Æts, ég verð að viðurkenna að það dregur nú pínulítið niður í mér þegar ég lít út í morgunsárið og sé snjó á bílnum mínum... Ekki það að ég hafi áhyggjur af bílnum... neeeei, ég var bara komin með það algerlega á hreint að það væri komið vor...Það spilar samt ekkert inni að ég er í fríi þessa vikuna, ég átti ekkert von á þessu fríi og er auk þess búin að eyða dögunum mest inni... inni heima hjá mér, inni í bankanum og inni í tryggingarfélaginu... sem enn er okkarMér tókst í alvarlegu tiltektaræði að láta lækka greiðsluþjónustuna okkar um tæp 50 þúsund á mánuði og komst að því eftir skrítnum krókaleiðum að við erum búin að borga brunatrygginguna af Fjallakofanum í meira en ár... alveg síðan við seldum hannMaðurinn sem ég talaði við hjá tryggingafélaginu reyndi eins og hann gat að rugla mig í ríminu og honum tókst mjög vel upp þegar við fórum að tala um upphæðir, gjalddaga og endurgreiðslur... allt það sem lætur mig komast í svona ástand sem ég held að líkist mest blackuot-iMinnug þess að sókn er besta vörnin, sagði ég honum að sama hvernig hann sneri út úr þessu fyrir mér, þá fyndist mér þetta samt allt of dýrt og ég væri á trítlinu á milli tryggingarfélaga til að láta gera mér einhver góð tilboð... Það virkaði eins og fínasti afruglari á hann og hann sagðist ætla að vinda sér í að reyna að lækka þetta eins mikið og hægt væri... síðan hefur ekkert til hans spurst... enda var þetta nú bara í gærEngar hvunndagshetjudáðir í dag... ég ætla að mæta á uppáhaldssnyrtistofuna mína núna fyrir hádegið og koma þaðan út ennþá fallegri en ég er... það má alltaf bæta aðeinsEigið góðan dag elskurnar mínar allar og klæðið ykkur vel, þetta var stutt vor og við verðum bara að vonast eftir snjóléttu sumri
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tryggingar eru glapræði.Gjörsamlega fáránlegt hversu mikið maður eyðir í þetta og fær svo sama og ekkert ef að eitthvað kemur fyrir .En njóttu dagsins og dekursins.Kveðja norður.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 08:02
Ragna mín: Já ég sagði honum það líkaEigðu góðan dag mín kæra
Jónína Dúadóttir, 6.5.2009 kl. 08:09
Rosalega ertu nú góð að borga svona fyrir annað fólk verður að viðurkennast að ég er sko ekki svona góð
Erna Evudóttir, 6.5.2009 kl. 08:10
Erna mín: Ohhh... já, en ég hélt þú vissir hvað ég er yndisleg í mérÞað skrítnasta var að núverandi eigendur voru að borga líka
Jónína Dúadóttir, 6.5.2009 kl. 08:28
Oh en þið góð við tryggingafélagið
Erna Evudóttir, 6.5.2009 kl. 08:37
Var snjór á bílnum þínum?? Whaaat.....?? Búum við ekki lengur í sama bæjarfélagi? Hvenær fluttir þú til Grænlands.... híhí...gott hjá þér með tryggingafélagið...held að sem flestir ættu að fara að gera þetta...og hananú! Eigðu góðan dag ljúfan mín
Jokka (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 08:44
Erna mín: Já maður á alltaf að vera góður við minnimáttar...
Jokka mín: Æi gleymdi ég að segja þér að við erum flutt ? Þvílíkt tillitsleysi við bestu vini sína... Sko þú skrifar bara utaná til mín: Ninna, Angmarsallik, Grænland... Snjórinn er löngu farinn núna, kannski náði ég bara að sjá hann af því að ég fer á fætur klukkan X.xxKnús á þig elskuleg, ég er á leiðinni
Jónína Dúadóttir, 6.5.2009 kl. 09:01
þessi snjór hlýtur að hverfa, annars man ég eftir snjókomu á 17.júní þegar ég var barn fyrir norðan.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.5.2009 kl. 11:57
Amm Jónína þú ert töffari
Birna Dúadóttir, 6.5.2009 kl. 13:54
ussssssssssssssss....snjór!!! er thá lóan frosin i hel bara??
knús og kram hédan
María Guðmundsdóttir, 6.5.2009 kl. 18:19
Ásdís mín: Auðvitað hverfur hann, ekki spurning hvort... bara hvenær
Birna mín: Þetta er í genunum mín kæra systir
María mín: Neee... eða ég held ekki að hún sé frosin sko... það er nú hiti yfir frostmarki hérnaKnús og kram til baka
Jónína Dúadóttir, 6.5.2009 kl. 18:51
Knús í snjóþungt vorið
, 6.5.2009 kl. 19:46
Burrrrrrrrrr og ég sem ætla að heimsækja Akureyris jafnvel í júní. Það hlýtur að skána er það ekki?
Ía Jóhannsdóttir, 6.5.2009 kl. 19:53
Dagný mín: Takk fyrir knúsið, það hlýjar svo velAnnað jafnhlýtt til baka
Ía mín: Ég held mér sé óhætt að lofa því að það verði komið sumar þá
Jónína Dúadóttir, 6.5.2009 kl. 19:56
Það munar aldeilis um fimmtíukall á mánuði. Það er eins gott að fylgjast vel með því sem maður borgar. Tryggingafélögin eru snillingar í því að rugla fólk, en þetta er flottur afruglari sem þú notaðir Sendi þér hlýja strauma, og vona að það bræði snjóinn
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 7.5.2009 kl. 07:55
Sigrún mín: Jahá það munar um minnaFékk tilboð frá öðru tryggingarfélagi í gær... munar ekki nógu miklu fyrir migTakk fyrir hlýju straumana elskuleg, það hlýnaði mikið hérna
Jónína Dúadóttir, 7.5.2009 kl. 08:05
Við vitum þó alla vega að við erum í sama bæjarfélagi ég og þú ;)
Flott hjá þér að afrugla tryggingakallinn, hefur ábyggilega ekki veitt af :)
Helga skjol, 7.5.2009 kl. 08:17
Helga mín: Já það erum við greinilega skoÞessi afruglari virkaði svo fínt að ég hef bara alls ekkert heyrt í manninum síðan
Jónína Dúadóttir, 7.5.2009 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.