótlega svo þú sleppir við jólagjafirnar enn um stund.
, 26.3.2009 kl. 10:20
Sorry en ...bwahhahahahaha hefði svooo viljað sjá svipinn á þér þegar þú fannst garnið tíhí... þú ert yndisleg ljúfan mín, eigðu góða daga í snjónum
Jokka (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 10:41
Frirgefðu þúsund sinnum Jónína mín,ég átti þessa snópöntun síðan um jól,hún lenti einhverstaðar milli skjala þarna uppi og fannst loks núna og var snögglega afgreidd á rangan stað á landinu í þokkabót, aldrei hægt að gera nokkuð rétt lengur en anyway sendi þér smá knús og vona að það bræði smá af snjónum
Líney, 26.3.2009 kl. 11:08
Dagný mín: Hvernig bara dettur þér í hug að hlægja....Æi það er ekki öll vitleysan eins, sem betur ferJamm vorið kemur, ég er nú ekkert byrjuð að skrifa á jólakortin
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 12:54
Jokka mín: Æts já ég veit það hefur verið sjón að sjá svipinn á mér Sömuleiðis elskuleg
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 12:55
Líney mín: Fyrst það varst þú þá læt ég það veraEitthvað hlýtur knúsið að hafa virkað, það er næstum því hlýtt útiKnús til baka mín kæra
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 12:57
Ertu ekki til í að prjóna á mig hálfa peysu,svona við tækifæri Snjór hvað,veit varla hvað það er lengur
Birna Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 19:10
Knús á þig norður ljúfan.Búkolla biður að heilsa.´Komin úr fjósinu og liggur á jórtri út á engi í sumar.
Ragna B (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 19:53
Birna mín: Hvað með bara eina ermi ?Komdu norður í snjóinn... þetta þarna hvíta... og ég skal prjóna á þig alveg heila peysu
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 21:02
Það er nú meiri æðibunugangurinn á þér addna. Þú hefur náttla bara rokið til og rakið upp peysuna í einu hendingskasti. Áts, get alveg ímyndað mér smá sjokk við að finna svo fj... garnið. En iss, varstu ekki bara orðin eitthvað leið á þessari peysu og langaði í aðra Knús í páskahretið
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 26.3.2009 kl. 23:26
Sigrún min: Æi já ég veit það... stundum svolítið fljótfær.... og kalla það svo dugnað til að breiða yfir vitleysurnarKnús úr hretinu
Jónína Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 05:33
Ég gat nu ekki annað en hlegið Jónina min, en þú verður nu ekki lengi að prjona aðra, þú ert soddan dugnaðarforkur. Knus til þín
Kristín Gunnarsdóttir, 27.3.2009 kl. 06:51
Kristín mín: Ég hlæ líka... núnaByrjuð á henni aftur, verst að það er miklu fljótlegra að rekja upp en prjóna
Knús í þitt hús mín kæra
Jónína Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 07:36
Manneskjan er alveg prjón-vitlaus,þegar hún tekur sig til
Birna Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 09:30
Birna mín: Ertu að tala um mig ???
Jónína Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 09:47
Múhaaaah,jamm akkúrat þig væna mín
Birna Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 12:52
Birna mín: Nú ég ekki skilja...
Jónína Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 21:48
Birna Dúadóttir, 27.3.2009 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.